Heilsuvernd - 01.05.1960, Síða 17
HEILSUVERND
15
1923. — Fremri röð: Ásta, Hansína, Jónas, Kristján. — Aftari röð:
Rannveig, Guðbjörg, Regína.
vatni, og voru nú liðnir 8 tímar og enn átti hann eftir
nokkurt þrek. Við, sein yngri erum, liefðum ekki lagt
þetta erfiði á okkur. En Jónas lét sig ekki muna um
að fara slíkar ferðir.
Jónas Kristjánsson varð landskjörinn þingmaður 1926
og sat á fjórum þingum til 1930. Á þingi sinnti hann
aðallega læknamálum og heilbrigðismálum. Landbún-
aðarmál lét hann sig og miklu varða. Hann var forseti
Framfarafélags Skagfirðinga 1914—’38. Náttúrulækn-
ingafélags Sauðárkróks stofnaði hann 1937 og var aðal-
formaður náttúrulækningasamtakanna til dauðadags.
Jónas læknir skrifaði mikið um lækninga- og heilhrigð-
ismál og ýmis menningarmál.
Er Jónas kom í Skagafjörð, var varla til vegaspotti
og þurfti því að fara flest á hestum. Bílarnir voru þá
ekki komnir. Það kom sér þvi vel, að Jónas var góður
hestamaður og harðduglegur ferðamaður. Ýmsar sögur
gengu um dugnað Jónasar á ferðalögum. Hann átti og