Fréttablaðið - 11.12.2021, Side 102

Fréttablaðið - 11.12.2021, Side 102
Ég er ofboðslega þakk- lát fyrir að hafa kynnst honum. Hann er auðvitað bara alveg einstakur maður. Erla Hlynsdóttir byrjaði að skrifa ævisögu Guðmundar Felix Grétarssonar í byrjun árs 2014, þegar talið var að nýjar hendur hans væru innan seilingar. Erfið biðin reyndist miklu lengri og á meðan hann beið eftir höndunum beið Erla eftir því að geta skrifað dramatískan hápunkt magnaðrar sögu sem hún rekur í bókinni 11.000 volt, sem kemur út sjö árum eftir að hún hófst handa. toti@frettabladid.is Erla Hlynsdóttir blaðamaður var með ævisögu Guðmundar Felix Grétarssonar í vinnslu í sjö ár. Hún byrjaði á bókinni, 11.000 volt, í árs­ byrjun 2014, en hún gat vitaskuld ekki klárað frásögnina fyrr en dramatískum hápunktinum, sögu­ legri handaágræðslunni, var lokið. Bið þeirra Erlu og Guðmundar var þó ekki til einskis. Hann hefur tekið nýju lífi tveim höndum og bókinni hefur verið vel tekið og er til dæmis þriðja besta ævisaga ársins, að mati starfsfólks bókaverslana. Leitin að ævisögunni „Ég var búin að vinna á fjölmiðlum nokkuð lengi og búin að skrifa þó nokkuð af forsíðuviðtölum og fann að mig langaði að gera eitthvað aðeins stærra og meira og fór að velta fyrir mér hvort það væri ekki bara tilvalið ef ég gæti skrifað ævi­ sögu einhvers,“ segir Erla. Hún var með þetta bak við eyrað þegar hún rak augun í litla frétt á mbl.is 2013, þar sem Guðmundur Felix greindi frá því að franskt bókaforlag hefði haft samband við hann og að fólk þar vildi endilega gefa út ævisögu hans. Sterk tenging „Ég hafði aldrei talað við Guðmund Felix áður en setti mig bara í sam­ band við hann,“ segir Erla, sem bauð sig fram til ævisöguskrifanna. „Honum leist bara ágætlega á þetta þannig að ég fer bara til hans út til Lyon og við hefjum þessa vinnu,“ segir Erla og bætir aðspurð við að þau hafi síðan orðið góðir vinir. „Það myndast náttúrlega sterk tenging og hann er náttúrlega að treysta mér í rauninni til að koma í orð afskaplega vandmeðförnum hlutum og viðburðum í lífi hans. Þannig að þetta var bara mjög dýr­ mætt. Ég er of boðslega þakklát fyrir að hafa kynnst honum. Hann er auðvitað bara alveg einstakur maður.“ Mikill áhugi í Frakklandi Sögur útgáfa gefur bókina út á Íslandi, en franska þýðingin kemur út hjá Les Arénes sem flaug Erlu til Frakklands þar sem þau Guðmund­ ur Felix skrifuðu undir útgáfusamn­ ing. „Það lá alltaf fyrir að ég myndi klára verkið á íslensku og síðan yrði þetta þýtt, þannig að þeir sáu alltaf fyrir sér samstarf við íslenskt for­ lag,“ segir Erla og víkur að miklum áhuga Frakka á Guðmundi Felix og nýju höndunum hans. „Ástæðan fyrir því að franska forlagið hefur þennan áhuga er að Frökkum þótti og þykir mjög merki­ legt að franskir læknar séu komnir svona framarlega og hafi gert þessa aðgerð sem Guðmundur fór loksins í núna í ársbyrjun og er einstök á heimsvísu,“ segir Erla og áréttar að jafn flókin aðgerð og handaágræðsl­ an er, hafi aldrei verið gerð áður. Endurtekin vonbrigði Erla og Guðmundur ákváðu strax í upphafi að bókin myndi ekki koma út fyrr en aðgerðin væri að baki. „Þá náttúrlega reiknuðu allir með því að hann væri að fara í aðgerð og hann var að flytja út,“ segir Erla um stöð­ una þegar hún hóf verkið. „Við höfðum meira að segja á tímabili áhyggj­ ur af því að við n æ ð u m e k k i að klára bókina áður en hann færi í aðgerðina. Það voru alveg r au nve r u l e g a r áhyggjur þarna 2014. En annað kom nú á daginn.