Fréttablaðið - 11.12.2021, Síða 72

Fréttablaðið - 11.12.2021, Síða 72
Jólatré og jólaböll Fyrstu jólatrén á Íslandi munu hafa sést í kringum árið 1850 og þá aðallega hjá dönskum fjölskyldum eða dansk- menntuðum fjölskyldum. Jólatrén urðu ekki algeng hér á landi fyrr en um aldamótin 1900. Árið 1952 fékk Reykja- vík í fyrsta sinn stórt jólatré að gjöf frá Osló sem sett var upp á Austurvelli. Jólatré standa nú í stofum flestra landsmanna á jól- unum. Á sjálft aðfangadags- kvöld eru þau miðpunkturinn þegar jólagjafirnar eru opn- aðar því til siðs er að geyma gjafirnar undir trénu. Á mörgum heimilum ríkir sú hefð að skreyta ekki jóla- tréð fyrr en á Þorláksmessu og hjá sumum skal alls ekki tendra ljósin á trénu fyrr en á aðfangadag. Í seinni tíð hefur það færst í aukana að fólk skreyti jólatréð fyrr og má jafnvel sjá það inn um stofu- glugga landsmanna strax 1. desember. Lengi hefur verið til siðs að halda jólaskemmtanir í skólum, leikskólum, á vinnu- stöðum, hjá félagasamtökum og nánast hvar sem. Á slíkum skemmtunum má gjarnan sjá jólatré á miðju gólfi sem svo er dansað í kringum. Þá mynda gestir hring í kringum tréð og ganga í kringum það, syngja sama hin ýmsu lög líkt og Adam átti syni sjö og Dönsum við í kringum eini- berjarunn. n Jólatré, jólabakstur, jólasveinar og jólaljós í gegnum tíðina Aðfangadagur rennur upp eftir minna en tvær vikur. Margir standa nú í ströngu við að baka jóla- smákökur, velja jólatré og skreyta og á morgun kemur fyrsti jólasveinninn til byggða. Hvaðan koma þessar jólahefðir sem við tengjum við jólin og hvernig hafa þær breyst í gegnum tíðina? birnadrofn@frettabladid.is Lengi hefur tíðkast að halda jólaböll á Íslandi þar sem gengið er í kringum jólatréð. Þessir krakkar mættu prúðbúnir á jóla- ball í leikskól- anum Hlíðaborg í desember árið 1967. MYND/ LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Jólabakstur Á fyrri hluta 20. aldar fór að bera á því að íslenskar húsmæður bökuðu hverja smáköku- sortina á fætur annarri. Því fleiri sortir, því betra. Líkleg ástæða aukins baksturs er talin vera fjöl- breyttara vöruúrval og að bakarofnar voru orðnir almennari eign. Segja má að dregið hafi úr kröfum um fjölda smákökusortanna með tímanum þó að á flestum heimilum sé enn eitthvað bakað fyrir jólin. Með enn fjölbreyttara vöruúrvali hefur það þó einnig aukist að fólk kaupi tilbúið smákökudeig og skelli í ofninn. Hér er uppskrift að auðveldum jólasmákökum: Kókostoppar 250 g smjör 250 g sykur 250 g kókosmjöl 1 egg 100 g hveiti 75 g dökkt súkkulaði (saxað ) Smjör og sykur hrært þar til létt og ljóst, bætið þá eggi í og hrærið vel. Bætið við hveiti, kókosmjöli og súkkulaði. Bakið við 180°C þar til kökurnar eru fallega brúnar. n Aðventuljós Hjá mörgum Íslendingum tíðkast að setja aðventuljós í glugga fyrsta sunnudag í aðventu og er slíkt ljós með vinsælla jólaskrauti landsins. Miðað við vinsældir að- ventuljósa mætti ætla að um ævafornan sið væri að ræða en talið er að fyrsta aðventuljósið hafi ekki borist til landsins fyrr en árið 1964. Það ár fór Gunnar Ásgeirsson kaupsýslumaður í verslunarferð til Stokkhólms. Þar keypti hann aðventuljós í jólagjöf handa nokkrum gömlum frænkum sínum. Ljósin vöktu slíka lukku að Gunnar hóf að flytja þau inn og selja og nú má sjá þau í nærri hverjum einasta glugga í jólamánuðinum. n Skórinn úti í glugga Flest börn á Íslandi setja skóinn út í glugga aðfaranótt 12. desember þegar fyrsti jóla- sveinninn, Stekkjarstaur, kemur til byggða og færir stilltum börn eitthvað fallegt í skóinn en óþægum börnum kartöflu. Sá siður að setja skóinn út í glugga kom fyrst hingað til lands í kringum árið 1930 með íslenskum sjómönnum sem sigldu um Norður- sjó og kynntust hefðinni til dæmis í Hollandi. Þar var til siðs að börn settu skó í glugga aðfaranótt 6. desember með þá von í brjósti að heilagur Nikulás gæfi þeim eitthvað í skóinn. Um miðja síðustu öld hafði siðurinn breitt vel úr sér og almennt varð að börn settu skóinn út í glugga. Mikil misskipting varð þó áberandi milli barna eftir því hversu vel efnaðar fjölskyldur þeirra voru. Þau ríku fengu meira og oftar í skóinn en þau fátækari. Í lok sjöunda áratugarins var misskiptingin orðin slík að rekinn var mikill áróður bæði í fjöl- miðlum og á leikskólum landsins gegn ósam- ræmi og óhófi í skógjöfum. Í kjölfarið komst sú regla á að jólasveinarnir kæmu þrettán dögum fyrir jól til allra barna, hvorki væru þeir fleiri né færri. Enn þann dag í dag hefur mikið verið um það rætt að jólasveinarnir skuli gæta hófs í gjöf- unum og að börn sæti ekki misskiptingu þegar að þeim kemur. n MYND/NORDICNEST FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Á mörgum heimilum tíðkast að skreyta jólatréð ekki fyrr en á Þor­ láksmessu og hjá sumum skal alls ekki tendra ljósin á trénu fyrr en á aðganga­ dag. 46 Helgin 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.