Fréttablaðið - 11.12.2021, Síða 76
„Við Máni erum partur af þeim þjóðflokki sem hugsar allt of lítið áður en hann talar,“ sagði Fanney Birna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
af þegar maður var lítill hljóp
maður alltaf út í glugga til að athuga
hvort það hefði líka farið af hjá
nágrönnunum. Á einhvern furðu-
legan hátt leið manni betur ef raf-
magnið fór ekki bara hjá manni
sjálfum heldur hjá öllum í hverf-
inu. Þannig er Covid. Við erum öll
í þessu Covid-myrkri.
Ég ætla að þakka ríkisstjórninni
fyrir hraðprófin. Fólk ársins er
klárlega fólkið sem hefur nennt að
standa í röðum í skítakulda til að
láta troða eyrnapinna upp í nefið
á sér og mæta á viðburði. Þetta fólk
heldur menningarlífinu í landinu
gangandi.“
Fanney: „Ég er búin að vera ein af
vitleysingunum í þessari röð.“
Máni: „Hetjunum!“
Máni: „Það eina sem böggaði mig
mest í þessu öllu var þessi andlýð-
ræðislega regla þegar tekið var upp
á því að Íslendingar þyrftu að koma
með neikvætt próf til landsins. Það
var virkilega ógeðfelld aðgerð að
ætla að fara að skilja íslenska ríkis-
borgara eftir úti.“
Fanney. „Án þess að ég ætli að tjá
mig um einstakar aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar þá finnst mér skipta
máli að bera virðingu fyrir þeim sem
setja fyrirvara við valdboð og þegar
verið er að beygja mannréttindi.“
Framhaldið ...
Máni: „Það þarf að gera upp alls
konar hluti að þessu loknu. Krakkar
sem eru fæddir 2003 og eru að
útskrifast úr menntaskóla, þau hafa
ekki eignast nýja vini og félagsleg
tengsl eins og við gerðum. Þetta þarf
að gera upp á næstu árum og eins
gott að stjórnvöld komi þar sterk inn.
Fanney: „Sumir hafa bara ekkert
fengið að vera í menntaskóla, fara á
böllin og í sleikinn. Ég bara geri ráð
fyrir því að tugir hjónabanda verði
ekki vegna þessa.“
Máni: „Þetta er eitthvað sem ekk-
ert var hægt að gera í en við verðum
að finna út hvernig við ætlum að
leysa þetta.“
Fanney: „Oft hefur verið þörf en
nú er nauðsyn að stíga skrefin í að
niðurgreiða sálfræðiþjónustu á sem
flestum sviðum.“
Kári Stefáns ...
Fanney: „Við tölum oft um að við
elskum að hata einhvern en ég held
að íslenska þjóðin hati að elska Kára
Stef. Við elskum hann en eigum
samt svo erfitt með hann. Hann
hefur unnið gríðarlega mikilvægt
starf fyrir þjóðina og oft verið þessi
andspyrnurödd.“
Máni: „Bæði Kári og Þórólfur hafa
verið tilbúnir að ræða hlutina og
svara þeim spurningum sem maður
spyr þá. Kári hefur peppað þjóðina
meira á erfiðum tímum heldur en
þjóðin hefur gefið honum kredit
fyrir. Hann hefur alltaf verið sann-
gjarn í sinni gagnrýni. Hann hefur
hrósað ríkisstjórninni fyrir það sem
er vel gert en líka látið hana heyra
það þegar það þarf. Ég held bara að
þjóðin ætti að vera meira eins og
Kári.“
Fanney: „Kári mætti stundum
anda aðeins meira með nefinu en
hann er litríkur og þorir að segja
hvað honum finnst – alveg sama
hver það er í það skiptið sem mun
finna fyrir því.“
Máni: „Ég held að Þórólfur sé
gríðarlega þakklátur fyrir Kára,
því Kári má segja það sem Þórólfur
getur ekki sagt – en kannski langar.“
Bubbi Morthens ...
Máni: „Bubbi er orðinn stofnun. Í
Covid fór hann að selja verkin sín,
gerði þessa leiksýningu og gaf út frá-
bæra plötu. Mér finnst Bubbi stór-
kostlegur.“
Fanney: „Talandi um útskúfunar-
kúltúrinn þá finnst mér Bubbi hafa
leyfi til að tjá sig og misstíga sig. Við
erum svo fljót að fyrirgefa Bubba.
