Fréttablaðið - 27.11.2021, Síða 108
Hvers vegna verkjar mann í
handlegginn eftir örvunar
sprautuna?
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir
framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
„Þetta er mjög
algeng auka
verkun við allar
bólusetningar
og dæmi um að
fólk geti ekki
legið á hliðinni
þar sem það
fékk sprautuna
nóttina eftir.
Þetta er kallað eymsli á stungu
stað. Ef þú skoðar vef Lyfjastofn
unar sérðu að þetta er algengasta
aukaverkunin eftir allar bólusetn
ingar. Bóluefnið er gefið í vöðva
og það kemur bólgu svar í vöðv
anum við það að fá efni í sig og
svo er það blóðrásin í vöðvanum,
vöðvinn er svo blóðríkt líffæri svo
þetta fer þannig í blóðrásina. Það
vekur þetta svar á staðnum þar
sem þú ert sprautaður. Þannig að
þetta er bara ósköp eðlilegt.“
Ragnheiður segir að nú séu
einfaldlega allir í bólusetningu og
því eðlilegt að sumir heyri meira
af þessu nú en áður. „Og það er
eðlilegt að fyrstu nóttina sé erfitt
að sofa á þeirri hlið sem maður er
stunginn á, en svo hverfur þetta
yfirleitt á svona tveimur sólar
hringum og bólgusvörunin sem
verður í vöðvanum horfin. Þannig
að þetta er mjög eðlilegt!“ n
n Sérfræðingurinn
Berglind Ingvarsdóttir og
Tobba Ólafsdóttir hittu í
mark í fyrra þegar þær tefldu
í fyrsta sinn fram jóladagatali
með 24 myndum af fremstu
knattspyrnukonum heims.
Nú blása þær til leiks með
endurbættri útgáfu, þar sem
þær stilla upp öflugu jólaliði
íslenskra fótboltakvenna.
svavamarin@frettabladid.is
Þróttaramömmurnar Berglind
Ingvarsdóttir og Tobba Ólafs
dóttir bættu í fyrra úr að því er
virtist alþjóðlegum skorti á jóla
dagatölum með myndum af knatt
spyrnukonum, með því einfald
lega að hanna, prenta og gefa út
dagatal með myndaspjöldum af 24
knattspyrnukonum í fremstu röð
á heimsvísu.
Þær bæta um betur fyrir þessi jól
með nýrri og endurbættri útgáfu
þar sem Stelpunum okkar er tef lt
fram í samstarfi við KSÍ. „Hug
myndin er runnin undan rifjum
Berglindar,“ segir Tobba, en eftir að
Berglind hafði leitað árangurslaust
að fótbolta stelpudagatali fyrir
dóttur sína, ákváðu þær að bæta
úr þessum tilfinnanlega skorti á
fótboltaspjöldum með kvenfyrir
myndum.
Jóladagatalið í ár samanstendur
af 24 númeruðum umslögum og 48
fótboltaspjöldum sem skarta bæði
myndum og fróðleik um íslenskar
landsliðkonur fyrr og nú.
Töluðu við KSÍ
Berglind og Tobba gáfu dagatalið
með alþjóðlegu kvenfyrirmynd
unum í fyrra út til styrktar fótbolta
stelpum í 4. og 5. f lokki Þróttar sem
er hverfisliðið þeirra, „stórveldið
í dalnum“, en dætur þeirra æfa og
spila með liðinu.
„Þetta vakti gífurlega mikla lukku
í fyrra og við fundum fyrir miklu
þakklæti frá báðum kynjum. Við
fengum fyrirspurnir um það hvort
við myndum ekki láta framleiða
spjöld með íslenskum konum líka,
þar sem það flæðir allt í karlaspjöld
unum,“ segir Tobba og hlær.
Hún bætir við að þær hafi ákveðið
að setja sig í samband við KSÍ með
þessa hugmynd um að gefa aðdá
endum tækifæri til þess að kynnast
stelpunum í landsliðinu betur, þar
sem þær stefndu á EM í Englandi
sem síðar tókst.
„Hugmyndinni var tekið svona
líka vel að KSÍ óskaði eftir að við
myndum útfæra dagatalið og koma
þessum flottu kvenfyrirmyndum
áfram,“ segir Tobba, en Sara Björk
Gunnarsdóttir var eini fulltrúi
Íslands í síðasta dagatali og var þá
að sjálfsögðu númer 24.
Stelpur í sókn
Tobba seg ir t i lgang inn með
myndaspjöldum að sýna ungum
stúlkum hvað fótboltakonurnar
hafa verið að gera. „Að þær geta
farið í fæðingarorlof, dottið út í
eitt eða tvö ár, og komið aftur til
baka og stundað sína íþrótt sem
mæður.“
Tobba bendir á að það vilji einmitt
þannig til að Sara Björk er í þessari
stöðu akkúrat núna þegar dagatalið
kemur út. „Sem var skemmtileg til
viljun,“ bætir Tobba við og áréttar að
enginn annar framleiði slík kvenna
spjöld hér landi.
Þróttaramömmurnar tvær fagna
breyttri umræðu um konur í íþrótt
um og segja töluverða breytingu hafa
orðið á þessum sex árum sem dætur
þeirra hafa æft fótbolta. „Hlutfallið
er alltaf að jafnast út í umræðunni, í
fréttum og á fleiri stöðum.“
Kátar landsliðskonur
„Við færðum Söndru Sigurðar
dóttur, Margréti Láru Viðarsdótt
ur, Öglu Maríu Albertsdóttur og
Fanndísi Friðriksdóttur spjöldin í
vikunni og höfum fengið afar fal
legar og góðar viðtökur frá f leiri
landsliðskonum,“ segir Tobba glöð.
Þegar Berglind leitaði til Tobbu
með hugmynd sína í fyrra voru
heimatökin hæg, þar sem hún og
Sæþór, eiginmaður hennar, reka lista
galleríið og prentverkstæðið Farva í
Þróttarahverfinu, og þar er hægt að
nálgast dagatalið. Bæði í versluninni
í Álfheimum og á farvi.is. n
Stelpurnar okkar með fyrirmyndar
skriðtæklingu á jóladagatalavellinum
Berglind og Tobba ásamt Margréti Lóu, Steinunni Klöru, Baldri Páli og Sölku Elínu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nú verður hægt að telja niður til jóla með landsliðshetjunum Fanndísi, Söndru og Margréti Láru. MYNDIR/AÐSENDAR
Brjálæði í Napólí
toti@frettabladid.is
Viktoría Her-
mannsdóttir
dagskrárgerðar-
kona
„Ég var að byrja
að horfa á ítölsku
þættina Gom
orrah, eftir að
hafa verið í Nap
ólí í síðustu viku,
en er ekki viss um að ég klári af því
þetta er aðeins of brjálað fyrir mig.
Síðan er ég líka að horfa á frábæru
þættina Dagur í lífi og svo fara
jólamyndirnar að detta inn með
krökkunum núna um helgina.“ n
n Á skjánum
22.-28. NÓVEMBER
Af yfir 1000 vörum
75%Afsláttur
Allt að
Af fartölvum
Allt að
20%
Afsláttur
Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
OPIÐ
10-18
ALLA HELGINA
I
ALLA HELGINA
68 Lífið 27. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 27. nóvember 2021 LAUGARDAGUR