Fréttablaðið - 27.11.2021, Blaðsíða 6
ser@frettabladid.is
DÝRAHALD Sérfræðingar og dýra-
læknar á vegum Matvælastofnunar
hafa ítrekað svarað gagnrýnum
f y rirspurnum íslenskra dý ra-
verndarsamtaka um blóðmerahald
með þeim orðum að engu harðræði
sé beitt við blóðtöku úr fylfullum
hryssum.
Blóðmerahaldið komst í hámæli
fréttaf lutnings hér á landi í vik-
unni eftir að myndefni af meintu
dýraníði við blóðtöku á nokkrum
íslenskum hrossabúum var birt í
fjölmiðlum, en það sýnir, svo ekki
verður um villst, að harðræði er
beitt við atferlið.
Fréttablaðið hefur undir höndum
svör stofnunarinnar frá því á síðasta
ári við ágengum spurningum þeirra
sem helst hafa gagnrýnt blóðmera-
hald á Íslandi. Þar kemur fram að
árið 2019 voru 5.036 hryssur not-
aðar til blóðtöku, „allar haldnar á
útigangi“, eins og segir í svörunum.
„Hryssurnar eru reknar inn í þar
til gerða blóðtökubása, mýldar og
hausinn bundinn upp á meðan á
blóðtökunni stendur,“ segir þar jafn-
framt, en „að öðru leyti ganga þær
frjálsar með afkvæmum sínum.“
Í svörunum kemur fram að jafnt
er tekið blóð úr tömdum og ótömd-
um hryssum, en svo er sagt: „Blóð-
tökuaðstaðan er þannig útfærð að
hryssurnar renna alla jafna átaka-
laust inn í blóðtökubása sem er
lokað að framan og aftan,“ en oftast
sé böndum komið fyrir ofan við
herðakamb hryssanna þannig að
þær geti ekki prjónað.
Tekið er fram í svörunum að ein-
ungis dýralæknar sjái um blóðtök-
una og að þeir gegni lykilhlutverki
við að tryggja velferð hryssanna
– og því fari fjarri að „augljóslega
þurfi að beita hryssurnar of beldi“,
segir í svörum Matvælastofnunar
við spurningum þeirra sem helst
hafa gagnrýnt blóðmerahald á
Íslandi. n
Matvælastofnun ver blóðmerahald á hrossabúum
Mjög skiptar skoðanir eru um blóð-
merahald. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Margir eru uggandi yfir
nýjasta afbrigði kórónaveir-
unnar sem greindist í Suður-
Afríku í vikunni. Nokkur
lönd hafa þegar hert aðgerðir
á landamærum sínum vegna
þessa. Sóttvarnalæknir segir
það þó ekki liggja fyrir hvort
afbrigðið sé hættulegra en
fyrri afbrigði.
tsh@frettabladid.is
COVID-19 Nýtt afbrigði kórónaveir-
unnar greindist í Suður-Afríku síð-
astliðinn þriðjudag og hafa margir
áhyggjur af því að það geti reynst
hættulegra en fyrri af brigði vegna
fjölda stökkbreytinga. Af brigðið
nefnist B.1.1.529 og eru yfir þrjá-
tíu stökkbreytingar í broddpró-
teini þess, rúmlega tvöfalt f leiri en
í Delta-af brigðinu. Flest bóluefni
nota broddpróteinið til þess að
virkja ónæmiskerfið gegn Covid
og stökkbreytingar í því geta gert
ónæmisfrumum erfiðara fyrir að
vinna bug á veirunni.
Ekki liggur fyrir hvort af brigðið
sé meira smitandi en fyrri afbrigði
veirunnar, hvort það komist undan
bóluefnunum eða valdi alvar-
legri veikindum. Mikil aukning í
fjölda smita í Suður-Afríku þykir
þó áhyggjuefni og Susan Hopkins,
aðalráðgjafi hjá sóttvarnastofnun
Bretlands, lýsti af brigðinu sem
„því mest áhyggjuvaldandi sem við
höfum séð“.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir segir ekki öll kurl komin til
grafar hvað nýja afbrigðið varðar og
að framkvæma þurfi frekari rann-
sóknir áður en hægt sé að skera úr
um alvarleika þess.
„Það sem menn hafa verið að sjá
eru þessar miklu stökkbreytingar
á þessu svokallaða Spike- eða S-
próteini sem er aðalpróteinið sem
veiran notar til þess að smita og
bóluefnin eru gegn því. Vegna
þess að það eru svo margar breyt-
ingar sem sjást þar þá hafa menn
ákveðnar áhyggjur af því að þetta
af brigði muni hegða sér einhvern
veginn öðruvísi en við eigum eftir
að fá betri upplýsingar um það, þær
liggja ekki fyrir núna,“ segir hann.
