Heilsuvernd - 01.05.1947, Side 25

Heilsuvernd - 01.05.1947, Side 25
Meltingin Eins og allir vita, verður fæðan fyrir stöðuguin breyt- ingum í meltingarfærunum, sem til þess eru ætlaðar að gera liana liæfa til að gegna liinum margvíslegu lilut- verkum sínum. Við getum fylgzt með þessum breyting- um í stórum dráttum og sýnt fram á, hve fljótt þær ganga í Iiverjum liluta meltingarfæranna fyrir sig. En þessir hlutar eru: Munnurinn ásamt tönnum og tungu, kokið, vélindið, niaginn, skeifugörnin, smáþarmarnir, ristillinn með botnlanganum og' liinni ormlaga botnlanga- totu (appendix), endaþarmurinn og að lokum enda- þarmsopið. Meltingin liefst í munninum með því að fæðan cr tugg- in og blönduð munnvatninu. En í því er efnakljúfur (enzvm), sem ptyalín nefnist og getur leyst upp sterkju, aðalefnið í kartöflum, brauði o. s. frv. Breytist sterkjan þá í dextrin og' einskonar sykur, sem heitir maltsykur. Til þess að ptyalínið komist sem bezt að sterkjunni í fæðunni, er því nauðsynlegt að tyggja matinn rækilega. Þá er og rétt að benda á það, að þegar maturinn er illa tugginn, verður ptyalínið, sem fvlgir honum niður í maga, brátt óvirkt vegna sýrunnar í magasafanum, svo að sterkjan fer ekki að breytast í nýtilega næringu fyrr en niðri í skeifugörn fyrir álirif brissafans. Önnur sönnun fyrir því, live mikilvæg tyggingin er fyrir meltingu sterkjunnar, er það, að ptyalíns verður fyrst vart í munn- vatni ungbarnsins um það leyti, er það fer að taka tenn- ur, þ. e. a. s. um 7 mánuðum eftir fæðinguna. Þegar fæðan hefir verið tuggin, safnar tungan henni saman og ýtir lienni aftur í kokið og niður í vélindið, sem

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.