Heilsuvernd - 01.05.1960, Side 45

Heilsuvernd - 01.05.1960, Side 45
HEILSUVERND 43 sem ekki var djúpt á fyrrum í eðli lians. Hann var 12 ára þegar það gerðist, er nú skal segja frá með lians eigin orðum: „Ég var sendur upp að Skeggjastöðum í Svartárdal eftir meðölum. Skildi hestinn eftir á Löngu- mýri og var ferjaður yfir Blöndu og hljóp svo upp í dalinn. Þegar ég kom aftur að ánni, var eitthvað fólk þar fyrir á férjustaðnum — mjög fínn maður á flaks- andi kápu og' sópaði að lionum, ung stúlka og fylgdar- maður þeirra. Var þetta Benedikt Sveinsson sýslumað- ur og dóttir lians á suðurleið. „Hvern andskotann ertu að garga strákur“, sagði Bendikt og byrsti sig. „Nú, ér er að kalla á ferjuna“, sagði ég og setti hendurnar aftur fyrir munninn. „Ég er búinn að því“, sagði hann, „og svo held ég að hvolpur eins og þú ættir nú rétt að geta synt hérna yfir“. „Syntu sjálfur“, sagði ég og var hinn liortugasti. En dóttir hans, ung og vel klædd, kom nú og skarst í leikinn og spurði: „Af hverju ertu svona vondur við drenginn, pahbi?“ „Nú, það er strák- urinn, sem er vondur við mig“, sagði Benedikt og brosti. En þessi yndislega stúlka tók upp lijá sér súkku- laði og gaf mér og' allt féll í ljúfa löð“. Sennilega hef- ur Benedikt grunað, að það væri mannsefni í þessum dreng, undir eins og hann sá liann. Þó, var það svo, ef eftir var leitað, að Jónas taldi ekki þörf á þvi, að hringja út vikingaöldina, né syngja svanasönginn yfir Norðurlandakarlmennskunni, þótt til víðari útsýnis hæri um eðli lífs i mörgum samböndum og forlög mannkynsins ættu sína tryggingu í vísindun- um. Það var græna blaðið, sem Jónas vissi að átti frum- heimildina á lífinu á þurrlendi jarðar, og leyndardóm- ur þess, jafnt og opinberun, varð Jónasi frjó og mikil heimspeki og síðan lífsnautn. Eftir háttum Jónasar og framgöngu mátti ætla, að hann væri fílhraustur maður á hvaða skeiði ævinnar sem var. En svo var ekki. Er hann var í þriðja bekk skólans lá hann milli heims og helju í taugaveiki

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.