Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1954, Blaðsíða 71
69
Mýrlendisblanda.
í mýrlendi getur blandan verið svipuð og valllendisblandan, en víða
mun það hafa litla þýðingu að sá þar hvítsmára, þótt sýktur sé.
Jarðvegur mýranna er kaldur, og því eru þar allar efnabreytingar
hægar og sömuleiðis gerlastarfsemi. Köfnunarefnisnáms rótarbaktería
smárans mun því elcki gæta mikið. Getur það því varla staðizt, að það
svari kostnaði að sá smára í slíkan jarðveg vegna köfnunarefnisvinnslu
hans, og til mikils fóðurauka er liann ekki, þar sem hann deyr að
mestu út á fyrsta vetri, nema þar sem mýrin er orðin gömul og jarð-
vegurinn er þurr og myldinn. Smárafræ er dýrt og því álitamál, hvort
á að sá honum aðeins til þess að fá uppskeru af honum á fyrsta ári.
Með þeirri fjölgun á sáðblöndum, sem hér hefur verið stungið upp
á, vinnst aðallega tvennt:
1 fyrsta lagi sparast mikið magn af grasfræi, þar sem reynt er að
nota á hverjum stað aðeins þær tegundir, sem bezt henta, og í öðru
lagi minnkar kalhættan mikið í þeim sléttum, sem harðgerðar teg-
undir eru notaðar i.
Þess ber þó að geta, að aldrei verður hægt að gefa uppskrift af
blöndu, sem ekki getur kalið einhvers staðar í illu árferði, en með
þessu má þó bæta mikið það ástand, sem nú ríkir í þessum málum.
Niðurlagsorð.
Hér að framan hefur verið skýrt frá athugunum, sem gerðar voru
á ræktuðu graslendi norðan- og sunnanlands á árunum 1951 og 1952,
og sýnt fram á, að sáðsléttur síðari ára hafa orðið fyrir meira kali
en annað ræktað land, meðal annars vegna þess, að í sáðblöndur síðari
ára hefur vantað nægilega harðgerðar grastegundir. Síðan er varpað
fram nokkrum tillögum, byggðum á niðurstöðum þessara athugana,
um endurbætur í jarðrækt með sérstakri hliðsjón af kalhættu gras-
lendisins. Þess ber að geta, að til grundvallar þeim ályktunum, sem
gerðar hafa verið, liggur rannsókn á litlum hluta þess lands, sem um
er að ræða. Er því ekki rétt að líta á árangur athugananna sem endan-
lega niðurstöðu eða tillögur um endurbætur, sem einhlíta lausn á vanda-
málunum, heldur verður að skoða þessar athuganir sem einn þátt i
þeim rannsóknum, sem nauðsynlegt er að gera til þess, að hægt sé að
finna nokkra úrbót á því, sem miður fer.
Hvað viðvíkur sáðblöndum, liefur ekki verið lagt út í að gefa upp-
skriftir fyrir fræmagni tegundanna í blöndunum, sökum þess, að engin
algild hlutföll eru til.