Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Page 68

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Page 68
66 tíma, er sáð var, án þess að tillit væri tekið til jarðvegs sléttnanna, en það er vitað, að gerð jarðvegs er einn aðalþáttur í lífsafltomu jurtar- innar. Of langt mál væri að reyna að gera grein fyrir því, hvernig gróð- urfar hinna fyrrgreindu sáðsléttna hefur breytzt frá einu ári til annars i mismunandi jarðvegi, en aftur á móti skal reynt að gefa mynd af meðalgróðurlendi þessara sléttna. Niðurstöður þessara athugana hafa síðan verið birtar í línuriti XXXI, þar sem hlutföll helztu nytja- jurta sléttnanna eru gefin upp í prósentum fyrir sex mismunandi flokka íslenzks jarðvegs, bæði norðan- og sunnanlands. Flokkun jarðvegs, sem notuð hefur verið, er að vísu nokkuð ófullkomin, en á þó að geta gefið hugmynd um gróðurfar hinna helztu jarðvegstegunda. Línurit þetta talar bezt sínu máli sjálft, en þó skulu hér rædd nokk- ur atriði, er þar koma fram. í sendnum jarðvegi virðist túnvingull vera ein algengasta jurtin eða 25—30% af öllum gróðri, en auk þess ber þar mikið á skriðlingresi og vallarfoxgrasi. í leirjörð virðist túnvingull ekki eins áberandi, og þar kemur fyrir, að hávingull vex, og ault þess er þar snarrótarpuntur og hvítsmári. Einnig ber þar nokkuð á háliðagrasi norðanlands. Á melum virðist túnvingull og skriðlíngresi helztu grösin, en auk þess ber þar mikið á háliðagrasi norðanlands og vallarfoxgrasi sunn- anlands. í gömlum og frjóum moldarjarðvegi norðanlands er mikill hluti gróðursins háliðagras, en þar næst kemur vallarsveifgras. Sunn- anlands ber mun minna á háliðagrasi, en í þess stað er mikið af vallar- foxgrasi. Þar kemur og fyrir, að hinar lingerðari grastegundir finnast, svo sem hávingull, rýgresi og axhnoðapuntur. í gömlum mýrartúnum er vallarsveifgras milli 15 og 20% af gróðrin- um. Háliðagras er allt að 20% norðanlands, en aftur á móti er vallar- foxgras meira sunnanlands. í yngri mýrartúnum virðist háliðagrasið og vallarfoxgrasið vera meira en í þeim eldri. Hér gætir einnig hinna lin- gerðu grasa, enda er stutt síðan sáð var til flestra þessara sléttna. Lengst til hægri í hverju línuriti er súla, sem á að merkja hlutföll annars gróðurs sléttnanna. Virðist hann einna mestur í göinlum mó- mýrartúnum, en þar vex helzt mosi, elfting og hálfgrös. Gróðurríki. Allar fyrri athuganir á gróðurlendi landsins hafa leitt í ljós, að hlutföllin milli útbreiðslu einstaklinganna í plöntusamfélaginu eru mjög misjöfn eftir því, hvernig eðli jarðvegs og lega staðarins er. Athuganir þær, sem gerðar voru á gróðurfari sáðsléttna og hér hefur verið lýst að nokkru, bentu einnig' tvímælalaust til þess, að mik- ið væri það undir jarðvegi og legu komið, hvað lifði af fræi sáðblönd-

x

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur
https://timarit.is/publication/1605

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.