Heilsuvernd - 01.05.1960, Síða 54

Heilsuvernd - 01.05.1960, Síða 54
52 HEILSUVERND sem höfðu gerzt brautryöjendur á þessu sviði, og gat mikið af þeim lært. Á heimili foreldra minna sá ég Jónas Kristjánsson fyrst ,er hann kom þangað í lækniserindum á upp- vaxtarárum mínum, og minnist hans þá þegar sem hins mesta Ijúfmennis og auðfúsugests. Mörgum árum síðar gisti ég á heimili hans á Sauðárkróki, skömmu áður en hann lét af embætti. Hann var þá nýkominn lieim úr einni af utanferðum sínum, og liafði ég fáum vikum áður hlýtt — þó aðeins með öðru eyranu -— á erindi, er hann flutti í útvarpið um hinn nýja heilsu- verndarboðskap. Hann sagði mér margt um samband- ið milli sjúkdóma og lifshátta. Ég minnist þess, að ég spurði hann m. a., hvort botnlangabólga gæti stafað af röngu mataræði, hvort rúsínusteinar og annað slíkt ættu ekki mesta sök á henni. Hann var nú ekki á því. Botnlangabólgan væri vottur um sjúklegt ástand ristils- ins. stafandi af röngu mataræði og tregum liægðum; þegar fæðumaukið kæmist ekki leiðar sinnar með eðli- legum hraða, þornaði það og harðnaði um of, erti slímhúðir ristilsins, svo að þær bólgnuðu og lokuðu þá oft fyrir hið þrönga op ristils og botnlangatotu, og oft myndaðist í henni grjótharður köggull, sem stöðv- aði rennsli og þrengdi að æðum í veggjum botnlanga- totunnar. Væri þarna þvi hinn bezti jarðvegur fyrir bólgusýklana. Er heim kom, bar ég þessa skýringu undir skurðlækni einn, sem staðfesti hana í aðalatrið- um. Og seinna fékk ég tækifæri til að sjá nokkra botnlanga, sem innihéldu grjótliarða köggla, er reynd- ust vera gamall fæðuúrgangur. Nokkru áður en Jónas Kristjánsson lét af embætti, stofnaði liann náttúrulækningafélag á Sauðárkróki, fyrir áeggjan og með aðstoð Björns Kristjánssonar, stór- kaupmanns, sem hafði kynnzt þessari stefnu í Þýzka- landi. Og skömmu síðar stofnaði hann, með eitthvað 30 manns, Náttúrulækningafélag íslands.

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.