Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Side 62

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Side 62
60 bendir til um. Magn snarrótarinnar, sem breiðist þannig út, er nokkuð misjafnt eftir jarðvegi og hirðingu sléttunnar, en að meðaltali nær það að vera 10—20% af öllum gróðri þegar á 9. ári sléttunnar og eykst lítið upp frá því. Víða vex hún í deiglendum hlutum túnanna, þar sem kalhættan er að jafnaði mest, og er einnig aðalgrastegundin á túnum, sem liggja hátt, enda virðist hún þola mótlætið allra grasa bezt. Að vísu er jafnvel henni stundum ofboðið, ef ís liggur of lengi í lægðum þeim, sem hún vex í, en þá hefði heldur engu öðru hágresi verið vært. Rýgresi. Tegund þessi var notuð í blöndur árið 1931 og frá 1941—1951, en aldrei svo, að nokkru næmi, eins og línuritið gefur til kynna. Enda þótt sáðmagnið hafi aldrei verið mikið, mætti þó búast við, að gras þetta fyndist viða i sáðsléttum, ef það á annað borð lifði sæmilega hér á landi. Athuganir á gróðrinum gáfu þó aðra raun. Hvergi fannst rýgresi í eldri sléttu en tveggja ára og þá aðeins við hin beztu vaxtarskilyrði. Er af þessu auðsætt, að rýgresi er ekki harðgert gras, og því virðist það naumast notandi í venjulegar fræblöndur hér á landi, ef dæma skal eftir þoli þess. Grastegundin gefur aftur á móti mjög góða uppskeru á fyrsta ári, en þar sem engar athuganir voru gerðar í eins árs sléttum, skal af þeim sökum ekki lagt neitt mat á tilverurétt hennar í einstök- um blöndum. Línurit XXVII. Rýgresi. % í mism. árgöngum sléttna. % of Lolium perenne in fields of diff. age. 20 15 10 5 1951 50 49 48 47 46 45 44 43 42 41 40 39 38 37 36 35 34 33 32 31 Kalnar sléttur. WinterkiIIed fields. 15 10 5 0 ' Suðurland S-heland Norðurland N-Iceland SlS-Llanda Seedmixture Ókalnar sléttur. Normal fields. 1951 50 49 48 47 46 45 44 43 42 41 40 39 38 37 36 35 34 33 32 31

x

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur
https://timarit.is/publication/1605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.