Storð : heimur í öðru ljósi - 01.04.1983, Qupperneq 107
Stórmeiscaraeinvigi fýrir luktum dyrum:
Um klukkan fimm síðdegis fyrsta
fimmtudag í október lék Friðrik
Ólafsson riddara sínum á b7 í 24.
leik og bauð jafntefli að því búnu.
Boris Spassky rétti umsvifalaust
fram höndina til merkis um að
hann þægi boðið, og hafði þar með
sigrað í einvígi því, sem STORÐ
efndi til milli þeirra tvímenning-
anna, með þremur vinningum
gegn einum. Meistararnir gerðu
jafntefli í fyrstu og síðustu skák-
inni, en Spassky vann aðra og
þriðju skákina.
En þetta var ekkert venjulegt ein-
vígi. Glöggir menn kannast ekki
við að tímarit hafi nokkru sinni
áður staðið að einvígi tveggja
skákmeistara beinlínis í því skyni
að afla sér efnis. Þar við bættist,
og var raunar forsenda málsins, að
einvígið var leynilegt. Allir við-
komandi voru bundnir þagnarheiti
varðandi úrslit einvígisins og ein-
stakra skáka, en fyrir utan stór-
meistarana sjálfa vissu einungis
þrír menn um gang mála.
3-1
Eftir Pál Magnússon
Einvígið hófst mánudaginn 4.
oklóber, þrátt fyrir að sunnudag-
urinn á undan hefði reynst báðum
keppendunum erfiður. Friðrik
hafði verið á ferðalagi erlendis og
kom ekki heim fyrr en seint á
sunnudagskvöldið. Spassky hafði í
meira en sjö klukkustundir sam-
fleytt þrammað á milli borða í erf-
iðu fjöltefli, sem gekk mjög nærri
honum. En allt um það, — meist-
ararnir mættu báðir í herbergi
númer 276 í austurálmu Hótels
Loftleiða þegar klukkuna vantaði
fimmtán mínútur í þrjú. Herberg-
ið var krökkt af blaðamönnum, en
þeim var heimilað að vera við-
stöddum þangað til fyrsta leiknum
hafði verið leikið. Þorsteinn Þor-
steinsson, dómari einvígisins, lét
keppendur draga um lit, og kom í
hlut Friðriks að byrja með hvítt. Á
slaginu þrjú var klukka hans sett
af stað og eftir einnar mínútu um-
hugsun lék hann c-peðinu fram
um tvo reiti. Blaðamenn yfirgáfu
nú herbergið, en ljósmyndari eins
blaðsins sætti færi og skaust inn
aftur rétt í þann mund sem
Spassky svaraði með því að leika
b-peði sínu fram um einn reit. Þar
með luktust dyrnar að einvíginu
og hulunni hefur ekki verið svipt
af viðureign meistaranna fyrr en
með þessu fyrsta tölublaði
STORÐAR.
Herbergið þar sem einvígið fór
fram var í engu frábrugðið venju-
legu hótelherbergi nema hvað
rúmin höfðu verið fjarlægð og í
staðinn sett borð sem þægilegt var
að sitja við. Enginn sérstakur út-
búnaður var í herberginu ef frá er
talinn sleði með þremur ljósköst-
urum, sem komið var fyrir í loft-
inu yfir skákborðinu.
Trúlega er þeim Friðrik og
Spassky einungis í barnsminni að
hafa teflt kappskákir að viðstödd-
105 STORÐ