Fréttablaðið - 27.11.2021, Blaðsíða 2
Himinninn skartaði sínu fegursta
Þeir morgunhanar sem áttu leið um sjávarsíðuna í Reykjavík við sólarupprás í morgunsárið í gær, gátu séð fallegan himin sem var eins og glæsilegt málverk.
Þó svo að kalt hafi verið í veðri, var stillt og fallegt veður og sólin litaði himininn fögrum litum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Nokkur verslunarrými við
Laugaveg standa auð. Fæst
eru í göngugötuhluta. Borgar-
stjóri segir þau svæði draga til
sín fólk. Borgarfulltrúi telur
fasteignaverð ráða mestu.
ninarichter@frettabladid.is
SKIPULAGSMÁL Göngugötusvæði
Reykjavíkurborgar hafa verið til
umræðu undanfarið. Ljósmyndari
Fréttablaðsins fór á stúfana og
myndaði autt verslunar- og veit-
ingahúsnæði við Laugaveginn.
Af myndunum má greina að þessa
stundina standa fleiri auð rými við
bílaumferðarhluta götunnar.
Vigdís Hauksdóttir borgarfull-
trúi segist ekki hafa skýringar á
þessari stöðu, en telur að þetta sé
ekki spurning um umferð bíla eða
gangandi vegfarenda, heldur þætti
á borð við húsnæðisverð.
„Þetta veltur á eftirspurn og fram-
boði og hvað leiguverðið er, per
fermeter. Ég vil að Laugavegurinn
blómstri allur,“ segir Vigdís.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
segir göngugötusvæðin hafa dregið
til sín fólk og iða af lífi.
„Verslun og veitingastarfsemi
hefur átt á brattann að sækja vegna
kórónaveirufaraldursins um allan
heim. Miðborg Reykjavíkur hefur
ekki farið varhluta af því, ekki síst sú
þjónusta og verslun sem beinist að
ferðamönnum,“ segir Dagur. Lauga-
vegurinn hafi hins vegar sýnt styrk
sinn og endurnýjunarkraft.
„Lundabúðir hafa í sumum til-
vikum vikið fyrir útivistarbúðum,
hönnunar- og fataverslanir með frá-
bærri hönnun íslenskra og erlendra
hönnuða eru orðnar meira áberandi
en áður,“ segir Dagur og nefnir einn-
ig opnun veitingastaða, sem hann
telji magnað við þessar aðstæður.
„Ég vil þó ekki gera of mikið úr
því að meira sé autt af rýmum þar
sem bílar keyra. Það getur verið
tilviljun,“ segir borgarstjórinn og
leggur áherslu á umbreytingarskeið
sem hann segir vera í verslun og í
miðborginni.
„Ég mæli með því að fólk geri sér
ferð og njóti þess sem miðborgin
hefur upp á að bjóða á aðventunni
og í aðdraganda jóla,“ segir Dagur.
Fleiri myndir úr gönguferð ljós-
myndara blaðsins má sjá á vef
Fréttablaðsins, frettabladid.is ■
Auð rými á Laugavegi flest
þar sem bílaumferð er leyfð
Eitt af auðu verslunarrýmunum við Laugaveg. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ég vil að Laugavegur-
inn blómstri allur.
Vigdís
Hauksdóttir
Ég vil þó ekki gera of
mikið úr því að meira
sé autt af rýmum þar
sem bílar keyra.
Dagur B.
Eggertsson
ser@frettabladid.is
COVID-19 Rætt er um það af alvöru
innan stjórnkerfisins að slaka á
reglum um sóttkví, þannig að þrí-
bólusett fólk þurfi ekki að fara í
sóttkví, komi upp kórónuveirusmit
í návist þess. Þetta herma heimildir
Fréttablaðsins.
Gangi þetta eftir mun það liðka
mjög fyrir atvinnustarfsemi og
félagslífi í landinu, en hvort tveggja
hefur ítrekað lamast, sökum þess
að heilu hóparnir hafa farið í ein-
angrun vegna smits eða smita sem
komið hafa upp í afmörkuðu rými.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins gengur þriðja bólusetningin vel
og á hún að klárast á næstu vikum.
Þá er bólusetningarrútan á fullri
ferð um höfuðborgarsvæðið, en
henni er einkum ætlað að ná til
óbólusettra landsmanna. ■
Þríbólusett fólk
sleppi við sóttkví
Þriðja lota bólusetninga gengur vel.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SVARTUR
FÖSTUDAGUR
30%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
VÖRUM ALLA HELGINA
KÓÐI Í VEFVERSLUN:
SVARTUR
LINDESIGN.IS
thk@frettabladid.is
COVID-19 Heimilt er að fram kvæma
hrað próf á börnum með munn-
vatns sýni, í stað hefðbundinna
hrað prófa, til þess að fá að gang að
hvers kyns við burðum.
Lára Sól ey Jóhanns dóttir, fram-
kvæmda stjóri Sin fóníu hljóm sveitar
Ís lands, vakti at hygli á þessum
möguleika í gær.
Magnús Geir Þórðar son þjóð-
leik hússtjóri fagnar tíðindunum,
en segir synd að upp lýsingar sem
þessar séu ekki fyrir allra augum.
„Þetta hefur hvergi komið fram
opin ber lega. Maður þarf að lesa
langt inn í reglu gerðir til að sjá að
þetta sé heimilt. Ef farið er á heilsu-
gæsluna á Suður lands braut og beðið
um þetta, þá er boðið upp á þetta.“
„Við erum búin að vera að pressa
á að af kasta getan sé aukin og
opnunar tíminn lengdur til þess
að bæta þjónustuna gagn vart gest-
unum.“
Nú er loks búið að heimila gestum
að framvísa neikvæðum PCR-próf-
um og vottorðum um Covid sýkingu
á síðustu 180 dögum. Með því verði
hraðprófin óþörf. Magnús segir
þetta vera mikið fagnaðarefni. ■
Nánar á frettabladid.is
Heimilt að taka munnvatnssýni hjá
börnum í stað venjulegra hraðprófa
Lára Sóley
Jóhannsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Sinfóní-
unnar
2 Fréttir 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