Fréttablaðið - 27.11.2021, Blaðsíða 65
Ræsting á stofnunum
Akraneskaupstaðar
2022-2025
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í
ræstingu á 11 stofnunum, m.a. leikskólum,
söfnum, skrifstofum og félagsmiðstöðum.
Verktaki skal ræsta stofnanirnar reglulega og
ræsta einstök rými í samræmi við kröfur um
fjölda þrifdaga í hverri viku. Um er að ræða
hefðbundna ræstingu, m.a. á gólfflötum, borðum,
láréttum flötum, gleri og snyrtingum, og losun
ruslatunna. Þjónusta skal stofnanirnar virka daga
yfir allt árið utan skilgreindra hátíðardaga og
lokunardaga stofnunar.
Gólffletir eru samtals um 6.400 m2.
Samningstími er 1. apríl 2022 til 31. mars 2025
með heimild til framlengingar, samtals 4 ár.
Verkið er auglýst á EES. Útboðsgögn eru
aðgengileg á rafrænu formi frá fimmtudeginum
25. nóvember 2021 í gegnum útboðsvef
Mannvits: https://mannvit.ajoursystem.is/.
Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir
kl. 11:00 fimmtudaginn 13. janúar 2021.
Opnunarfundur verður ekki opinn bjóðendum, en
fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir
opnun tilboða.
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Útboð
Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í verkið:
Laugarvatn-Fráveita 1. áfangi
Verklok eru 15.10.2022
Verkið felur í sér lagningu vatns- og fráveitu á Laugar-
vatni. Grafa skal fyrir vatns- og fráveitulögnum og leggja
samanber útboðslýsingu.
Helstu magntölur eru:
Gröftur á lausu efni, brottekið 800 m³
Gröftur á lausu efni útjafnað við vinnusvæði 1.000 m³
Fylling undir og yfir lagnir 1.800 m³
Vatnsveitulagnir 1.260 m
Fráveitulagnir 820 m
Malbik 110 m2
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með
þriðjudeginum 30. nóvember 2021. Þeir sem hyggjast
gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Magnús hjá
eflu Suðurlandi með því að senda tölvupóst á netfangið
magnus.olason@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang,
síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvu-
pósti.
Tilboðum skal skila til skrifstofu Bláskógabyggð, Reykholti
806 Selfossi, fyrir kl. 10:30 þriðjudaginn 16. desember og
verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Kópavogsbraut 69. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 13. apríl 2021 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Kópavogsbraut 69.
Í breytingunni felst að rífa núverandi hús og byggja í staðinn parhús á einni hæð + kjallara á
þremur pöllum. Húsið verður í heild sinni 356 m², hver íbúð um 180 m². Mesta hæð byggingar-
reits frá aðkomuhæð verður 4,95 metrar. Gert er ráð fyrir engri bílageymslu og fjórum bílastæð-
um, tvö fyrir hvora íbúð. Eftir breytingu verður nýtingarhlutfall 0,49 á lóð. Kynningaruppdrættir í
mkv. 1:500 og 1:1000 dags. 25. nóvember 2021. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Kópavogsbraut 71. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 13. apríl 2021 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Kópavogsbraut 69.
Í breytingunni felst að rífa núverandi hús og byggja í staðinn parhús á einni hæð + kjallara á
þremur pöllum. Húsið verður í heild sinni 356 m², hver íbúð um 180 m². Mesta hæð byggingar-
reits frá aðkomuhæð verður 4,95 metrar. Gert er ráð fyrir engri bílageymslu og fjórum bílastæð-
um, tvö fyrir hvora íbúð. Eftir breytingu verður nýtingarhlutfall 0,49 á lóð. Kynningaruppdrættir í
mkv. 1:500 og 1:1000 dags. 25. nóvember 2021. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Ofangreind tillögur eru til kynningar á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is og í afgreiðslu
skipulagsdeildar Umhverfissviðs að Digranesvegi 1 frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtu-
daga og á föstudögum frá 8:30 til 13:00. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir
til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulags-
deildar Umhverfissviðs að Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.
is eigi síðar en kl. 12:00 þann 14. janúar 2022
Skipulagsfulltrúi Kópavogs
kopavogur.is
Auglýsing um breytt deiliskipulag
í Kópavogi.
Umhverfismat
Matsáætlun í kynningu
Íþróttasvæði Hauka að Ásvöllum í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar
vegna umhverfismats uppbyggingar á íþróttasvæði Hauka að Ásvöllum
í Hafnarfirði.
Kynning á matsáætlun: Matsáætlunin er aðgengileg á vef Skipulags-
stofnunar www.skipulag.is.
Umsagnarfrestur: Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt
umsögn. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 28.
desember til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða
með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Innkaupaskrifstofa
Sími 411 1111
ÚTBOÐ
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Elliðavogur/Ártunshöfði, svæði 1 og 2 – Gatna-
gerð og lagnir. Hönnun. EES útboð nr. 15332.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
FERÐAÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI
Óska eftir að kaupa hvers konar fyrirtæki
í ferðaþjónustu, einnig kemur til greina
að kaupa heimasíðu.
Vinsamlegast hafið samband
í síma 8214331 eða 8612319.
Erum við
að leita að þér?
ATVINNUBLAÐIÐ 19LAUGARDAGUR 27. nóvember 2021