Fréttablaðið - 27.11.2021, Page 26

Fréttablaðið - 27.11.2021, Page 26
Ætla að reyna að koma með eitthvert ljós inn í tilveruna. Hún vissi að hún yrði gagn- rýnd og úthrópuð en hún trúði því að hún væri að gera rétt. Sama hefði að sjálf- sögðu átt að gilda núna. n Í vikulokin Ólafur Arnarson BJORK@FRETTABLADID.IS Búraosti á Slippbarnum Gratineraði Búraosturinn er synd- samlega góður, þakinn hunangi og hnetum og borinn fram með stökku brauði. Hentar vel fyrir grænmet- isætur og þau sem kjósa að neyta sjaldnar kjöts. Slippbarinn var nýlega opnaður aftur eftir lokun í kjölfar Covid og býður nú einnig upp á ljúffengan jóla-brunch um helgar.  Við mælum með Framsóknarflokkurinn er á góðri leið með að klúðra góðum kosninga- sigri sínum og virðist ætla að láta sér það lynda að samstarfsflokkarnir í ríkisstjórn, Vinstri græn og Sjálf- stæðisf lokkur, láti eins og sigur Framsóknar hafi alls ekki átt sér stað Framsókn bætti við sig 5 þing- mönnum, fór úr 8 í 13 og stækkaði þingflokk sinn um meira en 60 pró- sent, á meðan VG minnkaði sinn þingflokk um tæp 30 prósent – úr 11 í 8 þingmenn. Þrátt fyrir þetta afhroð Vinstri grænna fellst Framsókn á að VG leiði ríkisstjórnina áfram. Nú sem minnsti f lokkurinn af þessum þremur. Framsókn og Sjálfstæðis- flokkur ætla að sætta sig við hlutverk klapp stýru í nýrri vinstristjórn undir forystu formanns sósíalistaflokks. Vitanlega hefði verið í fullu sam- ræmi við úrslit kosninganna að sigurvegarinn myndaði nýja stjórn og fengi embætti forsætisráðherra. Árið 2013 fékk Ólafur Ragnar Gríms- son Framsókn stjórnarmyndun- arumboðið, þrátt fyrir að Sjálf- stæðisflokkurinn væri stærstur á þingi, vegna þess að Framsókn vann stærsta sigurinn. Sama hefði að sjálf- sögðu átt að gilda núna. Engu er líkara en VG og Sjálfstæð- isflokkur standi saman um að gera sem minnst úr sigri Framsóknar með því að koma í veg fyrir að flokkurinn leiði nýja ríkisstjórn. Raunar var engin þörf á þátttöku VG, sem kjós- endur höfnuðu, í nýrri ríkisstjórn. Framsókn er að klúðra sigri sínum Hinir f lokkarnir tveir gátu skipt þeim út fyrir flokk sem auðveldara hefði verið að ná málefnalegri sam- stöðu með. Fyrst sigurvegari kosninganna sættir sig við niðurlægingu við stjórnarmyndunina, rennur hinn stóri sigur Framsóknar f ljótt út í sandinn og nýtist ekki til framtíðar. Í pólitík verður að nýta meðbyr þegar hann gefst. Forysta Framsóknar- f lokksins er að gera stór pólitísk mistök núna. n Þórdís Elva Þorvaldsdóttir hefur í 15 ár helgað líf sitt og starf baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Segja má að hún hafi byrjað að vekja athygli í þessum viðkvæmu málum áður en það komst „í tísku“ – eða á þeim tíma sem þær sem höfðu hátt fengu holskefluna hressilega yfir sig. Segist Þórdís í viðtali í þessu tölublaði þekkja slauf- unarmenningu af eigin raun og á þá við þegar hún var sökuð um gerendameðvirkni eftir að bók sem hún skrifaði ásamt manninum sem nauðgaði henni þegar hún var 16 ára, kom út. Hún vissi vel að hún yrði gagnrýnd og úthrópuð en hún trúði því að hún væri að gera rétt. Hún vissi að fólk yrði reitt en var þess fullviss að samtalið yrði á endanum til góðs. Þórdís óttast ekki reiðina og segir hana hreyfiafl – en skilur aftur á móti að fólki finnist í dag vandratað í umræðu sem lituð er þessari miklu reiði. „En ef maður áttar sig á því að hún hefur tilgang og muni mögulega búa til betra samfélag fyrir börnin okkar, þá held ég maður hætti að líta á hana sem ógn,“ segir hún meðal annars í viðtalinu. n Hugrekki gegn reiði Jólakortum Með tilkomu samfélagsmiðla hefur hefðbundnum kortasendingum fyrir jólin fækkað. Einhverjir halda þó enn fast í hefðina og viðtak- endur fagna yfirleitt heitt ef falleg jólakveðja dettur inn um lúguna. Ef einhvern tíma var rík ástæða til að senda vinum og vandamönnum handskrifaða og hlýja jólakveðju þá er það nú á tímum heimsfaraldurs og einangrunar. Við mælum því með jólatónlist, jafnvel rauðvíns- glasi og kortaskrifum um helgina. n Tónlistarmaðurinn og leikar- inn Pétur Óskar Sigurðsson, eða Oscar Leone, eins og hann kallar sig á sviðinu, heldur tónleika í Húsi Máls og menn- ingar laugardagskvöldið 27. nóvember. ninarichter@frettabladid.is Á tónleikunum leikur Oscar tónlist af vænt- anlegri plötu sem hann hefur unnið að frá árinu 2019, og lofar að leika lög sem hafa ekki heyrst áður. „Ég og Tryggvi erum að fara að spila, ég einn með gítarinn og hann að hita upp. Þetta verður notalegt lítið gigg og ég ætla að reyna að koma með eitthvert ljós inn í til- veruna.“ Hann bætir við að hann ætli einnig að leika lög úr dýpstu rótum Amazonfrumskógarins. „Ég hef verið að gera seremóníur með mönnum frá Perú, það eru lög sem heila hjartað. Falleg, ævaforn lög.“ Opnaði þjóðarleikvang Oscar Leone er nýsnúinn til Íslands eftir tveggja mánaða Evróputúr, þar sem hann lék meðal annars við opnun þjóðarleikvangs Lúxemborg- ar. „Ég ætlaði að vera í þrjár vikur en það varð að tveimur mánuðum. Þetta er nýr markaður og ég er að reyna að opna hann.“ Ýmis tækifæri gerðu vart við sig í kjölfarið, og sér í lagi spilamennska fyrir góðgerðar- samtök. „Við vorum að spila til styrktar langveikum börnum og rannsókn- um tengdum þeim sjúkdómum. Það snerti hjartað.“ Hann segist þannig hafa farið frá því að spila á stórum leikvangi og yfir á tuttugu manna staði. Hann segist hafa tekið sjálfan sig í skoðun í kjölfarið og séð hlut- ina í nýju samhengi. „Ég fattaði að maður sjálfur skiptir ekkert rosa- lega miklu máli. Þarna kom áminn- ing um fyrir hvern og fyrir hvað maður er að gera þetta.“ n Spilaði fyrir veik börn og sá hlutina í nýju samhengi Oscar Leone ásamt Henri, hertoganum af Lúxemborg.Oscar Leone ásamt ungum aðdáendum sínum. Oscar Leone gerir allt klárt fyrir tónleika í Lúxemburg. 26 Helgin 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 27. nóvember 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.