Heilsuvernd - 01.08.1948, Blaðsíða 15
Björn L. Jónsson:
Á námskeiði hjá
Are Waerland
Eins og lesendum HEILSUVERNDAR er kunnugt, hefir
Are Waerland, með bókum sínum, ritgerðum og fyrirlestr-
um undanfarin 10 -15 ár, vakið öfluga heilsubótarhreyf-
ingu í Svíþjóð. Þúsundir manna hafa samið sig að matar-
æði hans og lifnaðarháttum, og enginn veit tölu þeirra,
sem vaknað hafa til umhugsunar um þessi mál og breytt
meira eða minna um lífsvenjur.
Með hverju árinu hefir tala þeirra manna aukizt, sem
leitað hafa til Waerlands eða samstarfsmanna hans, munn-
lega eða bréflega, um ráð við hinum og þessum sjúkdóm-
um. Vegna annarra starfa hefir Waerland orðið að vísa
flestum slíkum tilmælum á bug hin síðari árin, og er hon-
um fyrir löngu orðin ljós nauðsyn þess, að sjúkir menn og
aðrir, hvar sem er í Svíþjóð, er vilja breyta lífsháttum
sínum í samræmi við kenningar hans, eigi þess kost að
ráðgast um við einhvern, sem hafi kynnt sér rækilega að-
ferðir hans, undir handleiðslu hans sjálfs. 1 þessu skyni
efndi hann til námskeiðs þess, sem getið var um í síðasta
hefti og sagt verður frá hér á eftir.
Námskeið þetta var haldið 1. -15. ágúst í lýðháskóla hjá
þorpinu Jákobsberg, sem liggur hálftíma járnbrautarferð
norðvestur af Stokkhólmi. Á námskeiðið voru teknir þeir