Heilsuvernd - 01.05.1947, Qupperneq 37
HEILSUVERND
29
kjálkabörS og háls, og mér var ekki farið að lítast á blikuna.
Og ekki bætti það úr skák, að ég heyrði tröllasögur af mönn-
inn, sem höfðu gengið með þennan ófögnuð árum saman. Ég
var satt að segja hálfvegis farinn að óska þess, að ég væri orð-
inn að kvenmanni.
Þegar Jónas Kristjánsson kom heim úr sumarleyfi sínu, fór
ég til lians og sagði honum mínar farir ekki sléttar. Við verðum
víst að reyna að sjóða þetta úr þér, sagði hann og smellti mér
í heitt hað og vafði mig svo teppum, ])egar ég var orðinn vel
sveittur. Þetta endurtók sig daglega i fáeina daga, en úthrotin
sátu sem fastast. Eitt sinn harst það í tal, að ég notaði
ennþá áburðinn, sem mér var síðast gefinn. Hættu undir eins
við það, sagði læknirinn, áburðurinn vinnur á móti höðunum,
sem hafa það tvöfalda hlutverk, að opna og hreinsa húðina og
lileypa í gegnum hana skaðlegum óhrcinindum og eiturefnum
úr hlóðinu, og liinsvcgar að hækka líkamshitann og lama þann-
ig eða drepa bakteríurnar, sem skeggsýkinni valda.
Eg lét ekki segja mér það tvisvar að varpa smyrslunum fyrir
borð. Daginn eftir var farið að slá á útbrotin, og eftir vikutíma
voru þau horfin.
Fjársöfnun í Heilsuhælissjóð NLFÍ
er nú að hefjast að tilhlutun stjórna félagsins og sjóðsins. Von-
andi verður þess ekki langt að hiða, að upp geti risið visir að
heilsuhæli á hinni skemmtilegu jörð félagsins, Gröf í Hruna-
mannahreppi. Er mikils um vert, að menn liggi ekki á liði sínu
og ljái þessu nauðsynjamáli fylgi sitt, ekki aðeins félagsmenn,
heldur allir landsmenn.
Um miðjan maímánuð var haldinn basar, sem félagskonur
höfðu ailan veg og vanda af að koma upp. Þá verður hráðlega
Iileypt af stokkunum myndarlegu happdrætti. Er þess vænst, að
hver félagsmaður taki að sér að selja nokkra miða, og ef cin-
hverjir kaupendur HEILSUVERNDAR, sem ekki eru félagsmenn,
kynnu að vilja veita aðstoð sína við sölu happdrættismiða, þá
eru þeir vinsamlega beðnir að gefa sig fram við framkvæmda-
sljóra happdrættisins, Pétur Pétursson, útvarpsþul, Meðalholti 5,
simi 6248, eða við einhvern úr happdrættisnefnd, en liana
skipa: Frú Guðrún Þ. Björnsdóttir, Háteigsveg 14, sími 2986;
Björgólfur Slefánsson, kaupmaður, Laugaveg 22 A, simi 3628, og
fíjörn L. Jónsson, veðurfræðingur, Mánag. 13, sími 3884.
Merkjasöludag hefir sjóðurinn 1. sunndag i júní. Þá hafa
verið gefin út falleg' minningarspjöld (sjá mynd í 1.—2. hefti),