Heilsuvernd - 01.05.1960, Qupperneq 29
HEILSUVERND
27
sjónamáli, því að kenna þjóð sinni að forðast sjúkdómana
með hollari lifnaðarháttum.
Mörgum árum áður liafði náttúrulækningastefnan tekið
hug hans. í mörgum utanlandsferðum, víða um heim,
hafði hann kynnt sér störf stefnubræðra sinna; þegar
heim kom, fræddi hann þjóð sína um þessi mál, i ræðu
og riti með þeim eldlega áhuga, sem honum var laginn.
F'orusta hans um stofnun Náttúrulækningafélags Is-
lands, útgáfa tímaritsins „Heilsuvernd", margra ágætra
hóka um bætt mataræði og náttúrulega lifnaðarhætti,
fyrirleslrarferðir viða um land og í sambandi við það
stofnun félagsdeilda N.L.F.Í., allt har þetta vitni um hinn
óþreytandi hugsjónamann, sem aldrei lét bugast, en lagði
fram alla sína starfsorku, og síðar þegar bygging heilsu-
hælisins kom til, lagði hann fram allar eigur sínar þessu
mikla máli til framdráttar.
Jónas læknir fann það glöggt og skildi, að heilbrigð sál
þurfti hraustan líkama, annars gat andleg heilhrigði ekki
varað leng'i; þess vegna var liann óþreytandi i þvi að
áminna samferðafólkið um að varðveita meðfædda
líkam.ihreysti og lífshamingju með náttúrlegum lifnað-
arháttum. Aðalvettvang þessa mannbótastarfs hugsaði
Jónas sér heilsuhæli N.L.F.Í., þar sem í senn væri unnið
að því að draga úr þjáningum þeirra sjúku, með nátt-
úrulegum lækningaaðferðum og' náttúrulegu fæði, jafn-
framt því sem dvalargestir hælisins yður aðnjótandi
fræðslu um heilbrigða lifnaðarliætti. Jónas sá þann
draum sinn rætast, að heilsuhælið risi af grunni, og
lionum entust starfskraftar til að móta starfið þar
fyrstu árin.
Jónas læknir var mikill unnandi íslenzku öræfanna. A
unga aldri ferðaðist hann á sínum góðu hestum um há-
lendi landsins, bæði þegar hann var á leið í skóla og úr,
og einnig sem fylgdarmaður útlendinga.
Á gamalsaldri þreytti hann göngur um reginfjöll sem
ungur væri. Hann var íslendingur í þess orðs beztu merk-