Fréttablaðið - 11.12.2021, Side 90

Fréttablaðið - 11.12.2021, Side 90
Önnur eins frumraun hefur ekki sést síðan Mamma Mia! var á fjölum sama sviðs. LEIKHÚS Emil í Kattholti Borgarleikhúsið Höfundur: Astrid Lindgren Leikstjórn: Þórunn Arna Kristjánsdóttir Leikarar: Gunnar Erik Snorrason/ Hlynur Atli Harðarson, Sóley Rún Arnarsdóttir/Þórunn Obba Gunnarsdóttir, Ásthildur Úa Sigurðardóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Esther Talía Casey, Þorsteinn Bachmann, Sigrún Edda Björnsdóttir, Aron Már Ólafsson/ Haraldur Ari Stefánsson, Árni Þór Lárusson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Jóhann Sigurðarson, Rakel Ýr Stefánsdóttir, Sólveig Arnarsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir Þýðing: Þórarinn Eldjárn Sigríður Jónsdóttir Emil, Ída og allir kunnuglegu karakt- erarnir frá Smálöndunum eru mætt á stóra sviðið í Borgarleikhúsinu og greinilegt er að eftirvæntingin er mikil. Nú þegar er uppselt á ríflega tuttugu sýningar og aðrar tuttugu komnar í sölu. Emil í Kattholti er fyrsta leikstjóraverkefni Þórunnar Örnu Kristjánsdóttur og önnur eins frumraun hefur ekki sést síðan Mamma Mia! var á fjölum sama sviðs. Emil í Kattholti hrífur áhorf- endurna með sér í ævintýralegt ferðalag, sýningin er uppfull af eftir- minnilegum atriðum og hressandi skandinavískum sósíal-realisma. Fjandakornið, Astrid Lindgren kunni að skrifa. Auðvitað eru þetta ekki neinar fréttir, en líkt og landar hennar í hljómsveitinni ABBA skrifar hún skotheldar sögur, skrúf- aðar saman af tæknilegri kunnáttu og talar aldrei niður til fólks. Hrein unun er að sjá músagildruatriðið, eins konar byssa Tsjekhovs fyrir börn, þróast og ná óumflýjanlegum endapunkti. Töframáttur Lindgren felst í því að sögurnar þroskast með mannfólkinu, eftir því sem við eldumst þá sjáum við sagnabálk hennar í nýju ljósi. Hvernig hún laumar inn skandinavískum sósíal- realisma um stéttaskiptingu, lexí- um um góðmennsku og f lóknum samskiptum kynslóða, í ævintýri ætluð börnum. Mögnuð frumraun Leikstjórafrumraun Þórunnar Örnu er algjörlega mögnuð, eins og áður sagði. Hún þræðir saman fjöl- skyldudrama, ærslagang og fjörug söng atriði í risastórri sýningu, en einstakir karakterar fá líka að njóta sín. Þær Maríanna Clara Lúthers- dóttir eru skrifaðar fyrir viðbótum og yfirferð á leikgerðinni, sem er listilega þýdd af Þórarni Eldjárn. Ekki er víst hvort hægt sé að fá leyfi fyrir slíkum breytingum en fella má texta úr handritinu, sýningin er vel tveir og hálfur tími að lengd, og dalar strax eftir hlé, en blómstrar síðan aftur undir lokin. Emil og skammarstrikin hans eru auðvitað miðpunktur sögunnar. Oftar en ekki er Ída systir hans óaf- vitandi þátttakandi. Leikgleðin og gæðin beinlínis geisluðu af ungu leikurunum tveimur á frumsýn- ingu. Gunnar Erik Snorrason og Þórunn Obba Gunnarsdóttir heill- uðu alla upp úr skónum með leik og söng, hreyfingum og hremmingum. Jólasöngur Ídu bræðir köldustu hjörtu og sá fullorðni áhorfandi sem klökknar ekki þegar Emil festist í snjónum þarf að hugsa sinn gang. Kann að stela senunni Sigurður Þór Óskarsson er hér á heimavelli með hjartað á erminni og söng í hjarta. Söngur Alfreðs púlsmanns er einn af