Fréttablaðið - 27.11.2021, Page 61
Icelandair leitar að leiðtogum til að slást í för með reynslumiklu og öflugu starfsfólki félagsins. Með sjálfbærni að leiðarljósi ætlum
við okkur að ná árangri til framtíðar með enn ríkari áherslu á jákvæða upplifun viðskiptavina og stafræna umbreytingu. Við horfum til fólks sem leggur
áherslu á að skapa sterka liðsheild og hefur ástríðu fyrir því að gera ferðalag viðskiptavina okkar ánægjulegt og áreynslulaust.
Framkvæmdastjóri þjónustu og markaðsmála
Chief Customer Officer
Framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar
Chief Digital Officer
Icelandair er eitt stærsta fyrirtæki landsins og fjölbreyttur vinnustaður í
alþjóðlegum rekstri. Hjartað í starfsemi félagsins er alþjóðlegt leiðakerfi sem
nýtir einstaka staðsetningu Íslands milli Evrópu og Norður Ameríku fyrir
hagkvæmar tengingar til, frá, um og innan Íslands. Áfangastaðir félagsins
eru rúmlega fjörutíu talsins og hjá félaginu starfa um 2.500 manns.
Svið þjónustu og markaðsmála vinnur að stöðugum umbótum
á upplifun viðskiptavina og styrkir markvisst jákvæða ásýnd
og ímynd Icelandair. Framkvæmdastjóri sviðsins skal hafa
víðtæka reynslu af stefnumótun í þjónustu og markaðsmálum,
vöruþróun, stafrænum umbótum, og þarf einnig að búa yfir
yfirburða leiðtogahæfni.
Stafræn þróun styður við allar einingar félagsins í þeirri vegferð
að stuðla að einföldu og ánægjulegu ferðalagi fyrir viðskiptavini
Icelandair. Sviðið hagnýtir stafræna tækni til þess að leggja
grunninn að bættri nýtingu gagna við ákvarðanatöku innan
félagsins. Framkvæmdastjóri sviðsins skal hafa reynslu af
stafrænni umbreytingu í alþjóðlegu og síbreytilegu umhverfi,
og þarf að búa yfir framúrskarandi leiðtogahæfni.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 7. desember.
Sótt er um störfin á hagvangur.is
icelandair.is
Stýrðu ferðalaginu
með okkur