Heilsuvernd - 01.05.1982, Qupperneq 32
Til lesenda
framhald afbls. 1
Það verður því óhjákvæmi-
lega um hálf tilbúinn og altilbú-
inn mat að ræða, hér hlýtur því
að bera all mikið á farsi, pylsum,
Pizzum, hamborgurum, næring-
arlausum pakkasúpum, og fleiri
matvælum og hliðstæðri gerð.
Auk þess lifir þessi kynslóð mik-
ið á allskonar sykurvörum, svo
sem sælgæti og gosdrykkjum.
Nú ætti það að vera flestum
íslendingum ljóst, hversu flour
eitrun hefir oft leikið sauðfé eftir
eldgos, svo að iðulega hefir ekki
verið um annað að ræða en lóga
því.
Fólk neytir mis mikils vatns í
mat og drykk.
Því spyr ég? Er nokkur ástæða
til að neyða upp á nokkurn
mann, að drekka flourmengað
vatn í þessu lýðræðislandi okk-
ar. Þar sem hver sem vill getur
eftir eigin geðþótta burstað tenn-
ur sínar úr flour tannkremi svo
oft sem hann lystir. Væri ekki
hægt að fá Apótekarana til að
selja flour mengað vatn á vægu
verði, svo allir þeir er óska þess
gætu skolað munn sinn og
tennur og spýtt að vild.
Ég er svo heppinn að tann-
læknir er bæði vitur og lærður,
en hann hefir sagt við mig eitt-
hvað á þessa leið ,,það gildir mig
einu hvaða tannkrem þú notar
— eða nokkurt, en eitt vil ég
biðja þig um, og ef þú ferð eftir
því, munt þú aldrei fá rótar-
bólgu. Tak þú kvölds og morg-
uns volgt vatn í glas og settu út í
það dálítið af matarsalti, skol-
aðu vel munninn — og spýttu.
Salt er eitt þeirra efna er drep-
ur bakteríur í munni þínum.“
Ég vil gjarnan láta ráð þetta
ganga áfram til allra þeirra er við
vilja taka. Sjálfur held ég öllum
tönnum mínum, kominn á efri
ár. Hinsvegar læðist að mér
lúmskur grunur lesandi góður að
þetta ráð sé bæði of ódýrt og ein-
falt til þess að þú munir notfæra
þér það.
30 HEILSUVERND