Stundum hittir hann akkúrat nagl-
ann á höfuðið en stundum er hann
doldið skakkur en þá kemur hann
oftast bara og segir: „Ég var bara
ekki búinn að hugsa þetta alveg –
sorry með mig.“ Þá er maður bara:
„Allt í lagi, Bubbi minn.“
Maður finnur það að hann er allt-
af á einhverri vegferð til að bæta sig.
Hann biðst fyrirgefningar ef hann
þarf og fær hana eiginlega alltaf.
Þannig virkar líka heilbrigt sam-
félag, svo framarlega sem þú ert ekki
að gera hræðilega hluti máttu mis-
stíga þig og biðjast fyrirgefningar ef
þess þarf.“
Máni: „9 Líf er er stórkostleg sýn-
ing.“
Fanney: „Fórst þú að gráta yfir
henni? Ég þekki engan sem ekki
hefur farið að gráta.“
Máni. „Nei.“
Fanney: „Varstu nálægt því?“
Máni: „Nei, ég græt yfir öðruvísi
hlutum. En þetta var frábært stöff.“
Plastpokabannið ...
Fanney: „Það sem hafði mest áhrif
á mig á árinu var plastpokabannið.
Nú er ég með svo mikið af pappa-
pokum heima hjá mér því ég get
ekki munað eftir því að taka með
mér fjölnotapoka í búðina enda
með sjálfgreindan áunninn ADHD.“
Máni: „Plast er per se ekki slæmt
heldur hvernig við nýtum það eða
notum. Þetta var fallegt sjálfsprottið
verkefni hjá Rakel Garðars á sínum
tíma og gott að fólk fór að spá í plast-
notkun sína en þá ákveða pólitíkus-
arnir að stíga inn með einhverjum
boðum og bönnum sem ég er alfarið
á móti. Það má líka benda á hversu
skaðlegt það var fyrir íþrótta- og
listalífið að pokasjóður var lagður af.
Það er ekki búið að sanna fyrir mér
að það hafi verið góð hugmynd að
taka út þessa plastpoka.“
Alþingiskosningar ...
Máni: „Ég barðist fyrir því að fólk
myndi skila auðu í þessum kosn-
ingum. Ísland er að verða minna og
minna lýðræðisríki. Við ætlumst til
þess að fjölmiðlar séu fjórða valdið
og veiti aðhald en staðreyndin er
aftur á móti sú að þingmenn eru
á helmingi hærra kaupi en meðal
blaðamaður. Styrkir til frjálsra fjöl-
miðla voru 800 milljónir en styrkir
til stjórnmálaflokka 2,8 milljarðar.
Þetta fólk á þinginu talar eins og
þetta sé í nafni einhvers lýðræðis.
Þetta er náttúrlega ekki í nafni
neins lýðræðis. Stjórnmálamenn eru
hættir að fá nokkra gagnrýni í fjöl-
miðlum – við erum alltaf bara að sjá
þá í einhverjum spurningaþáttum og
svo framvegis. Þetta er fólk sem á að
svara fyrir það sem það gerir í starfi.“
Fanney: „Ég tek að mestu leyti
undir þetta. Launin fara ekki
hrikalega í taugarnar á mér en
skömmtunin til f lokkanna gerir
það. Á þessu kjörtímabili var starfs-
mönnum f lokkanna fjölgað og ég
sá það fallega fyrir mér sem tæki-
færi fyrir f lokkana til að rannsaka
betur hvað þeir væru að gera og
væru með fólk sem myndi undir-
búa frumvörp og f leira. Í staðinn
eru bara enn f leiri að setja efni á
Instagram og búa til podköst.
Ég gæti eiginlega ekki tekið meira
undir varðandi stöðu fjölmiðlanna
og sérstaklega þá einkareknu. Það
eru ótrúleg vonbrigði að það frum-
varp hafi ekki verið hnitmiðaðra
því ég held að bæði stóru og minni
einkareknu fjölmiðlarnir þurfi
mikinn stuðning. Það er það versta
sem kemur fyrir minn fyrrverandi
vinnustað, Ríkisútvarpið, að það
séu ekki jafnsterkir aðilar að bjóða
upp á svipaða og sambærilega vöru.
Þetta er að öllu leyti versta mál.“
Máni: „Fyrir mér er þetta alvar-
legra mál en klúðrið í Norðvestur
kjördæmi. Fjölmiðlar brugðust í
þessu máli því fjölmiðlar þora aldr-
ei að tala um sjálfa sig. Kosninga-
baráttan fór bara ekki í neitt.
