Heilsuvernd - 01.05.1947, Blaðsíða 16
8
HEILSUVERND
sé að koma í veg fyrir krabbamein og aðra menningar-
sjúkdóma með réttum lifnaðarháttum, og lienni er það
ljóst, að fyrsta sporið i þá átt er aukin þekking alþýðu
manna. Hún lætur því einskis ófreistað til að útbreiða
þessar skoðanir, og' hefir m. a. farið fyrirlestraferðir lil
Svíþjóðar og Noregs.
Humlegaarden.
Heilsuhæli dr. Nolfi í Humlegaarden getur tekið 35
gesti og er alltaf fullskipað. Þau hjónin keyptu þennan
stað, sem líktist gömlu prestssetri. Þau endurbættu og'
juku húsakynnin, byggðu m. a. nokkur sólskýli, sem eru
kennd við merka manneldisfræðinga og lækna, svo sem
Hindhede, Arbuthnot Lane, Kellogg, Alexis Carrell,
Are Waerland og Bircher-Benner, og merkt nöfnuni
þeirra.
Landareignin er ekki stór, landið skógi vaxið og skjól-
gott, ekki steinsnar út að hinu fagra og slétta Eyrar-