Heilsuvernd - 01.08.1948, Blaðsíða 27
HEILSUVERND
19
og röng fræðsla. Og öll íslenzka þjóðin hefir heyrt um þau
raunalegu sannindi, að íþróttamenn okkar eru í þeim flokki,
sem var einna lakastur að líkamsþreki, af þeim 59 þjóðum,
sem sóttu ólympíuleikina í London 1948. Eg álít, að förin
til London hafi verið farin m. a. til þess að fá úr því skorið,
á hvaða stigi við værum í líkamsrækt og líkamsþreki, sam-
anborið við aðrar þjóðir. Nú vitum við það. Og nú er að
taka upp nýtt starf með breyttum aðferðum, svo að hér
vaxi ekki upp skræfur, heldur vel hraust þjóð, sem getur
sagt með sanni: Island fyrir Islendinga!
G. E.: Gekkst þú ekki að sið forfeðra okkar á konungs-
fund?
S. P.: Nei, ekki að þessu sinni. En eg dvaldi með 60
Islendingum undir forustu Guðjóns Einarssonar á Green
Park Hotel — og þeir eru allir af konungakyni.
G. E.: Þú sagðir áðan, að þú værir gamall og elliær,
en fyrir mér lítur þú út sem ungur maður.
S. P.: Það er sökum þess, að eg lifi á kjarngóðri fæðu,
og eg hefi hreint blóð í æðum, sem eg hefi fengið af því
að nota Álann. — Hann útrýmir sýklunum úr blóði mann-
anna. — Hann losar kvefið, hálsbólguna og ýmsar bólgur í
líkamanum og rekur út berklana.
G. E.: Eg þakka þér, Sigurjón, fyrir þinn hlut í þessum
íþróttaþætti. Þú hefir þínar sérskoðanir og lætur þær í
ljós af einlægni og með festu, sem hefir verið þitt aðals-
merki gegnum árin.
NÝJAR FÉLAGSDEILDIR.
Sunnud. 25. april var stofnuð deild í Ólafsfirði. Voru stofnendur 38,
en síðan hefir félagsmönnum fjölgað um helming. 1 stjórn eru:
Formaður Kristinn Pálsson, verkamaður. Meðstjórnendur: Ágúst
Jónsson, byggingam., Gunnlaugur Jónsson, framkvstj., frú Sigríður
Pálmadóttir og frú Sumarrós Sigurðardóttir.
Þá hefir verið ákveðið að stofna deild á Sauðárkróki.