Fréttablaðið - 11.12.2021, Síða 30

Fréttablaðið - 11.12.2021, Síða 30
Mín kyn- slóð ólst vissulega upp við strangar hefðir og flest tókum við stóran hluta þeirra áfram í okkar eigið heimilis- hald. Hætt er við að kjörþokki beggja skaðist. n Í vikulokin Ólafur Arnarson BJORK@FRETTABLADID.IS Við mælum með Common Ground er sam- vinnuverkefni Nútímalista- safnsins – CoCa í Torun í Póllandi, Akademíu skynjun- arinnar á Íslandi og Samtaka litáískra myndlistarmanna í Vilníus í Litáen. Afrakstur samstarfsins má berja augum í dag, laugardag, á Korpúlfs- stöðum. bjork@frettabladid.is Alls taka 18 myndlistarmenn þátt auk þriggja fræðimanna – mann- fræðings, vistfræðings og heim- spekings. Þær Anna Eyjólfsdóttir og Ragnhildur Stefánsdóttir eru for- svarsmenn Akademíu skynjunar- innar, sem stendur fyrir verkefninu. Ragnhildur er verkefnastjóri og Anna listrænn stjórnandi, sem hún segist frekar líta á sem titil en raun- verulegt starf. Hún sé í rauninni eins og rótari fyrir myndlistarmenn. „Maður er bara að redda málunum, binda lausa enda og stússast,“ segir Anna hlæjandi. Í byrjun desember komu hingað 15 þátttakendur frá Litáen og Pól- landi til tveggja vikna dvalar með það að markmiði að vinna að verk- efninu ásamt íslensku þátttakend- unum. „Við hittumst alla morgna á Korpúlfsstöðum og byrjum daginn á morgunmat saman,“ segir Ragn- hildur en vikurnar tvær eru nýttar í að kynnast og vinna. „Matur er hópnum hugleikinn og allt sem tengist mat. Matur og matarmenn- ing sameinar okkur og aðskilur. Matur vísar í skort og ofgnótt. Matur hefur marglaga tilvísanir. Það er samfélagsleg athöfn að borða.“ Verkefnið er samstarfsvettvangur stofnana, myndlistarmanna og vís- indamanna, með það að markmiði að skiptast á hugmyndum, þekk- ingu og reynslu, sem tileinkuð er hugtakinu sameiginleg jörð, eða common ground, og spurningunni: Hvar er heima? Heima er ekki hús Ragnhildur segir hugtökin heima og common ground vera mjög ólík, þó að þau feli í sér hugtakið að til- heyra stað eða svæði. „Heima er staður en common ground er stærra svæði, getur verið jörðin öll. Þegar við hugsum um common ground þurfum við að skoða aðstæður okkar í heiminum í samhengi við umhverfisvána, hlýn- un jarðar, heimsfaraldurinn, f lótta fólks undan stríði og hungursneyð og svo framvegis,“ segir Ragnhildur. „Spurningin: Hvar á ég heima? í samhengi við common ground er pólitísk, menningarleg, vistfræðileg og landfræðileg spurning í heimi hnattvæðingar, þar sem heimurinn skreppur ört saman vegna aukins upplýsingaflæðis og síaukins flæðis fólks á milli svæða. Spurningin hvar á ég heima? getur líka verið mjög persónuleg og einstaklingsbundin. Og í því samhengi er í mínum huga heima að geta sleppt öllu frá sér um stund.“ Anna bætir við: „Í mínum huga er heima ekki hús heldur tilfinn- ing. Hugtakið sameiginleg jörð eða common ground, felur í sér umræðu um hlýnun jarðar, forvarnir og orsakavalda, f lóttafólk og mis- skiptingu fjármagns, náttúrugæða og lífsgæða. Heimurinn þróast hratt í að verða þverþjóðlegur og landa- mæralaus.“ Mikilvægt málefni Einn hluti Common Ground er þátttökuverkefni sem er tileinkað innflytjendum á Íslandi, og er þar meðal annars safnað hugmyndum fólks um hugtakið heima. Eru les- endur hvattir til að senda sínar hug- myndir um hugtakið heima og hvar það er, á netfangið: whereismy- home2021@gmail.com. Í dag, 11. desember, klukkan 16, verður haldin sýning á Korpúlfs- stöðum, og eru allir velkomnir að skoða afrakstur vinnunnar milli landanna þriggja. Þetta stopp er þó aðeins fyrsta af þremur, en vorið 2022 mun hópurinn hittast í Pól- landi og síðan í Litáen í september 2022. Vorið 2023 verður svo sýning á niðurstöðum hópsins og gefin út bók um verkefnið. Málefnið er sannarlega mikilvægt og eitthvað sem flestir hafa líklega leitt hugann að á einhverjum tíma- punkti. „Hvernig sjáum við fram- tíðina fyrir okkur? Við verðum að