Heilsuvernd - 01.05.1960, Síða 49
HEILSUVERND
47
beini veittur af mikilli rausn. Þegar Jónas flutti með
'fjölskyldu sína til Reykjavíkiir árið 1938 kvöddu
Skagfirðingar læknisfjölskylduna með veglegu og fjöl-
mennu samsæti á Sauðárkróki. Þar, sem oftar, kom
greinilega fram, hve vinsældir Jónasar og fjölskyld-
unnar allrar voru miklar og innilegar hjá Skagfirðing-
um og hvað þeir voru honum þakklátir fyrir öll störfin
í Skagafirði.
Þegar Jónas flutti til Reykjavíkur, var hann orðinn
68 ára og búinn að ljúka miklu og' erfiðu verki að
gegna þreytandi læknisstörfum í 37 ár í víðlendum
og erfiðum læknishéruðum. Þrátt fyrir það voru starfs-
kraftar hans óskertir og áhuginn fyrir heilbrigðismál-
um þjóðarinnar þrotlaus. Hann lielgaði náttúrulækn-
ingastefnunni þá óskipta krafta sína og vann ótrú-
lega mikið verk á því sviði. Hann var faðir þessarar
stefnu liér á landi og markaði liana skýrt og hiklaust.
Hann liafði foryslu um stofnun Náttúrulækningafélags
Islands árið 1939 og var forseti þess til dauðadags.
Kenning hans og náttúrulækningastefna er fyrst og
fremst fólgin í þvi að hrýna fyrir fólki að lifa sem
mest á náttúrulegri lifandi jurtafæðu og á þann hátt
koma í veg fyrir ýmsa þá svokölluðu menningarsjúk-
dóma, sem svo mjög þjá mannkynið nú til dags og
orsakast að meira eða minna leyti af rönguin lifnaðar-
háttum.
Eitt af hans mestu áhugamálum var að koma liér
upp hressingarhæli á vegum Náttúrulækningafélags-
ins. Þessi stórliuga ósk hans rættist með byggingu
Heilsuhælis Náttúrulækningafélags Islands í Hvera-
gerði, aðallega fyrir ötula forustu og dugnað Jónasar
í þessu máli ásamt fórnarlund, því hann gaf allar sín-
ar eignir til heilsuhælisins.
Nú þegar Jónas Kristjánsson er allur, er margs að
minnast og mikið að þakka. Það var bæði lærdóms-
rikt og göfgandi að kynnast jafn stórbrotnum manni