Fréttablaðið - 11.12.2021, Side 44
Ég flokka jólaskrautið
mitt í tvo kassa og í
kassa eitt er alls konar
látlaust sem má fara
upp snemma og svo
skreyti ég tréð aðeins
seinna.
Þórunn Ívarsdóttir, eigandi
verslunarinnar Valhnetu, er
mikið jólabarn og elskar að
gera notalegt í kringum sig
þegar myrkrið leggst yfir.
Skrautið fer snemma upp
á hennar heimili en líka
snemma niður.
Ég hef verið alveg jóla seríu
óð síðan ég var krakki
en við pabbi skreyttum
alltaf mikið saman og ég
er örugglega að halda svo
lítið í það,“ segir Þórunn aðspurð
út í skreytingar heimilisins sem
hún segir að megi byrja að fara upp
15. nóvember.
„Ég flokka jólaskrautið mitt í tvo
kassa og í kassa eitt er alls konar lát
laust sem má fara upp snemma og
svo skreyti ég tréð aðeins seinna,“
segir hún en tekur fram að sér finn
ist gott að fá öll ljósin upp strax.
Þórunn rekur verslunina Val
hnetu með bestu vinkonu sinni,
Gyðu Dröfn, og segir hún jólaundir
búninginn hafa talsvert vikið fyrir
önnum í versluninni.
„En það er líka orðið partur af
jólunum að eyða heilu kvöldunum
í að pakka pöntunum með bestu
vinkonu sinni langt fram á nótt. Ég
veit að við gleðjum ansi mörg lítil
hjörtu þessi jól og það gefur manni
svo mikið,“ segir Þórunn en verslun
in sérhæfir sig í vönduðum og vist
vænum vörum fyrir börn upp í sex
ára. „Þessi jól hafa dúkkurnar okkar
slegið í gegn og við höfum varla gert
annað en að pakka þeim inn.“
Gaman að vera á síðustu stundu
Þórunn segir lítið um jólastress
á heimilinu. „Ég elska að gera allt
í rólegheitum og er oft á síðustu
stundu með sumar gjafir en finnst
það líka oft snúast um það að labba
í bænum og finna hina fullkomnu
gjöf. Svo er ég líka alltaf að bæta við
gjafirnar hjá öllum. Mér finnst mjög
gaman að gefa fallegar gjafir.
Jólin snúast bara um samveruna
og að hafa það notalegt saman.
Horfa á jólamyndir, fara út að
renna á sleða, fá sér heitt súkkulaði
og svo er það sörubaksturinn með
mömmu.
Mér finnst aðfangadagskvöld svo
hátíðlegt og fallegt kvöld að það
er örugglega uppáhaldsdagurinn
minn á árinu,“ segir Þórunn en
aðspurð segist hún taka skrautið
snemma niður enda hluti þess verið
uppi frá því um miðjan nóvember.
„Ég fæ dauðleið á skrautinu strax
á milli jóla og nýárs og tek f lest
niður fyrstu vikuna í janúar en leyfi
ljósunum oft að loga út febrúar.“ ■
Aðfangadagur uppáhalds dagurinn
Falleg kerti setja sinn svip á heimilið, ekki síst á jólum.
Jólatréð er komið upp á heimilinu en verður skreytt þegar nær líður jólum.
Glæsilegir pakkar bíða eftir að komast til eigenda sinna.
Þórunn bætir við einu jólatré frá Vigt á hverju ári.
Uppáhalds
jólaskrautið er
handverk eftir
dótturina.
Þórunn skipti
um borða á
Georg Jensen
óróunum.
Þessi skemmtilegi álfur gegnir mikilvægu hlutverki og fer á stjá á nóttunni.
Þórunn segist mikið jólabarn og jólaseríuóð. Hún byrjar að skreyta smátt og smátt um miðjan nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
42 Helgin 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