Fanney: „Mér finnst reyndar
talningin í Norðvestur stórkost-
lega alvarlegt mál og ég vona að það
verði lagst grundigt yfir kosninga-
lögin. Ég hef unnið í kosningum og
áttað mig á því að eitt atkvæði til
eða frá verður líklega alltaf rangt
þegar mannshöndin kemur þar að.
En þetta var bara svo miklu meira
og svo mikill hroki sem fylgdi þegar
síðan kom að útskýringum. Svo var
þetta bara eins og einhver Tvíhöfða-
skets þegar rannsóknarnefndin
með Birgi Ármanns í fararbroddi
fór þarna einhverjar 20 ferðir.
Máni: „Það var líka magnað
hvernig Sjálfstæðisflokkurinn fékk
alla til að samþykkja að einhverju
leyti að þeir ætli að fara að virkja
hérna eins og enginn sé morgun-
dagurinn og töluðu um það í nafni
umhverfisnefndar. Þeir ætla að raf-
bílavæða en það verður ekki gert
á Íslandi nema hér verði virkjað
miklu meira. Því hefði umræðan átt
að fara í það að búa til almennilegar
samgöngur í þessu landi. Ég verð að
gefa þeim prik fyrir það – þetta var
frábært múv hjá þeim.“
Fanney: „Mér fannst þetta ógeðs-
lega skemmtileg kosningabarátta. Ég
hafði sagt í öllum spjallþáttum sem
ég var boðuð í að þær væru að fara
að enda langt til vinstri en nei, nei!“
Máni: „Það er náttúrlega engin
hægri sveifla á Íslandi.“
Fanney: „Nei, en ég hélt að þetta
yrði meira afgerandi til vinstri og
var alveg hörð á því að Sósíalista-
f lokkurinn kæmist inn og jafnvel
með nokkra þingmenn.“
Máni: „Það var kannski erfitt
fyrir Sósíalistaflokkinn að komast
inn þegar Sjálfstæðismenn, Vinstri
græn og Framsókn eru að reyna að
breyta íslensku samfélagi í sósíal-
istaríki. Við sjáum að fjölgun opin-
berra starfsmanna er orðin það
mikil að ef þessi þróun heldur áfram
eru allar líkur á að hér verði gríðar-
legt efnahagshrun og við breytumst
í Venesúela.“
Fanney: „Það er svo skemmtilegt
hvað vinstrimennska þín er alltaf
ófyrirsjáanleg.“
Máni: „Verðmæti verða ekki
búin til í ríkinu, það þarf að gerast
í einkageiranum. Þessir þrír vinstri
flokkar sem nú stjórna landinu sýna
að það er þörf á hægri stjórn.“
Árið 2022 ...
Máni: „Ég veit ekki hvort það sé
hluti þess að eldast eða hvað en
mér finnst hvert ár betra en síðasta,
kannski bara því ég er hamingju-
samari. Ég held að það verði áfram
Covid-vesen og reiði en ég held
að þetta verði ekkert verra. Þetta
verður frábært ár.“
Fanney: „Ég sá þetta ár fyrir mér
sem árið sem Covid myndi klárast
og maður gæti haldið áfram með
líf sitt, þannig ég ætla núna bara að
búast við því sem úr varð. Það komi
jafnvel bylgjur, en minni og von-
andi veikist fólk minna. En ég býst
við takmörkunum og að við verðum
kannski ekki mikið í útlöndum.“
Máni: „Ég verð að komast á Leeds-
leik. Það er það eina sem ég fer fram
á.“
Fanney: „Annars er ég pínu á
sama stað og Máni, ég á tæplega
þriggja ára stelpu og það er allt betra
með henni og ég held að næsta ár
verði engin undantekning á því.“
Máni: „Ég er á hverjum degi glað-
ur yfir því að synir mínir tveir séu
ekkert líkir föður sínum.“
Fanney: „Dóttir mín er alveg eins
og ég – það er viðfangsefni.“ n
Ég held að
oftast eigi
fólk aftur-
kvæmt í
þessu
samfélagi.
Fanney
Og guð
blessi stelp-
urnar í
Öfgum og
alla þá sem
hafa talað
með öfga-
fullum
hætti í
gegnum
tíðina.
Fanney
Fólk sem
slúðrar um
annað fólk
er upp til
hópa
drullu-
sokkar.
Máni
Ég held
bara að
þjóðin ætti
að vera
meira eins
og Kári.
Máni
50 Helgin 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