Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 48
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Vöruhönnuðurinn Rebekka
Ashley Egilsdóttir hannaði
skemmtilegt jólaskraut í ár,
búið til úr textíl sem hún
fann í fjörunni.
Rebekka Ashley Egilsdóttir,
verkefnastjóri hjá Klifinu, vöru-
hönnuður og plötusnúður, segir
jólin alltaf hafa verið uppáhalds-
hátíðina sína frá því hún var barn.
„Ég var alltaf rosalega spennt fyrir
því að fá lítið nammi í skóinn
á hverjum degi og finnst frekar
mikið svindl að fá það ekki lengur.
Það sem er samt skemmtilegast
við jólin er að hafa það notalegt og
njóta huggulegra samverustunda
með góðu fólki.“
Árstíðabundið
skraut í flæðandi
og stöðugri mótun
„Að jólunum loknum er því hægt að rekja vefnaðinn upp og skapa nýtt verðmæti úr textílnum,“ segir Rebekka Ashley
Egilsdóttir vöruhönnuður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Abstrakt aðventudagatal komið á vegginn. Rauðu kögrin tákna eld, eins og
til dæmis aðventukerti, og grænu þræðirnir, sem eru þrettán talsins, eru skír-
skotun í íslensku jólasveinana. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hér má sjá fyrstu skrefin í gerð aðventudagatalsins.
Göngutúrar í fjörunni gefa oft textíl
og efnivið sem hægt er að nýta.
Hér er Rebekka að rekja reipið í
sundur til að ná í grænu þræðina.
Allir afgangs þræðir fóru inn í glærar
jólakúlur og nýtast einnig sem bönd
til upphengingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Endurskapar verðmæti
Það er henni mikið hjartans mál
að hafa skilning á efniviðnum sem
er alls staðar í kringum okkur og
hvernig við getum endurskapað
verðmæti úr þeim. „Ég hef tekið
göngutúra í fjörunni og safnað
að mér textíl og efnivið sem ég
finn hverju sinni. Í aðeins einni
ferð fann ég mikið magn af ofnu
fiskineti og reipum sem voru
skemmtilega græn og rauð. Ég tók
alla þræðina í sundur og enduróf
textílinn í nýjan jólabúning, það er
nýja aðventudagatalið mitt.“
Öðruvísi jólagjafir
Rebekka ætlar ekki að taka þátt
í jólastressinu og segist forðast
verslunarmiðstöðvar á þessum
árstíma. „Mér finnst fókusinn á
að kaupa bara einhverjar vörur
á jólunum ekki vera í samræmi
við jólaandann og ýtir bara undir
óþarfa neyslu og rusl. Það væri
gaman ef við tækjum okkur saman
og gæfum hvort öðru aðeins hand-
unnið dótarí og jafnvel notaðar
gersemar í ár. Eða jafnvel frum-
samið lag eða einhvers konar
gjörning.“ n
Textíll úr fjörunni
Hún segist aldrei hafa hannað
eigið jólaskraut af ásettu ráði
fyrr en núna og aldrei keypt
jólaskraut. „Ég og kærasti minn
keyptum nýlega íbúð í miðborg-
inni sem hefur ekki geymslu og
því er enginn staður á heimilinu
fyrir árstíðabundna hluti.
Í ár langaði mig þó til að hanna
og skapa jólaskraut sem er hægt
að taka í sundur og nýta í eitt-
hvað annað síðar. Það væri gaman
ef árstíðabundið skraut væri
f læðandi og í stöðugri mótun.
Því ákvað ég að vefa mér nokkurs
konar abstrakt aðventudagatal
úr textíl sem ég fann í fjörunni í
hefðbundnu jólalitunum. Rauðu
kögrin tákna eld, eins og til dæmis
aðventukerti, og grænu þræðirnir,
sem eru þrettán talsins, eru skír-
skotun í íslensku jólasveinana
okkar. Allir afgangs þræðir fóru
síðan inn í glærar jólakúlur og
nýtast einnig sem bönd til upp-
hengingar. Að jólunum loknum
er því hægt að rekja vefnaðinn
upp og skapa nýtt verðmæti úr
textílnum.“
Ég hef
tekið
göngutúra
í fjörunni
og safnað
að mér
textíl og
efnivið
sem ég
finn hverju
sinni.
Verslun Guðlaugs A Magnússonar
Skólavörðustíg 10
101 Reykjavík
sími 562 5222
www.gam.is
Jólaskeiðin 2021
síðan 1946
Mozart við kertaljós
Styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins,
Reykjvíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ og Garðabæ
Miðasala við innganginn og á tix.is - Miðaverð kr. 3.500 / 2.500
Hafnarfjarðarkirkju sunnudag 19. des. kl 21.00
Kópavogskirkju mánudag 20. des. kl 21.00
Garðakirkju þriðjudag 21. des. kl 21.00
Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudag 22. des. kl 21.00
Camerarctica
Mozart by candlelight
Kammertónlist á aðventu 2021
4 kynningarblað A L LT 11. desember 2021 LAUGARDAGUR