Heilsuvernd - 01.05.1947, Blaðsíða 24

Heilsuvernd - 01.05.1947, Blaðsíða 24
1(5 HEILSUVERND um þessa lækningu og sýna örið, en ég var auðvitað í þessu félagi. En ég fékk blákalt nei við þeirri beiðni. Þá rit- aði ég grein um reynslu mína og sendi liana tímariti lækna, „Ugeskrift for Læger“. Sama svarið, greinin fékkst ekki birt þar, og jafnframt var mér ráðlagt, að birta ekkert um þetta i dagblöðum. Einum velviljuðum starfsbróður mínum tókst þó að fá birta grein um þetta í einu blaði. Eftir þessar undirtektir ritaði ég nú lítið kver, sein ég kallaði „Þgðing hráfæðu í heilbrigði og sjúkdómum“ og seldist upp á stuttum tíma í tveimur útgáfum. Dag- blöðin tóku kverinu vinsamlega, en læknablaðið réðist á mig í stuttum ritdómi um kverið, varaði við því og líkti mér við skottulækna. Þessari árás svaraði ég með stuttri blaðagrein. (Þýtt úr „Levende Föde“). Heilhveitibrauð með hveitihýði. 1000 gr. heilhveiti; 250 gr. hveitihýði (klíð); 1 lítri vatn (mjólk, undanrenna); 4 litlar tesk. (kúfaðar) þurrger; 1 tesk. sykur. Gerið ásamt sykrinum er leyst upp i (4 bolla af 30 stiga heitu vatni. Hrært saman við vökvunina, sem á að vera 35 stiga heit. Heilhveiti og hýði blandað saman og vökvunin lirærð saman við % af því. Látið standa á hlýjum stað og lyfta sér í 2—3 klst. og breytt yfir á meðan. Þá er afgangurinn af mjölinu hnoðaður saman við og hnoðað, þar til deig'ið er orðið mjúkt og sprungu- laust. Bakað í 1 klst. við fullan hita. Græskulaust gaman. Bóndakonan (við lyfsalann): Skrifið þér nú greinilega á glös- in, hvort þeirra á að vera handa manninum mínum og hvort Iianda hestinum. Ég.má ekki við því, að blessaðri skepnunni hlekkist neitt á fyrir mistök, svona rétt í byrjun vorannanna. Maðurinn: Hvernig líður lionum veika frænda þínum, dreng- ur minn? Drengurinn: Honum líður illa, hann er dáinn.

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.