Heilsuvernd - 01.05.1960, Blaðsíða 12

Heilsuvernd - 01.05.1960, Blaðsíða 12
10 HEILSUVERND andlegs lífs og okkar jarðar — úr þjóð að skapa, það er markið, — málefnið, sem mestu varðar!“ Það er þessi „heilsuaðall heima tveggja“, sem Jónas Kristjánsson barðist fyrir að skapa með svo fágætum áliuga og árangri, að þjóðfrægt er orðið. Hann vildi gera menn matvísa, kenna þeim að næra líkami sína á réttan hátt, ekki aðeins til þess að gera þá að heil- brigðum dýrum, ef svo mætti segja, heldur til þess að þeir mættu verða nýtir og göfugir þjóðfélagsþegnar og hlutgengir vel í heimi andans. Hann sá í anda mann framtíðarinnar — líkamlega hraustan og fagran og andlega heilbrigðan, víðsýnan, vitran og góðan. Fyrir þessa hugsjón lifði hann og starfaði. Ég veit ekki, hvort mörgum er kunnugt um það, að hann nefndi þetta heilsuhæli „Breiðablik“. Breiðablik var bústaður Oðins, vizkuguðsins. Þaðan sá um heima alla. Með þessu nafni vildi Jónas alveg vafalaust segja frá því á táknrænan hátt, að hann óskaði þess, að hér væri þann veg lifað og starfað, að af þvi ljómaði um víða vegu, og jafn- framt, að andlegt útsýni væri héðan sem víðast og feg- urst. Hann trúði á hið guðræna eðli mannsins, og á það, að leiðin til þess lægi í gegnum líkamlega og andlega heilsurækt, eftir því sem bezt væri vitað á hverjum tíma. — „Dauðinn er vís hinum fædda og fæðing er vís hinum dána. Fyrir því skaltu ekki bera kviðboga fyrir sköp- um þeim, sem ekki má renna.“ Þannig segir i Háva- málum Indíalands. — Og hér er ekki heldur ástæða til þess að syrgja, heldur miklu fremur til þess að fagna. „Líkamsbúa verður ekki tortímt,“ eins og segir i hinum indversku Hávamálum, og gott er nú vini vorum að lifa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.