Heilsuvernd - 01.05.1947, Blaðsíða 29

Heilsuvernd - 01.05.1947, Blaðsíða 29
HEILSUVERND 21 það er óhætt að segja, að heilsu okkar sé vel horgið, með- an þessir vinveittu gerlar liafa yfirhöndina, því að heilsu- far okkar er að miklu ieyti komið undir bakteríugróðr- inum i ristlinum. Ef rotnunarbakteríurnar ganga með sigur af hólmi og verða í meiri liluta, hreytist ristillinn í einskonar sorpræsi, fullt af rotnandi matarleifum, og endaþarmurinn verður að nokkurskonar salernisfötu, þar sem þessi rotnandi matarúrgangur liggur klukku- stundum og sólarhringum saman. Skaðleg eiturefni, sem myndast við rotnunina, síast í sífellu inn i sogæðavökva og blóð og berast síðan um allau líkamann. Þegar til lengdar lætur, leiðir óumflýjanlega af þessu margskon- ar sjúkdóma, þannig að ristillinn og endaþarmurinn verða réttnefndar sóttkveikju- og sjúkdómauppsprettur. Hlutverk lifrarinnar. Þegar meltingin i þörmunum er um garð gengin, síast þau efni, sem ætluð eru til að næra frumurnar, inn í hinar örsmáu blóð- og sogæðar, er liggja sem þéttriðið uet í þarmaveggjunum. Þessar smá- gerðu æðar sameinast í aðrar stærri, er renna síðan sam- an í stóran.æðastofn, sem nefnist portæðin (vena portae). Ilún flytur blóðið til lifrarinnar, sem hreinsar það, til þess að skaðleg efni, sem i því kunna að vera, berist ekki út um líkamann. Jafnframt breytist nokkuð af þeim þrúgusykri (glucosum), sem blóðið flytur með sér frá þörmunum, í einskonar sterkju, sem nefnd er glykogen og safnast fyrir í lifrinni sem forðanæring, er líkaminn getur gripið til, ef þörf krefur. Breytist þetta glykogen aftur i þrúgusykur fyrir tilverknað vissra efnakljúfa í lifrinni og' flyzt með blóðinu til líkamsvefjanna. Lokastig meltingarinnar. Frá lifrinni fer blóðið eftir öðrum æðastofni til neðri greinar holæðarinnar (vena cava), sem flytur það inn í hægra forhólf hjartans. Það- an fer það inn í hægra afturliólf og úr þvi út í lungna- slagæðina, sem flytur það til lungnanna, þar sem það telc- ur í sig súrefni. Að því loknn berst það eftir lungnablá- æðnnum inn í vinstra forhólf hjartans, og þaðan er því

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.