Fréttablaðið - 27.11.2021, Page 44
Bókaupplestur,
jólaævintýri,
jólalög og
jólasýning Hússins
Opnunartímar: 1. maí – 30. sept. alla daga kl. 11–18
eða eftir samkomulagi | sími: 483 1504 & 483 1082
info@byggdasafn.is | www.byggdasafn.is
Byggðasafn Árnesinga býður upp á notalega jólastemningu
á aðventunni. Upplestur rithöfunda og skálda, bókastund
fyrir börn, jólaævintýri, hátíðleg jólalög og jólasýning
Hússins. Jólaandinn verður á Eyrarbakka!
Skáldastund. Sunnudaginn 28. nóvember, klukkan 16:00,
lesa höfundar úr nýútkomnum verkum sínum. Í ár heimsækja
Húsið þau Harpa Rún Kristjánsdóttir, Einar Már Guðmundsson,
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, Haukur Ingvarsson, Inga
Kristjánsdóttir og Benedikt Jóhannsson.
Bókastund fyrir börnin! Laugardaginn 4. desember, klukkan
15:00, koma Bergrún Íris Sævarsdóttir og Gunnar Helgason
í skemmtilega heimsókn. Við lofum fjörugum upplestri og
fræðandi spjalli um bækur, lestur og teikningar.
Hátíðleg jólastemning. Laugardaginn 11. desember, klukkan
13:00. Sönghópurinn Lóurnar mun syngja undurfögur jólalög
og töfra fram sannkallaðan jólayl í hjörtum þeirra sem á hlýða.
Ævintýrið um Augastein. Jólaævintýrið dásamlega eftir Felix
Bergsson verður aðgengilegt alla aðventuna á heimasíðu
safnsins en jólasagan er í formi jóladagatals sem gaman er
að sameinast um að fylgjast með á aðventunni. Sagan byggir
á sögunum um sveinstaulana þrettán sem við þekkjum svo
vel og í sögunni finnum við svarið við því af hverju börn hér á
landi hafa mörg hver sett skó út í glugga rétt fyrir jól.
Jólasýning Byggðasafns Árnesinga verður opin
frá 13:00 – 17.00 helgarnar 27.-28. nóv., 4.-5. des.
og 11.-12. des., aðgangur ókeypis.
Á öðrum tímum er opið eftir samkomulagi.
Jól í Húsinu á
Eyrarbakka
Á Cyber Monday er hægt að
fá nánast hvað sem er með
afslætti og fyrir vikið er
auðvelt að falla í freistni og
fara fram úr sér. Þess vegna
er mikilvægt að skipuleggja
verslunina fyrir fram, eyða
ekki meira en maður hefur
efni á og vera á varðbergi
gagnvart svindli.
oddurfreyr@frettabladid.is
Það er mikilvægt að muna að
versla skynsamlega, þrátt fyrir öll
freistandi tilboðin í kringum Cyber
Monday. Það er auðvelt að kaupa
óþarfa og sóa peningum og það er
líka mikilvægt að hafa í huga hvaða
áhrif kauphegðun manns hefur á
umhverfið. Fjármálaráðgjafarfyrir-
tækið The Motley Fool tók saman
nokkur góð ráð fyrir neytendur í
tilefni dagsins.
Skipulag er lykilatriði
Það er gott að skipuleggja kaupin
vel og gera lista yfir alla hlutina sem
á að kaupa fyrir fram. Það er líka
grundvallaratriði að ákveða fyrir
fram hve miklu á að eyða og halda
sig við þá upphæð. Þetta eru tvö
bestu ráðin til að koma í veg fyrir að
kostnaðurinn fari úr hófi fram.
Svo borgar sig líka að fylgjast vel
með og grípa gæsina strax í dag
eða á morgun, því margar verslanir
byrja að bjóða upp á Cyber Monday
tilboðin sín yfir helgina í stað þess
að bíða þangað til á mánudag. Það
borgar sig ekki að bíða, því þá gætu
mest spennandi vörurnar sem eru á
tilboði klárast.
Það er líka alltaf gott að hafa
umhverfisáhrifin af neyslu sinni í
huga, sérstaklega þegar það er verið
að eyða meiru en venjulega. Munið
hvað þið eigið nú þegar og forðist
að safna hlutum sem er ekki þörf á
og að kaupa hluti sem koma langt
að sem er hægt að fá í nágrenninu,
til að takmarka kolefnisfótspor
neyslunnar.
Hugsið ykkur tvisvar um
Það er ekki gott að missa sig í
spenningnum yfir öllum góðu til-
boðunum og mikilvægt að muna
að það er hægt að fá næstum allt
með afslætti á Cyber Monday.
Það ætti því ekki að falla fyrir
tilboðum á hlutum sem er ekki
þörf fyrir. Þarna kemur innkaupa-
listinn góði að gagni.
