Storð : heimur í öðru ljósi - 01.04.1983, Qupperneq 45
um það hvernig sviðið á að líta
út.“
En þegar tölvan hefur verið mötuð
eru möguleikarnir stórkostlegir.
„Það furðulegasta við TRON er
það,“ segir Lisberger, „að baksvið-
ið kemst allt fyrir á skrifborði. Þar
er tölvuskrá með tveim diskum
sém á eru nauðsynlegar upplýs-
ingar til að endurgera þessar mynd-
ir. Fyrir TRON hönnuðum við
fyrsta landslagið ættað úr vídeó-
leikjunum. Ef við viljum gera
TRON 2 köllum við fram þessa
veröld og gerum fleiri eftirlíkingar
af henni.“
The Secret of NIMH er hins
vegar ein þeirra teiknimynda sem
vinna verður í höndum. Elún er
byggð á verðlaunaðri barnasögu
eftir Robert C. O’Brien: Mrs.
Frisby and the Rats of NIMH.
Hún segir frá leit músaekkju að
Walt Disney_______
þreyttist aldrei á að
brýna fyrir mönnum:
„Setjið söguna
fyrst sómasamlega
saman“
nýju heimili fyrir sig og grislinga
sína þegar hætta er á að gamla
heimilið eyðileggist í vorplæging-
unum. Hún leitar hjálpar hjá rott-
um sem hafa hlotið menntun sína í
rannsóknarstofu. Um fyrirsjáan-
lega framtíð mun það verða miklu
dýrara að mata tölvu á upplýsing-
um sem gera henni kleift að tjá
tilfinningar sjúks barns og móður
þess — eða líkja eftir leikaranum
John Carradine sem leggur til
rödd uglunnar í NIMH — heldur
en vinna verkið í höndum.
Don Bluth, framleiðandi The
Secret of NIMH, yfirgaf Disney-
fyrirtækið ásamt tíu samstarfs-
mönnum sínum þar. Hann segir að
uppreisnarmennirnir hafi hætt hjá
Disney til að geta framleitt kvik-
myndir í eigin kvikmyndaveri.
Myndirnar eiga að líkjast þeim
sem gerðar voru hjá Disney fyrir
40 árum, en þá var eftirlætiskvik-
mynd Bluths, Bambi, einmitt unn-
in.
Bæði The Secret of NIMH frá
Bluth og The Fox and the Hound
frá Disney hafa dýr í aðalhlutverk-
um, en eru engu að síður dæmi-
sögur um mannlegt líf. Sögunum
lyktar vel og aðaláherslan er ekki
lögð á brellurnar — glampana og
skuggana — heldur innsæi í mann-
lega hegðun.
Enn um sinn eru „klassískar“ að-
ferðir allsráðandi við gerð teikni-
mynda í kvikmyndaveri Disneys
og öðrum aðferðum verður ekki til
að dreifa hjá Bluth. Bluth og sam-
starfsmenn hans eru þegar komnir
á kaf í gerð annarrar teiknimyndar
sinnar en hún byggir á norrænu
þjóðsögunni Fyrir austan sól og
sunnan mána.
Hjá Disney hefur Mikki mús feng-
ið fyrsta kvikmyndahlutverk sitt í
29 ár. Hann verður í hlutverki
Bob Cratchit í hálftíma langri
teiknimynd eftir sögu Charles
Dickens, Christmas Carol. Og
gerð klassískra teiknimynda held-
ur áfram með The Black Caul-
dron, kvikmynd sem byggð er á
welskri þjóðsögu. Unnið hefur
verið við myndina síðan 1976 og
enn er langt í land með að verkinu
ljúki.
A sama tíma er Disneyfyrirtækið
að taka næsta skref í tölvutækn-
inni. Tveir ungir kvikmyndagerð-
armenn, John Lasseter og Glenn
Keane, eru að skipuleggja 30 sek-
úndna atriði úr barnabók Maurice
Sendaks, Where the Wild Things
Are. í því eltir snáðinn Max hund-
inn sinn út úr herbergi, eftir gangi
og niður stiga.
Max og hundurinn hans verða
teiknaðir á venjulegan hátt, eins
og allar persónur í öðrum teikni-
myndum frá Disney — eða Bluth.
En það er tölva sem litar Max og
er þá ekki lengur þörf fyrir þá sem
hafa séð um að lita teiknimyndirn-
ar. Enn byltingarkenndara er að
herbergi Max, stiginn og gangur-
inn verða að líkindum tölvustýrt
umhverfi, hannað af MAGI.
Ef tilraunin með Where the Wild
Things Are tekst gæti aðferðin
hugsanlega dugað fjölda annarra
ævintýra. Disney-fyrirtækið undir-
býr nú gerð kvikmyndarinnar Re-
turn to Oz sem er fyrsta leikna
myndin um Oz frá því hin sígilda
Galdrakarlinn í Oz var gerð árið
1939. „Ef tölvustýrt myndmál
þróast nógu ört,“ segir Wilhite hjá
Disneyfyrirtækinu, „gæti Oz orð-
ið tölvuríki.“
Endanlegar niðurstöður sýna eftir
sem áður að það eru ekki tækni-
brellurnar sem lengja lífdaga E. T.
og Bamba. Geimveran gerð úr
gúmmíi og stáli og dádýrið teikn-
að með blýanti á pappír eru hlutar
af söguþræði sem áhorfendur trúa
á. Walt Disney þreyttist heldur
aldrei á að brýna fyrir mönnum:
„Setjið söguna fyrst sómasamlega
saman.“
Eftir________________
John Culhane.________
Solveig K. Jónsdóttir
þýddi.
E.T. (Universal)
43 STORÐ