Fréttablaðið - 27.11.2021, Page 40

Fréttablaðið - 27.11.2021, Page 40
Bókin virðist vera eins og kakka- lakki, lífseigasta formið, stendur allt af sér í kjarnorku- sprengingu tækninnar. Sverrir Norland Bókin er lífseigasta formið Margrét Jóna Guðbergsdóttir, vörustjóri ís- lenskra bóka hjá Pennanum Sverrir Norland rithöfundur Heiðar Ingi Svansson, for- maður FÍBÚT Þorvaldur S. Helgason tsh@fretta - bladid.is Jólabókaflóðið er fyrir löngu orðið einn af föstum liðum aðventunnar, en eins og svo margt annað hefur það farið fram í skugga heimsfaraldurs undanfarin tvö ár. Frétta- blaðið leitaði til þriggja sér- fræðinga innan bókmennta- heimsins til að ná utan um þetta merkilega fyrirbæri. Jólabókaf lóðið stendur nú í hæstu hæðum en þetta sérís- lenska bókmenntafyrirbæri á sér langa sögu sem teygir sig aftur til efnahagskreppu eftir- stríðsáranna og hefur staðið af sér tæknibreytingar og tískustrauma í rúm 75 ár. Í Bókatíðindum þessa árs er upp- runi jólabókaflóðsins reifaður í inn- gangi eftir Heiðar Inga Svansson, formann Félags íslenskra bókaút- gefenda (FÍBÚT). „Þá hefð að gefa bækur til jóla- gjafa má rekja til áranna eftir síðari heimsstyrjöld og eftir að hafa fengið sjálfstæði okkar frá Dönum árið 1944. Fyrstu ár nýfengins sjálfstæðis voru því ekki auðveld fyrir hið unga lýðveldi sem stóð nú frammi fyrir afar flóknum og krefjandi aðstæð- um. Þá dugði ekki að grípa til neinna vettlingataka þannig að efnahags- ástandið færi ekki úr böndunum.“ Settir voru á víðtækir kvótar og innflutningsbönn á ýmsar erlendar vörur, sem takmarkaði mjög úrval á gjafavöru. Pappír var hins vegar utan þessara hafta og jókst því mjög prentun íslenskra bóka, sem urðu vinsælar í jólapakkann. Flóðið aldrei fjölbreyttara Heiðar Ingi segir jólabókaf lóðið 2021 fara mjög vel af stað miðað við fyrri ár, titlum hafi fjölgað og úrvalið sé fjölbreytt sem aldrei fyrr. „Útgefnum bókum heldur áfram að fjölga samkvæmt fjölda skráðra titla í Bókatíðindum ársins 2021 og úrvalið hefur sjaldan eða aldrei verið fjölbreyttara. Um er að ræða umtalsverða fjölgun frá því í fyrra en aldrei fyrr hafa jafn margar nýjar raf- og hljóðbækur komið út. Útgáfa nýrra íslenskra skáldverka er líka í sögulegu hámarki en einnig fjölgar útgáfu ungmennabóka, þýddra skáldverka og fræðibóka.“ Samkvæmt tölum frá FÍBÚT er fjöldi skráðra titla í ár 985, sem er aukning upp á 122 bækur frá því í fyrra, samanborið við 861 árið 2020. Þó skal hafa í huga að þetta er ekki tæmandi listi um heildarútgáfu allra bóka á árinu og er ekki gerður greinarmunur á frum- og endur- útgáfum. Margrét Jóna Guðbergsdóttir, vörustjóri íslenskra bóka hjá Penn- anum Eymundsson, er sammála Heiðari Inga um að jólabókaflóðið fari vel af stað. „Við erum svona á svipuðu róli og í fyrra, nema það er minni sala í skáldverkunum. Það var líka mjög sterk útgáfa í fyrra. En árið 2020 var líka kannski svolítið skrýtið, fólk var mjög mikið heima og var kannski að panta eða kaupa bækur til að lesa sjálft,“ segir hún. Covid mögulega kjöraðstæður Að sögn Margrétar Jónu gekk jóla- bókaflóðið 2020 vonum framar, en athyglisvert er að samkomutak- markanir og heimsfaraldur höfðu síður en svo neikvæð áhrif á bók- sölu. „Jólabókaflóðið í fyrra var mjög gott og mun betra heldur en á r i n þ a r á undan. Bóksalan var mjög góð. Það eru alls konar breytur í þessu, fólk var til dæmis ekki að fara til útlanda og var að kaupa jólagjafir hérna heima,“ segir hún. Spurður hvort áhrif Covid hafi verið mildari við bókmenntir heldur en aðrar listgreinar segir Heiðar Ingi: „Kannski eru þetta búnar að vera að einhverju leyti kjöraðstæður fyrir rithöfunda, að skrifa í betra næði og einveru. En þetta ár í fyrra var að mörgu leyti líka mjög erfitt. Bókabúðir voru náttúrlega lokaðar að hluta til og sala á nýjum kiljum í Leifsstöð hrundi og hefur ekki náð sér upp aftur nema að hluta til. En á móti þessu kemur svo mikil aukn- ing í sölu og hlustun á hljóðbækur.