Það borgar sig líka að huga
að gildum fyrirtækjanna sem
maður verslar við og velta fyrir
sér hvort þau samræmist manns
eigin gildum. Áður en þú pantar
vörur skaltu því spyrja þig tveggja
spurninga: „Myndi ég kaupa þetta
ef þetta væri ekki á útsölu?“ og
„Myndi ég styðja þetta fyrirtæki
með veskinu mínu ef það væri ekki
að bjóða svona gott tilboð?“
Mikilvægt að hafa varann á
Það er alltaf mjög mikilvægt að
passa sig á svindli þegar verslað er
á netinu, og í kringum kaupsvallið
sem fylgir Black Friday og Cyber
Monday verður rosaleg aukning
á alls kyns svindli, ekki síst í ár,
þannig að það þarf að fara mjög
varlega. Passið ykkur á fölsuðum
vefsíðum sem eru látnar líta út
eins og traustir aðilar og passið
ykkur á ótryggum vefverslunum.
Aldrei slá inn kreditkortaupplýs-
ingar á síðum sem bjóða ekki upp
á öruggan greiðslumáta og varið
ykkur sérstaklega á gylliboðum
sem hljóma aðeins of vel.
Það borgar sig heldur ekki að
versla með debetkorti á netinu, því
það er meiri vernd gegn óleyfi-
legum úttektum á kreditkortum
ef eitthvað fer úrskeiðis. En þegar
kreditkortið er notað og það þarf
ekki að hafa áhyggjur af því að
greiða strax, verður líka auðveld-
ara að eyða óvart um efni fram.
Þess vegna er mjög gott að vera
búinn að ákveða fyrir fram hvað á
að eyða miklu.
Síðast en ekki síst er mikilvægt
að muna að halda áfram að passa
sig á svindli eftir að kaupveislunni
er lokið. Svindlarar gætu haft sam-
band við fólk eftir Cyber Monday
og þóst vera að hafa samband frá
bönkum, greiðslukortafyrirtækj-
um eða verslunum til að fá nánari
upplýsingar um nýleg viðskipti.
Ef það er einhver grunur um
að mögulega séu óprúttnir aðilar
að hafa samband, er best að eiga
engin samskipti við viðkomandi
og hafa frekar beint samband við
þann aðila sem þeir segjast vera
fulltrúar fyrir. Þannig er hægt
að ganga úr skugga um að það
sé ekkert misjafnt á seyði. Ef það
kemur í ljós að svindlarar hafi haft
samband er gott að láta þann aðila
sem þeir eru að þykjast vera, vita
af því. n
Góð ráð fyrir Cyber Monday
Það er gott að
skipuleggja
verslunina vel
og gera lista yfir
alla hlutina sem
á að kaupa fyrir
fram. Það er líka
grundvallarat-
riði að ákveða
fyrir fram hve
miklu á að eyða
og halda sig við
þá upphæð.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Meðal góðra tilboða
núna benda þeir á
ryksuguróbóta, Nin-
tendo-tölvu, Air fryer-
potta, þráðlausa hátal-
ara, hljóðstöng fyrir
sjónvarp, GoPro-mynda-
vél og snjallúr.
Mögulega er hægt að gera góð kaup á ryksuguróbóta í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
elin@frettabladid.is
Cyber Monday, eða rafrænn mánu-
dagur, er í systkinahópi annarra
slíkra tilboðsdaga í nóvember.
Þessi dagur er mögulega síðasti til-
boðsdagur fyrir jól. Tilboð Cyber
Monday eru þegar farin að birtast í
vefverslunum.
Þegar horft er til sögunnar hefur
þessi dagur alltaf verið frábær til
að kaupa ýmiss konar tæki, eins
og snjalltæki og sömuleiðis gjafa-
kort. Fólk þarf að bregðast hratt
við bestu tilboðunum þar sem
framboð er yfirleitt takmarkað.
Þá er líka rétt að kynna sér verð
fyrir fram og gera verðsamanburð.
Rafrænn mánudagur er alltaf fyrsti
mánudagur eftir svartan föstudag.
Eitt af bestu tilboðunum á síð-
asta ári, samkvæmt vefmiðlinum
Insider, var til dæmis endurhlað-
anlegur raftannbursti frá Philips.
Hann kostaði upphaflega 29.999
krónur en var á 23.449 krónur á til-
boði hjá vefversluninni kohls.com.
Annað gott tilboð frá kohls.com
reyndist vera FujiFilm Instax Mini
myndavélapakki. Hann kostaði
15.750 krónur en var upphaflega á
18.340 krónur. Þá nefna þeir Keu-
rig K-Supreme Single Serve, litla
kaffivél, á 11.000 krónur, en hún
var áður á 18.340 krónur.
Insider segir að þegar þeir völdu
bestu tilboðin hafi þeir eingöngu
skoðað vörur sem uppfylla gæða-
standarda. Þeir skoðuðu heima-
síður Amazon, Best Buy, Target og
Walmart auk fleiri.
Meðal góðra tilboða núna benda
þeir á ryksuguróbóta, Nintendo-
tölvu, Air fryer-potta, þráðlausa
hátalara, hljóðstöng fyrir sjónvarp,
GoPro-myndavél og snjallúr.
Vegna þess hversu margir eru
farnir að versla á netinu á svörtum
föstudegi er ekki eins mikill
munur á þessum degi og áður
var. Báðir þessir dagar fara fram á
netinu en tilboð á Black Friday eru
líka í verslunum.
Rafrænn mánudagur hefst á
miðnætti aðfaranótt mánudags og
stendur í sólarhring. n
Góð kaup á rafrænum mánudegi
4 kynningarblað A L LT 27. nóvember 2021 LAUGARDAGUR