Sum lönd hafa þegar gripið
til þess ráðs að herða takmark-
anir á landamærum vegna ótta við
af brigðið. Bretland og Holland hafa
til að mynda lokað tímabundið
fyrir ferðalög frá sex Afríkuríkjum
og Evrópusambandið skoðar nú
hvort banna eigi f lug frá áhættu-
svæðum til allra aðildarríkja. Þá
ætla Tékkland og Þýskaland einn-
ig að loka fyrir ferðalög frá þessum
löndum.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
segir færri en hundrað staðfest smit
af af brigðinu hafa fundist. Flest
þeirra hafa greinst í Suður-Afríku
en einhver hafa greinst í Hong Kong,
Ísrael, Botsvana og Belgíu.
Að sögn Þórólfs eru f lest lönd
ek k i með jafnumfangsmik lar
aðgerðir á landamærum og Ísland
og segir hann óljóst hvort herða
þurfi aðgerðir á landamærunum
enn frekar.
„Við erum með ákveðnar tak-
markanir í gangi en það er ekki
fyrirhugað af minni hálfu að fara út
í einhverjar hertar aðgerðir á landa-
mærunum. En við þurfum bara að
sjá hvernig þetta þróast og hvernig
þetta verður, hvort við þurfum að
grípa til einhverra slíkra aðgerða
eins og við vorum með áður, það er
óljóst á þessari stundu.“
Spurður hvort ekki sé varhugavert
að stöðva ferðalög frá ákveðnum
löndum eins og Suður-Afríku eða
öðrum Afríkulöndum segir hann
slíkar vangaveltur ekki tímabærar.
„Það er bara algjörlega ótímabært
að ræða eitthvað meira um þetta.
Við eigum eftir að fá upplýsingar
um þetta af brigði, hvað það þýðir,
hvernig það er og hvernig það hegð-
ar sér. Annað eru bara spekúlasjónir
og ég held að það sé best að sleppa
því, annars geta menn bara lent út
í mýri.“ n
Nýtt veiruafbrigði vekur ugg í Evrópu
Nokkur lönd, þar á meðal Bretland, loka tímabundið fyrir flug frá Afríkulöndum vegna afbrigðisins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þórólfur Guðna-
son, sóttvarna-
læknir
bth@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Meða l kost n-
aður íslenskra sveitarfélaga vegna
umhverfismála hækkaði um 43 pró-
sent í fyrra sem er mesta hlutfalls-
lega hækkun allra málaflokka milli
ára hjá sveitarfélögum.
Vífill Karlsson hagfræðingur segir
að þótt þessi staðreynd geti gefið
vísbendingu um að sveitarfélög séu
að bregðast við áhyggjum samtím-
ans af ógnum tengdum umhverfis-
málum í framtíðinni kunni nokkur
hluti skýringarinnar að liggja í átaki
sveitarfélaga varðandi opin svæði
og annað tengt.
„Það er líklegt að umhverfis-
málaþátturinn sem lýtur til dæmis
að garða- og frístundasvæði vegi
þarna nokkuð. Mér dettur í hug að
mörg þessara verkefna sem sveitar-
félögin réðust í vegna Covid hafi
einfaldlega tengst svona svæðum,“
segir Vífill og bætir við:
„Það þarf líka að benda á vægi
heildarkostnaðar í þessu samhengi.
Kostnaður vegna umhverfismála
er fremur lágt hlutfall af heildar-
útgjöldum sveitarfélaga, eða eitt-
hvað um tvö prósent,“ segir Vífill. n
Kostnaður vegna
umhverfismála
hefur rokið upp
Bjössaróló í Borgarnesi. Í Covid var fé
lagt í opin svæði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
NÝR CITAN
FRUMSÝNDUR.
Bíllinn er ríkulega búinn með sjö öryggispúða, MBUX
snjallútvarpi og snertiskjá, nýju aðgerðarstýri, LED aðalljósum,
„Hill start assist” og „Crosswind assist”, svo eitthvað sé nefnt.
Citan hefur fengið frábærar viðtökur í Evrópu og hlaut hin
eftirsóttu verðlaun „International Van of the Year Award 2022“
auk þess að vera með 5 stjörnur hjá Euro NCAP.
Opið í dag laugardag 12-16.
Askja · Krókhálsi 11-13, 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur Mercedes-Benz Ísland Atvinnubílar
á Facebook og Instagram.
6 Fréttir 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