hápunktum sýningarinnar. Textasmíð Lind- gren er þarna upp á sitt allra besta og laumar lipurlega inn tregasöng um verkamannastrit í barnaleik- rit, túlkað eftirminnilega af Sigurði Þór. Ásthildur Úa Sigurðardóttir er sömuleiðis að stimpla sig inn á leik- sviðið með stæl. Hún fer með hlut- verk lánlausu vinnukonunnar Línu sem mænir í áttina til Alfreðs, sem vill mismikið með hana hafa, og lendir sjálf í ýmsum uppákomum. Ef að hún heldur rétt á spilunum og fær tækifæri til, þá hefur hún alla burði til þess að vera arftaki sjálfrar Sigrúnar Eddu Björnsdóttur, sem kemur frekar við sögu síðar. Anton og Ölmu leika Þorsteinn Bachmann og Esther Talía Casey. Fremur vandasamt er að túlka fjöl- skylduföðurinn þannig að hann birtist ekki sem of beldisfullur hrotti og tekst Þorsteini það ágæt- lega. Esther Talía gefur honum gott mótvægi sem þolinmóða og blíða húsmóðirin sem trúir engu slæmu upp á börnin sín. Hlutverk Týtu- berja-Mæju er í raun ekki stórt, en Sigrún Edda veit að lítil hlutverk eru ekki til og sú kann að stela senunni. Sveitavéfréttin, vara-amman og sagnameistarinn lifna við í hennar höndum. Jóhann Sigurðarson kann sömu töfrabrögðin og er ljúfleikinn uppmálaður sem vinalegi sveita- læknirinn, yndislegt er að sjá hann leika á móti litla mótleikaranum. Töluvert er af smærri hlutverkum og margir leikarar leika fleiri en eitt slíkt. Sólveig Guðmundsdóttir hittir í mark í hlutverki snobbhænunnar. Sólveig Arnardóttir setur mikið afl í illu Ráðskuna en sú saga líður fyrir staðsetningu sína í leikritinu og er fremur kraftlítil. Aðrir leikarar styrkja sýninguna með gleðina að vopni og samstilltu átaki. Flaggað í fulla stöng Á síðustu árum hefur Disney-brag- urinn einkennt barnasýningar af stærri gerðinni, en hann er hvergi að finna í Smálöndunum. Leikmynda- hönnuðurinn Eva Signý Berger hefur aldrei verið betri. Sveitabýlið og skammarkrókurinn opnast fyrir augum áhorfenda líkt og dúkkuhús. Hver kimi er nýttur, bakgrunnurinn gefur dýpt og Lúkas, hesturinn góði, er listasmíð. Litadýrðin er líka við völd í búningahönnun Maríu Th. Ólafsdóttur, og sumarlegu hátíðarbúningarnir eru sérlega vel heppnaðir. Danshöfundurinn Lee Proud er orðinn ansi kunnugur stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu og sviðshreyfingarnar bera þess merki. Hvert hrífandi dansatriði rekur annað, fágun og fjör haldast í hendur. Hljómsveitin rekur síðan smiðshöggið á listrænu umgjörðina. Emil í Kattholti er kærkominn sólargeisli inn í dimmasta skamm- degið. Áhorfendur fylgja Emil og fjölskyldu heilan hring í kringum sólina. Ferðalagið verður örlítið of langt þegar sýningin dvínar eftir hlé, en þegar hún finnur fæturna á ný tekur hún á sprett inn í sumarið. Þórunn Arna og hennar teymi geta svo sannarlega flaggað í fulla stöng enda er hér á ferðinni stórglæsileg sýning fyrir alla fjölskylduna. NIÐURSTAÐA: Bráðskemmtileg sýning sem hittir beint í hjarta- stað. Hin óviðjafnanlegu Emil og Astrid Emil í Kattholti er kærkominn sólargeisli inn í dimmasta skammdegið. MYND/GRÍMUR BÆKUR Kóperníka Sölvi Björn Sigurðsson Fjöldi síðna: 390 Útgefandi: Sögur útgáfa Kristján Jóhann Jónsson Aðalpersónan, Finnur Kóperníkus, er unglæknir. Sagan hefst 1888 