Heilsuvernd - 01.05.1960, Síða 15
HEILSUVERND
13
Sauðárkróki 1913. — Frá vinstri til hægri: Jón Thoroddsen
(Skúlason), Jónas Kristjánsson, Hansína Benediktsdóttir, Jónína
Helgadóttir, Ásta Jónasdóttir, Guðmundur Kristjánsson, Jónina
(Christie).
dóttir, var manni sínum mjög samlient og voru þau
hjónin sérstaklega barngóð. enda var þar jafnan stór
hópur barna, auk þeirra eigin barna.
Meðal þeirra mörgu mála. er Jónas læknir lét til sín
taka, voru uppeldismál. Hann vildi hjálpa æskunni til
að verða hraustir þjóðfélagsþegnar. — Hann lét ekki
við það sitja að skrifa og ræða um hlutina. Jónas var
framkvæmdanna maður og 2. janúar 1929 stofnaði
hann æskulýðsfélag er nefnt var Tóbaksbindindisfélag
Sauðárkróks. Félag þetta starfaði með miklum krafti í
mörg ár og var Jónas formaður þess. Sem dæmi um
það hvað Jónas lagði á sig fyrir félagið, vil ég geta
þess, að hann þýddi Skógarsögur Kiplings, sem er mikið