“ Bókin er eins og kakkalakki Sverrir Norland er eins konar kameljón þegar kemur að bók- menntum, en hann star far jöfnum höndum sem rithöf- undur, útgefandi, gagnrýnandi og fyrirlesari. Sverrir hefur sjálfur þurft að fresta ýmsum viðburðum í tengslum við útgáfur sínar, en for- lagið hans, AM Forlag, sendi nýlega frá sér þrjár þýddar barnabækur, Heimili, Kva es þak? og Stysti dagurinn eftir Carson Ellis, auk myndasögunnar Eldhugar: Kon- urnar sem gerðu aðeins það sem þær vildu, eftir Pénélope Bagieu. „Það átti að vera bókamessa núna í Hörpu. Henni var frestað og sem lítill útgefandi sel ég alltaf svolítið á svona viðburðum, þannig að það var mjög leiðinlegt. Sumir af fyrir- lestrunum sem ég átti að vera með hafa frestast og viðburðir í kringum útgáfuna okkar. Allt þetta hefur svolítil áhrif, þannig að ég er orðinn ansi þreyttur á þessu. Þegar ríkis- starfsmenn taka ákvarðanir um að setja samkomutakmarkanir, þá kannski í sinni búbblu átta þeir sig ekki alveg á því, en þetta snertir menninguna mjög mikið,“ segir Sverrir. Spurður hvort hann telji að jólabókaf lóðið muni halda velli í skugga efnahagsþrenginga og minnkandi bók lesturs, segist Sverrir vera þreyttur á svartsýnis- spám og kýs sjálfur að sporna við þeim með jákvæðri orku. „Það er magnað hversu margir lesa, hugsa, hafa áhuga á bókum. Ég hef aldrei hitt neinn sem er ekki for- vitinn, sem langar ekki að kynnast nýjum hugmyndum, sögum. Bókin virðist vera eins og kakkalakki, líf- seigasta formið, stendur allt af sér í kjarnorkusprengingu tækninnar. Það er einfaldlega ekki hægt að betrumbæta hana eða færa lestrar- upplifunina, svo að vel sé, yfir á annað form. Þess vegna mun bókin lifa. En það þarf að venja yngra fólk á þenn- an lúxus, sem er að gefa sér tíma til að lesa. Sá sem situr einhvers staðar í símanum sínum virkar einhvern veginn ekki frjáls á mig, en sá sem er að lesa bók kýs að verja tíma með sjálfum sér og hugsunum höf- undarins. Það er svo fallegt. Ég trúi á þetta, þessa tengingu. Hún mun lifa.“ n Jólabókaflóðið í fyrra var mjög gott og mun betra heldur en árin þar á undan. Bóksalan var mjög góð. Margrét Jóna Guðbergsdóttir Þá hefð að gefa bækur til jólagjafa má rekja til áranna eftir síðari heimsstyrjöld og eftir að hafa fengið sjálf- stæði okkar frá Dönum árið 1944. Heiðar Ingi Svansson 201 Fjöldi skráðra bókatitla frá Félagi íslenskra bókaútgefenda Barnabækur myndskreyttar Barnabækur skáldverk Barnabækur fræðibækur/handb. Ungmennabækur Skáldverk íslensk Skáldverk þýdd Ljóð og leikrit Listir og ljósmyndir Fræðibækur/ handbækur Saga, ættfræði og héraðslýsingar Ævisögur og endurminningar Matur og drykkur Útivist, tómstundir og íþróttir 116 86 134 30 59 158 45 27 7 9 6 136 119 125 53 53 177 37 22 10 12 12 173 24 15 0 50 100 150 200 n 2020 861 bók samtals n 2021 985 bækur samtals 40 Helgin 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFréttablaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.