og hann starfar á Konunglega spítal- anum í Kaupmannahöfn. Besti vinur hans, læknaneminn Halldór Júbelíum, er myrtur í húsasundi. Rist er á kvið hans og annað nýrað fjarlægt. Það er fagmannlega gert svo að grunur beinist að starfs- mönnum spítalans. Andersen, annar helsti læknir spítalans, fær Finni það verkefni að finna morð- ingja Halldórs. Þar með getur frá- sögnin hafist. Andersen tekur það ekki í mál að talað sé við hálfvitana í lögreglunni. Það hamlar framvindu að sögu- maður hefur marga bolta á lofti í senn og ekki auðséð hvert sumir þeirra hafa skoppað. Halldór er myrtur og unglæknirinn Finnur leitar morðingjans. Gömul hjón, náskyld Halldóri, eru einnig drep- in, einhver reynir að leyna því að þar séu morð á ferð. Einhver styttir gamalli mellumömmu aldur, gleði- konur hverfa og nokkur götubörn. Finnur hugar að þessum glæpum í leiðinni og sagan hvarf lar milli þeirra, því hann grunar að þeir tengist. Ýmislegt bendir líka smám saman til tengsla milli glæpa, en það færir rannsakandann ekki nær niðurstöðu um morðið á Halldóri. Staðan í rannsókn Finns er óbreytt mjög lengi. Auk þessa stendur Finnur í löngum og frekar torræðum átök- um við Andersen lærimeistara sinn. Andersen stendur líka í átök- um við Wilburn, hinn aðallækninn á spítalanum. Nokkuð er sagt frá leiðinlegum, orðheppnum stúd- ent sem heitir Júlíus Skjaldormur, er tveimur árum yngri en Finnur og virðist vilja skyggja á hann. Inn í söguna kemur svo hópur ungra baráttukvenna sem kalla sig Ragetturnar. Þær tala grodda- lega til pilta, segjast vilja hafa þá í búri og taka tittlinginn á þeim út á milli rimlanna til sinna þarfa. Þetta er að mestu leyti í nösunum á þeim þegar til á að taka. Þá geta þær breyst í geðprúðar ástmeyjar. Lengst af standa þessi átök í óljós- um tengslum við lykilspurninguna: Finnur Finnur morðingja Halldórs? Hér verður auðvitað ekkert sagt um málalyktir. Margt er ónefnt enda sagan 390 blaðsíður. Öll þessi átök og andstæður eru meira og minna óleyst lengi vel. Eftir mið- bik fer ýmislegt að skýrast en hnitmiðuð bygging hefði verið til góðs. Málfar er víða gallað og stíl ábótavant. Við tölum til dæmis sjaldan um að mönnum sé „veitt eftirseta“, að „reknar séu úr þeim garnirnar“, eða um „kvíðsjúklinga sem þrotnir eru af raunum“. Ég tel ekki upp f leira af þessu en slakar lausnir í málfari og stíl spilla alltaf fyrir söguþræði, vegna þess að lesandinn hnýtur um ambögur. Það er ekki nóg að birta á bókar- kápu yfirlýsingar frá stórmennum um að höfundurinn sé „stílisti af guðs náð“, bókin sé „glæpasaga ársins“, og jafnframt „miði á fyrsta farrými lestursins“ (hvað sem það þýðir nú.) Hin yfirgengilega snilld verður líka að sjást á blaðsíðum bókarinnar. n NIÐURSTAÐA: Spennusaga sem gerist meðal Íslendinga í Kaup- mannahöfn seint á nítjándu öld. Flestar aðalpersónur tengjast læknavísindum með einhverju móti. Það er áhugaverð hugmynd að láta söguna gerast í þessu umhverfi á þessum tíma, en hér vantar ritstjórn og yfirlestur. Þar hefur útgefandinn brugðist höf- undi sínum. Unglæknir leysir gátuna 64 Menning 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 11. desember 2021 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.