Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 46

Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 46
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Hildur hefur langa reynslu í fata- hönnun en hún útskrifaðist árið 2006. Jólalínan hennar sem nú er komin í verslunina hentar öllum aldri og misjafnri líkamsbyggingu. „Við erum með stærðir frá extra small–xxl og höfum einstaklega gaman af því að aðstoða konur við val á réttri f lík,“ segir Hildur. „Við erum með mikið úrval af fallegum kjólum fyrir jólin, skvísulegum buxnasettum, partí- toppum, flauelskjólum og kjólum skreyttum pallíettum. Fullkominn klæðnaður fyrir þennan skemmti- lega árstíma,“ segir hún. „Við erum með margvísleg snið, bæði stutta og síða kjóla, og mismunandi mynstur. Ég myndi segja að við værum með heildarpakka fyrir konur, yfirhafnir, skó og hvað sem þær vantar,“ segir Hildur. Mikið vöruúrval „Verslunin hefur stækkað mikið og um leið höfum við aukið vöruúr- valið. Við bjóðum til dæmis upp á djúsí glimmer-prjónafatnað í bland við hlý og mjúk prjónasett og peysur. Við erum líka ofurspennt fyrir nýju sokkalínunni okkar sem er fyrir bæði kynin. Mynstrið í sokkunum og prjónasettunum er unnið út frá prentunum mínum,“ segir Hildur og bætir við að lögð sé mikil áhersla á að velja inn merki með góða umhverfismeðvitund. „Við erum sjálf að framleiða fatnað sem er gerður úr endurunnu plasti, þar get ég nefnt sundboli og marga af okkar frábæru partíbolum. Við seljum einnig merki sem heitir Jakke en það sérhæfir sig í gervifeldum. Feldirnir eru unnir úr endurunnum plastflöskum. Dásamlegt merki fyrir dýravini og þá sem vilja ekki ekta feldi,“ segir Hildur og minnist einnig á að þau láti framleiða fyrir sig kerti hjá gömlu fjölskyldufyrirtæki í Grikk- landi. „Kertin eru öll handgerð og mikið nostrað við hvert eintak,“ útskýrir hún. Glæsileg verslun í miðbænum Yeoman verslunin er fjögurra ára en það er eitt ár síðan hún flutti af Skólavörðustíg yfir á Laugaveg í stærra og glæsilegra húsnæði. „Við erum alltaf að bæta við okkur og breikka vöruúrvalið. Við erum að selja okkar eigin hönnun en erum einnig með vörur frá öðrum sem passa vel inn í okkar heim. Það er svo margt fallegt sem fæst hjá okkur núna til jólagjafa. Við erum með margvíslega skartgripi og höfum nýlega bætt við okkur Maan esten skartgripum en þeir eru dönsk hönnun. Dásamlega fallegt skart með náttúrusteinum. Skartið er framleitt úr endurunnu silfri. Þá get ég nefnt Miss Patisserie sem eru æðislegar baðbombur og sápur sem við vorum að taka inn. Þær eru vegan og einstaklega litríkar og fallegar. Þetta eru allt mjög góðar jólagjafir sem koma í fallegum pakkningum sem henta vel undir jólatréð,“ segir Hildur en þess má geta að hún selur hönnun sína víða um heim. Heillar tónlistarfólk Tónlistarfólk hefur heillast af vöru- línunni og meðal þeirra sem hafa verslað við Hildi eru Taylor Swift, söngkonan Cher og Björk okkar að ógleymdum Kardashian-systrum. Sjálf hefur hún alltaf haft mikinn áhuga á tónlist. „Ég hef fengið mikla athygli erlendis og það er einstaklega ánægjulegt. Einnig hafa erlendir ferðamenn í Reykja- vík komið til okkar og eru hrifnir af íslenskum hönnunarvörum. Íslendingar eru líka stoltir af að kaupa íslenskt og það hefur aukist mikið,“ segir Hildur sem segist leggja áherslu á að vera með fatnað fyrir allar konur. „Við leggjum metnað okkar í faglegu þjónustu og aðstoðum við val á jólakjólum. Að sjálfsögðu aðstoðum við einn- ig eiginmenn sem eru að leita að jólagjöfum á eiginkonuna,“ segir Hildur. „Starfið hefur undið upp á sig og ég er með mjög gott starfsfólk með mér,“ segir hún. Verslunin Yeoman er opin alla daga til jóla og eftir 16. desember hefst kvöldopnun. „Miðborgin er svo dásamleg í desember og það ríkir svo mikill jólaandi. Margir gera sér ferð í bæinn til að kíkja í verslanir og fá sér jólaglögg eða fara út að borða,“ segir hún. „Við ætlum að vera með uppákomur annað slagið til jóla til að gæða lífið enn meiri jólaanda.“ Yeoman er á Laugavegi 7, við hliðina á veitingahúsinu Ítalíu, bílastæðahús við Hverfisgötu er Hildur og sam- starfskonur hennar, Embla Óðinsdóttir og Alexandra Jóns- dóttir, skarta hér fallegum jólakjólum sem eru íslensk hönnun. MYND/AÐSEND Kjólarnir eru með mismunandi mynstri, hver öðrum fallegri. Fallegu kertin sem eru hand- unninn í Grikk- landi. Skartgrip- irnir frá danska fyrirtækinu Maan esten eru eftirsóttir. Í versluninni Yeoman er mikið úrval af alls kyns fallegum tísku- fatnaði til jólagjafa. fyrir aftan verslunina svo aðgengi er gott og næg bílastæði. Yeoman er með öfluga vefsíðu: hildur- yeoman.com og sendir um allt land og út um allan heim. n Yeoman er bæði á Facebook og Instagram þar sem fylgjast má með nýjungum frá henni. Það er auðvelt að finna góða jólagjöf hjá Yeoman á Laugavegi. Miðborgin er svo dásamleg í des- ember og það ríkir svo mikill jólaandi. Margir gera sér ferð í bæinn til að kíkja í verslanir og fá sér jólaglögg eða fara út að borða. Sokkarnir sem framleiddir eru eftir prentum frá Hildi. 2 kynningarblað A L LT 11. desember 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.