Heilsuvernd - 01.08.1948, Blaðsíða 20
12
HEILSUVERND
farið yfir ritgerðirnar, sendir hann þeim, sem hann telur
hæfa, skírteini þess efnis, að hann heimili þeim að veita
leiðbeiningar í samræmi við stefnu hans og kenningar.
Það er hugsanlegt, að menn, sem hafa kynnt sér rit Waer-
lands af einhverju handahófi, leggi það fyrir sig að gefa
sjúkum mönnum ráð, og getur það verið varasamt, bæði
fyrir sjúklinginn og komið óorði á kenningar Waerlands,
ef illa tekst til. En skírteini þau, sem nefnd voru, eru
sjúklingnum trygging fyrir því, að handhafi þess hafi
kynnt sér aðferðir Waerlands frá fyrstu hendi. Waerland
lagði mikla áherslu á það, að gæta yrði mjög mikillar var-
úðar, einkum þegar um alvarlega sjúkdóma væri að ræða,
og yrði þá að krefjast þess, að sjúklingurinn stæði stöðugt
undir lækniseftirliti. Það var og tekið fram, að enginn
mætti taka þóknun fyrir aðstoð þá, sem kynni að verða
veitt, né líta á sig sem lækni, heldur aðeins sem leið-
beinanda. Hugmynd Waerlands er að halda slíkt námskeið
á hverju ári, og verður þess þá ekki langt að bíða, að hver
bær og hver sveit í Svíþjóð hafi einn eða fleiri „kunnáttu-
menn“ á þessu sviði innan sinna vébanda.
Síðasta kvöldið var haldin skilnaðarsamkoma. Þar var
þeim Waerland og konu hans færðar gjafir og flutt ávörp,
ræður og mörg falleg frumsamin kvæði. Einn nemandinn
sýndi skuggamyndir, landslagsmyndir í litum, teknar af
honum sjálfum, og jafnframt las hann kvæði, ritningar-
greinar o. s. frv., og stundum var leikið undir á píanó. Eru
þetta einhverjar þær gullfallegustu myndir og einhver
hin hugðnæmasta myndasýning, sem eg hefi séð. Þarna
flutti Waerland eina af sínum afburðasnjöllu ræðum.
Margir þeirra — eða flestir — sem námskeiðið sóttu,
höfðu tekið út sinn skerf af sjúkdómum og þjáningum, þótt
ungir væru. En samt kom það berlega í ljós, að það var
ekki af umhyggju einni fyrir munni og maga eða líkam-
legri heilbrigði, sem þeir voru þarna komnir. „Waerlandism-
inn“ er annað og meira en kenning um það, hvernig menn
eiga að borða og halda líkama sínum heilbrigðum. Hann