Heilsuvernd - 01.05.1982, Síða 18
Paprikur með hátíða
fyllingu
fyrir 6
1-2 grænar paprikur á mann
1 stór púrra
2 gulrætur
1 laukur
smjörvi
4-6 tómatar
1,5 dl. grænar olívur
Stærri endi paprikunnar skorinn
af og kjarninn tekinn úr. Sjóða í
5 mínútur í lítið eitt söltuðu
vatni.
Skera púrru, gulrætur og lauk í
þunnar sneiðar, og sjóða í
smjörvanum í 10 mín. Ekki
brúna.
Bæta í skornum tómötum og fín-
skornum ólívum. Snöggsjóða í
loklausum potti — krydda.
Raðið paprikunni á eldfast fat
og fylla þær með grænmetis-
blöndunni. Setja yfir rifinn ost.
Hitað í ofni við 220° í ca 15 mín-
útur.
Steiktur paprikuréttur
fyrir 4
2- 3 grænar paprikur
1 laukur
1 biti spánskur pipar eða chili
smjörvi
3- 5 tómatar
1 tesk. Herbamare
2 dl. sojabitar (sojakjöt)
1-2 dl. soðnar hvitar baunir.
Taka kjarnann úr paprikunum.
Skera þær í bita, laukinn í sneið-
ar. Láta paprikurnar, lauk og
fínskorinn spánskan pipar malla
í smjörva, án þess að brúnast.
Þegar grænmetið er að hálfu
soðið er skornum tómötum bætt
út í ásamt kryddi. Þegar þetta er
fullsoðið er baununum og soja-
bitunum blandað við.
Borið fram með hrisgrjónum og
salati.
Mynd 3
16 HEILSUVERND
Hrísgrjónafyllt paprika
fyrir 4
1-2 paprikur á mann
soðin hrísgrjón
léttbrúnaðir sveppir
Sósa:
1 laukur
smjörvi
4 dl. skornir tómatar
jurtakrydd (Herbamare)
1 matsk. tómatpuré
/i tesk. basilikum
Skera endann á paprikunni, taka
kjarnann úr. Sjóða papriku í 5
mín. í vatni, til að mýkja þær.
Fylla með blöndu af hrísgrjón-
um og sveppum. Sett í eldfast
fat.
Laukurinn skorinn, hitaður í
smjörvanum — ekki látinn brún-
ast. Bæta tómötunum út í og láta
sjóða í nokkrar mínútur, bragð-
bæta með kryddinu. Tómatsós-
an er síðan sett ofan á og um-
hverfis paprikurnar.
Paprikunum er loks stungið í
200° heitan ofn í ca 15 mínútur.
Sjá mynd nr. 3