Storð : heimur í öðru ljósi - 01.04.1983, Blaðsíða 92
Stefnan er tekin í land því það
þarf að sauma nefið á Ásgeiri sam-
an. Eftir miklar bollaleggingar er
ákveðið að fara inn á Patreksfjörð
þar sem er sjúkrahús og útgerðin á
ísafirði látin vita svo hægt sé að
senda þangað mann í stað Ásgeirs.
Til þess er nægur tími því sigling-
in í land tekur tíu klukkustundir.
Það er aftur farið að versna í sjó-
inn.
„En þá er hann
líka fullur“
Uppi við landið er skjól og þegar
við nálgumst Patreksfjörð fara há-
setarnir aftur á dekk að bæta netið
sem enn einu sinni er rifið. Helvít-
is henglar í því, segja þeir. Það er
skýjað og gengur á með skúrum
en sjórinn virðist meinlaus. Þá
segja þeir mér að einmitt hér hafi
grænlenskur togari farist fyrir
nokkru síðan. Það var ísing og
honum hvolfdi fyrirvaralaust; fór
niður með manni og mús. Ætli við
séum ekki yfir honum núna.
Guðbjartur á ekki einu sinni að
leggjast að bryggju á Patreksfirði
heldur skunda rakleiðis út í karf-
ann aftur. Á hinn bóginn er ákveð-
ið að við förum í land með Ásgeiri
og suður morguninn eftir.
„Eg öfunda ykkur,“ segir Geir
Gunnarsson háseti í smókpásu aft-
ur á dekki. Þá hlær bátsmaðurinn.
„Þctta mátt þú ekki segja, sjálfur
Múkkinn Bjarni er
harður og alvarlegur á
svip. Skyldi hann vera
frábitinn sjónum?
sonur sjómannsins,“ segir hann
með uppgerðarhæðni og hnífinn í
húfunni. „Þú skalt ekki heldur
taka neitt mark á honum,“ bætir
hann við og beinir til mín. „Hann
er ekki fyrr kominn í land og á
ball en hann fer að væla um að
hann vilji komast út á sjó aftur.
„Ég elska hafið,“ emjar hann.
Elska hafið, hefurðu vitað annað
eins? En þá er hann líka fullur!“
Sonur sjómannsins glottir bara.
Hamborg
hálfsmánaðarlega
Hamborg er ein af helstu viðskiptahöfnum íslendinga erlendis. Skipadeild Sam-
bandsins hcfur par yfir að ráða mjög góðu athafnasvæði við vörugeymslu 65 á
Sud-West Terminal.
Hið virta fyrirtæki, Norwegische Schiffahrts-agentur er umboðsaðili okkar í
Hamborg. Þar starfa okkar menn, sem veita alta þá þjónustu sem að vöruflutn-
ingum lýtur.
Þeir hafa á að skipa sérþjálfuðu starfsfólki. sem hvert á sínu sviði hefur mikla
reynslu og þekkingu á staðháttum og starfsaðferðum.
Ásamt starfsmönnum okkar í Reykjavík gera þeir allt sem 1 þeirra valdi stendur.
til að gera flutninga Skipadeildar Sambandsins sem öruggasta og hagkvæmasta
fyrir viðskiptavini hennar. Hafðu samband.
Norwegische Schiffahrts-Agentur
Kleine Johannisstr. 10, P. (). Box 110804
2 HAMBURG 11, Tclcx: 214823 NSA D.
Sími: 040-361-361
SK/PADE/LD SAMBANDSINS
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SÍMI 28200
STORÐ 90