Fréttablaðið - 27.11.2021, Side 46
Mamma mín var
ótrúlega dugleg að
baka og kannski aðeins
of dugleg, því við kom-
umst aldrei yfir það að
borða allar þessar
smákökur í kringum
jólin.
Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Margir eiga sínar uppáhalds-
jólasmákökur sem hefð er
fyrir að baka á aðventunni
og sumir búa til nýjar hefðir
í jólasmákökubakstrinum
og gera jafnvel sínar útgáfur
með því bragði sem þeim
þykir best. Fyrsti sunnu-
dagur í aðventu er á morgun
og því ekki seinna vænna að
hefðja smákökubaksturinn.
Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir köku-
og matarbloggari sem heldur úti
síðunni dodlurogsmjor.is og Insta-
gram-síðunni @ dodlurogsmjor
hefur mikla ástríðu fyrir bakstri og
veit fátt skemmtilegra en að leika
sér með nýtt bragð og áferð, sem
gleður bragðlaukana. Hún er byrjuð
á bakstrinum fyrir aðventuna og er
búin að gera sína útgáfu af sörum
sem eru svo sannarlega nýstárlegar.
„Þessar kökur eru nýjar hjá mér,
en ég eins og flestir Íslendingar, er
sólgin í sörur í kringum jólin. Ég er
vissulega ekki alin upp við að baka
þær, en á dásamlegar minningar
þar sem við vinkonurnar komum
saman til þess að baka sörur og
njóta. Það eru svo dásamlegar
stundir sem myndast við það að
dunda sér saman fyrir jólin, hvort
sem það er með vinum eða fjöl-
skyldunni,“ segir hún.
Æðislegar
lakkríssörur
Guðrún Ýr sem heldur hér á dóttur sinni vildi gera eigin útgáfu af sörum. Þær tókust svona ljómandi vel. fréttablaðið/sigtryggur ari
Lakkríssörur
fyrir alla lakkrís-
unnendur.
„Ég bara varð að prófa mína
útgáfu af lakkrís sörum, þar sem
mér finnst lakkrís svo góður –
útkoman er alveg dýrðleg, mjúkur
makkarónubotn með lakkrísfyll-
ingu og rjómasúkkulaðiskel,“ segir
Guðrún.
Litlu hlutirnir svo dásamlegir
Á heimili Guðrúnar í bernsku
var mikið um smákökubakstur.
„Mamma mín var ótrúlega dugleg
að baka og kannski aðeins of
dugleg, því við komumst aldrei
yfir það að borða allar þessar
smákökur í kringum jólin. Amma
mín kom yfirleitt til okkar og sat
við eldhúsborðið og veitti okkur
félagsskap, en við systkinin vorum
fengin til að stinga út mömmu-
kökur og hnoða kúlur fyrir allar
þessar kökur. Uppáhaldið var að
setja kremið á mömmukökurnar,
enda vildum við systkinin sjá um
það, þar sem mamma setti of lítið
krem fyrir okkar smekk á kök-
urnar. Svo þegar kökurnar voru að
klárast fengum við að gera eina í
lokin með extra kremi og það var
alveg hápunkturinn, litlu hlutirnir
sem eru svo dásamlegir.“
Sörurnar hennar Guðrúnar
Makkarónur
3 eggjahvítur
200 g möndlumjöl
200 g flórsykur
Stillið ofn á 180°C. Stífþeytið
eggjahvíturnar. Sigtið saman í skál
möndlumjöl og f lórsykur. Blandið
þurrefnunum varlega saman við
eggjahvíturnar.
Setjið blönduna í sprautupoka,
gott er að nota hringlaga stút,
og sprautið dropum á bökunar-
pappír. Ég vil ekki hafa mínar
sörur mjög stórar svo ég miða
við sirka stærð á við tíu krónu
pening. Setjið í ofn og bakið í 10-15
mínútur, eða þangað til þær verða
ljósbrúnar.
Smjörkrem
100 g lakkrísreimar frá Sambó
1½ dl vatn
6 eggjarauður
300 g smjör
200 g mjólkursúkkulaði til hjúp-
unar
Bútið lakkrísinn niður og
setjið ásamt vatni í pott og stillið
á miðlungshita. Leyfið að malla í
pottinum í um það bil 10 mínútur
þangað til það er soðið saman
í síróp. Setjið eggjarauðurnar í
hrærivél og hrærið þangað til þær
eru kremgular og þykkar.
Hrærið í eggjarauðunum og
hellið sírópinu í mjórri bunu saman
við eggjarauðurnar, passa þarf að
gera þetta ekki of hratt svo rauð-
urnar sjóði ekki þegar sírópið er allt
komið saman við. Þeytið saman í
4-5 mínútur eða þangað til skálin er
orðin köld/volg viðkomu.
Skerið smjörið í litla teninga, og
með vélina í gangi, skellið einum
í einu ofan í skálina, hrærið síðan
áfram í nokkrar mínútur.
Samsetning
Setjið kremið í sprautupoka, ef
það er mjög mjúkt skellið því inn í
frysti í nokkrar mínútur. Sprautið
á skeljarnar með hringlaga stút.
Annað hvort setjið þið kökurnar
svona beint í kæli/frysti, eða
takið ykkur smjörhníf og dreifið
úr kreminu út að köntum. Kælið
kökurnar þangað til þær eru vel
kaldar, bræðið þá súkkulaðið yfir
vatnsbaði í djúpri skál.
Dýfið krem partinum ofan í
súkkulaðið og leggið á smjörpapp-
ír. Kökurnar eru svo best geymdar
í frysti og teknar út stuttu áður en
á að bera þær fram. n
Brandenborgarkonsertar nr. 1 og 4
Fiðlukonsert í E dúr
Harpa Norðurljós
5. desember kl. 16
Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur
Miðasala: harpa.is
Miðaverð: 3.500 kr.
E
B S
F
T
T
A
Æ
I
CH
R
L
6 kynningarblað A L LT 27. nóvember 2021 LAUGARDAGUR