Heilsuvernd - 01.05.1960, Qupperneq 42

Heilsuvernd - 01.05.1960, Qupperneq 42
10 HEILSUVERND Skagfirðinga með þeirri yfirlýsingu, að það sem hann ætti eftir af aldri og orku, ætlaði hann að nota til þess að vinna að því, „að lifað sé eftir lögmálum náttúrunn- ar“. Ekki er líklegt, að öllum hafi verið ljóst, livaða starfsstefna hér var i raun og veru tekin, né livað i lienni fólst eða hvaða árangurs mátti vænta, sem hann þó teldi einhvers virði, slíkur kappsmaður, sem liann var um árangur af störfum sínum, maðurinn fast við sjötugs aldur. Ifann fór beina leið út í lönd, sem hann hafði oft gert á embættisferli sínum og snemma árs 1940 stofn- aði hann Náttúrulækningafélag Islands i Reykjavík, og veittu 30 menn úr þeirri byggð honum atbeina við félagsstarfsemina. Hann hafði þá fyrir mörgum árum veitt því athjrgli, að til var lækningastefna, sem einlcum fólst í vernd lieilsunnar, svo sjúkdómastríðinu mætti linna að meira eða minna leyti. Þetta taldi liann aðalatriði heilhrigð- ismálanna, og að þessum þætti þeirra þyrfti að snúa sér meira en verið hafði. Þetta var þá þegar mikil fræði- grein, sem mest sneri að næringunni, sem byggir upp líkamann og viðheldur honum. Svo snemma tók liann að kynna sér þessa fræðigrein, að h. 10. marz 1923, hélt liann fyrirlestur i Framfarafélaginu, er stóð í hálfan annan klukkutíma um þessi nýju læknavís- indi, og kom það fram, að þá þegar vissi hann megin- efni allra þeirra fræða i heilhrigðismálunum, sem hér var um að ræða, og sem síðan hafa aðeins staðfestst en ekki umbreytzt, svo máli skipti. Sýnir þetta hversu mikla athygg'ju Jónas lagði í allar greinar læknavís- inda, og' honum þótti sú spekin bezt, að byrgja brunn- inn, áður en barnið dytti ofan í hann. Starfsemi Náttúrulækningafélagsins er nú vel þekkt með þjóðinni. Menn verzla i búð þess í Reykjavik, dvelja á heilsuhæli þess i Hveragerði og lesa rit þess, sem gefin hafa verið út, næstum frá fyrstu starfsdögum þess.

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.