Fréttablaðið - 11.12.2021, Qupperneq 24
22 Íþróttir 11. desember 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 11. desember 2021 LAUGARDAGUR
Steven Gerrard
Fæddur: 30. maí 1980
Fyrsti leikur: 29.11.1998
Síðasti leikur: 24.05.2015
Leikir alls fyrir Liverpool: 710
Landsleikir: 114
Titlar: FA bikarinn 2001 og
2006, deildarbikarinn, 2001,
2003 og 2012. Meistara
deildin 2005.
Rann gegn Chelsea
Árið 2014 var Liverpool í góðri stöðu til að
vinna sinn fyrsta titil í 24 ár. Þegar aðeins þrír
leikir voru eftir spilaði liðið við Chelsea, sem
var fimm stigum á eftir Liverpool. Gerrard
hafði leitt liðið í 11 sigurleiki í röð. Jafntefli
hefði verið frábær úrslit fyrir Liverpool.
Þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik
var Liverpool með boltann. Gerrard kom til
baka og fékk einfalda sendingu frá Mam a
dou Sakho. Sendingu sem hann hafði tekið
á móti milljón sinnum á sínum ferli. Hann
horfði ekki einu sinni á boltann. Þurfti þess
ekki. En af einhverjum ástæðum lyfti hann
fætinum of hátt og boltinn rúllaði undir.
Gerrard áttaði sig þó fljótt, en rann þegar
hann ætlaði að bjarga sér. Demba Ba hirti
boltann og skoraði fram hjá Simon Migno
let. Þó að ferill Gerrard sé stórkostlegur er
þetta eitt af atvikunum sem skilgreina feril
hans. Að renna á ögurstundu er og verður
grafið í stein í sögu ensku úrvalsdeildar
innar.
Átta dögum síðar spilaði liðið svo við
Crystal Palace og klúðraði þriggja marka
forystu niður í jafntefli á síðustu 11 mínút
unum og endaði City sem meistari í annað
sinn.
12
sinnum byrjaði hann
á bekknum.
42
mörk skoraði hann á
61. til 75. mínútu.
6
rauð spjöld fékk hann
á ferlinum.
129
mörk skoraði hann úr
opnum leik.
10
mörk komu úr auka-
spyrnum.
6
sinnum var hann
valinn leikmaður
mánaðarins.
7
mörk skoraði hann
með skalla.
1.507
langir boltar enduðu á
samherja.
13
mörk skoraði hann
gegn Aston Villa. 10
gegn Everton og 9
gegn Man. Utd.
40
sinnum spilaði hann
við Chelsea á ferl-
inum.
71
mark með hægri fæti.
47
mörk úr vítaspyrnum.
52,3%
var sigurhlutfall hans
með Liverpool.
snýr aftur
Steven Gerrard snýr aftur á Anfield
í dag með Aston Villa. Gerrard er af
mörgum talinn einn besti leikmaður í
sögu Liverpool, enda bar hann liðið á
herðum sér í rúm 15 ár.
Goðsögnin hjá Liverpool, Steven Gerrard,
mætir á sinn gamla heimavöll með lærisveina
sína í Aston Villa. Gerrard mætti á æfinga-
svæði Liverpool kornungur drengur og yfir-
gaf það sem einn allra besti leikmaðurinn í
sögu félagsins. Hann kláraði ferilinn í Banda-
ríkjunum með LA Galaxy áður en hann fór
á hliðarlínuna með Glasgow Rangers. Hann
stýrði Rangers til síns fyrsta skoska meistara-
titils í tíu ár á síðasta tímabili.
Aston Villa greiddi Rangers um 4,5 milljónir
punda til þess að fá Gerrard til félagsins, en
þetta verður fimmti leikur hans með Aston
Villa.
Gerrard byrjaði með Whiston Juniors áður
en hann var sóttur af Liverpool, þegar hann
var aðeins átta ára gamall. Hann kom inn í
liðið árið 1998 þegar Jamie Redknapp meidd-
ist og spilaði alls 13 leiki sitt fyrsta tímabil. Í
aðeins níunda leik sínum fyrir félagið spilaði
hann Merseyside-slaginn gegn Everton sem
hægri bakvörður og bjargaði tvisvar á línu.
Fyrsta markið kom 5. desember 1999 gegn
Sheffield Wednesday. Síðan varð saga Gerrard
nánast ein samfelld sigurganga, en aldrei tókst
honum að ná í eina titilinn sem hann langaði
til. Enska úrvalsdeildin var aðeins fjarlægur
draumur þó tvisvar hafi hann verið nálægt
því. Hann lék alls í 17 ár fyrir félagið, vann 10
titla og spilaði hartnær 700 leiki þar sem hann
skoraði 180 mörk í öllum regnbogans litum.
Án efa verður tekið vel á móti Gerrard á
Anfield í dag, en stóra spurningin er hvort
hann fagnar ef Villa skorar. Allra augu verða
á honum, svo mikið er víst, en ætli hann sé
ekki vanur sviðsljósinu á Anfield. n
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas
@frettabladid.is