leggja áherslu á að fara vel með okkar sameiginlegu jörð,“ segir þær Ragnhildur og Anna að lokum. n Hvar er heima? Hópurinn á bak við verkefnið kemur frá Ís- landi, Póllandi og Litáen. Sólveig Gutaute, Sindri Leifsson, Pétur Magnús- son, Wiola Ujaz- dowska og Jus- tas Kazys ráða ráðum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Jólalest Coca-Cola Jólalestin keyrir sinn árlega hring um höfuðborgarsvæðið í dag á milli klukkan 17 og 20. Fyrir mörgum er það orðin skemmtileg jólahefð að sjá lestina á ferð um borgina, en í ár keyrir hún um í tuttugasta og sjötta sinn. Heimagerðu jólaföndri Fátt er jólalegra en föndur með fjölskyldunni á fallegum degi í desember. Við mælum með hvers kyns föndri í góðum félagsskap með kakó, piparkökur og jólatón- list. Til að mynda má föndra fallega engla úr pappír og hengja á jóla- tréð. Skemmtileg, skapandi og ódýr afþreying fyrir alla fjölskylduna. n Nú stefnir í hörð átök um forystusæti Sjálfstæðisflokksins fyrir borgar- stjórnarkosningarnar í vor. Eyþór Arnalds, sem leiddi listann fyrir fjórum árum eftir sigur í leiðtoga- prófkjöri, óskar eftir endurnýjuðu umboði til að leiða listann og nú hefur Hildur Björnsdóttir, sem var handvalin í annað sætið fyrir fjórum árum, lýst því yfir að hún vilji leiða listann í vor. Mikill klofningur hefur verið innan borgarstjórnarflokks Sjálf- stæðismanna á þessu kjörtímabili. Djúp gjá er milli fylkinga sem Eyþór og Hildur fara fyrir. Þau eru á önd- verðum meiði í stærstu málum, til dæmis varðandi Borgarlínu, Lauga- veginn og flugvöllinn í Vatnsmýri. Líkur eru á að prófkjörsslagurinn eftir áramót verði endurómur próf- kjörsins fyrir alþingiskosningarnar fyrr á þessu ári. Þá bar Guðlaugur Þór Þórðarson sigurorð af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Þarna tókust á hópar í kringum frambjóðendurna. Formaður og varaformaður flokksins, raunar allt flokkseigendafélagið, stóð við bak Áslaugar Örnu. Hildur og stuðn- ingsfólk hennar var í þessum hópi. Guðlaugur Þór er með öfluga kosn- ingavél í Reykjavík og meðal stuðn- ingsmanna hans er Eyþór. Búist er við  að hann muni njóta óskoraðs stuðnings Guðlaus í slagnum fram undan og því verður Eyþór að teljast mun sigurstranglegri en Hildur. Fyrirsjáanlegt er að toppslagurinn Eyðimerkurganga klofins borgarstjórnarhóps blasir við í komandi prófkjöri verði Sjálfstæð- isflokknum lítil lyftistöng. Eyþór höfðar ekki til almennra kjósenda í höfuðborginni og fátt bendir til þess að Hildur njóti fylgis út fyrir flokk- inn. Hætt er við að kjörþokki beggja skaðist enn frekar í þeim atgangi sem fram undan er, þar sem ekki verður einungis tekist á um persónur heldur einnig stefnu Sjálfstæðisflokksins í stórum málum sem varða framtíð borgarbúa. Áframhaldandi eyði- merkurganga blasir við. n Á morgun er þriðji í aðventu og aðeins tæpar tvær vikur til jóla. Það er í ýmis horn að líta við undirbúning hátíðar ljóss og friðar, en fjöldi þeirra fer þó aðallega eftir því hversu mikið við sjálf leggjum upp úr hinum og þessum hefðum. Mín kynslóð ólst vissulega upp við strangar hefðir og f lest tókum við stóran hluta þeirra áfram í okkar eigið heimilishald. Svona var þetta gert og svona skal þetta gert. En … að ætla sér að gljáfægja heimilið, baka nokkrar sortir, dressa upp börnin, kaupa jólagjafir, fara með alla í klippingu, skreyta hátt og lágt, þrífa bílinn, hitta hvern einasta vinahóp sem þú hefur haft minnstu tengingu inn í, fara á jólatónleika, jólahlað- borð, jólaglögg, jólarölt, jólaball og í kjólinn fyrir jólin, er hreinlega ávísun á jólainnlögn á heilsuhæli vegna jólastreitu. Það eru ansi margir siðirnir sem fyrri kynslóðir settu fá spurningarmerki við – en í dag þættu fullkomin firra, og legg ég til að jólastress fari í þann flokk! Úrelt jólastress 28 Helgin 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 11. desember 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.