“ Erla segir meira skrifræði en nokk­ urn hafi órað fyrir, óvænt ar reg lu­ gerðabrey tingar og mikill undir­ bú n i ng u r st ór s læknateymis hafi átt sinn þátt í töf­ unum. „Læknarnir voru til dæmis að æfa sig á að gera aðgerð á líkum, þannig að strax þarna var gríðar­ legur undirbúningur farinn í gang, en síðan var alltaf eitthvað að koma upp á og ég náði varla að fylgjast með þessu lengur. Þessi bið var Guðmundi Felix auðvitað afskaplega erfið og oft var þetta þannig að hann átti bara að fá fréttir í næsta mánuði, síðan í næsta og síðan í mánuðinum þar á eftir, þannig að þetta voru svona endur­ tekin vonbrigði þegar það var alltaf verið að fresta þessu.“ Endasprettur í endurhæfingu Erla segir bókina því að mestu leyti hafa verið tilbúna fyrir alllöngu síðan, fyrir utan aðgerðarhlutann. „Þannig að þetta er svona búið að fylgja mér í öll þessi ár og ég au ð v i t a ð h e f sömuleiðis, eins og Guðmundur, verið að bíða eftir aðgerðinni, sem varð sem bet u r fer að rau nver u leik a núna.“ Erla byrjaði síðan á loka­ s p r e t t i n u m skömmu eftir aðgerðina og lagði su mar­ fríið sitt undir skriftir og frá­ gang. „Það er í rauninni bara mjög stuttu eftir aðgerðina sem franska forlagið hefur samband við mig og spyr hvort ég sé ekki til í að klára þetta núna.“ Erla minnist þess að eftir aðgerð­ ina hafi hún hikað við að athuga hvort Guðmundur Felix væri tilbú­ inn til þess að klára bókina. „Eftir aðgerðina vissi ég ekki alveg hver rétti tímapunkturinn væri og hvort við ættum eftir aðgerðina að fara að klára þetta. Vegna þess að hann var náttúrlega að jafna sig og á fullu í endurhæfingu. En síðan bara kom þessi póstur frá franska forlaginu, þannig að þau voru greinilega alveg að fylgj­ ast með. Og fréttir af aðgerðinni voru náttúrlega mjög fyrirferðar­ miklar í Frakklandi,“ segir Erla og bætir við að Guðmundur Felix hafi fengið sendar fréttir úr fjölmiðlum í flestum heimsálfum.“ ■ Bókin kláruð þegar hendurnar komu Erla vonast til þess að hitta Guðmund Felix í lok næstu viku en gangi allt upp kemur hann til Íslands þrátt fyrir að vera á fullu í endur- hæfingu í Frakk- landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI toti@frettabladid.is Embla Gísladóttir, tólf ára nemandi í Kársnesskóla, og vinkonur hennar þrjár, Katrín Ásta Benjamínsdóttir Wheat, Þorgerður Bryndís Blomst­ erberg og Karolína Ósk Guðmunds­ dóttir, mættu með gleði og hlýju í Austurstræti á fimmtudagskvöld, þegar þær seldu kakó og kleinur á förnum vegi. Hugmynd vinkvennanna um að selja kakó og kleinur í þágu góðs málefnis kviknaði þegar Embla horfði á nýju íslensku barnamynd­ ina Birtu og langaði að láta gott af sér leiða með svipuðum aðferðum og jafnaldra hennar og aðalpersóna myndarinnar. „Ég talaði við vinkonur mínar og hringdi svo í ömmu Öddu sem hjálpaði mér við að steikja helling af kleinum,“ segir Embla. Vinkonurnar hjálpuðust að við að laga heitt súkkulaði og setja piparkökur í poka með slaufum. Þá útbjuggu þær auglýsingaskilti og verðskrá en allur ágóðinn rennur til Barnaspítala Hringsins. „Við ætlum að halda þessu áfram fram að jólum þegar við erum ekki á æfingum eða í skólanum og við vonumst til að sjá sem f lesta og safna sem mestu,“ segir Embla sem var mjög áfram um að fá umfjöllun í Fréttablaðinu og hvergi annars staðar. Fyrsta kakókvöldið var í gær og þá kláraðist kakóið á aðeins þrjátíu mínútum. „Við ætlum að passa að hafa nóg næst,“ segir Embla reynsl­ unni ríkari, en stelpurnar eru allar komnar með sinaskeiðabólgu af kleinusteikingu. ■ Kakóið kláraðist á þrjátíu mínútum Embla, Katrín Ásta , Þorgerður Bryndís og Karolína Ósk Guðmunds- dóttir láta gott af sér leiða í jólabirtunni. MYND/AÐSEND „Það er alltaf svo mikið af ótrúlega góðum bókum og ég einhvern veg­ inn er aldrei að bíða eftir neinu til að lesa. Ég er bara að saxa á listann,“ svarar rithöfundurinn Bergþóra Snæbjörnsdóttir, aðspurð hvort hún sé að bíða eftir ákveðinni bók í jólapakka. Hún nefnir þrjár bækur sem hún er að lesa þessa dagana og þar er að sjálfsögðu efst á blaði bókin Arnald­ ur Indriðason deyr, eftir kærastann hennar, Braga Pál Sigurðarson. „Ég verð náttúrulega að segja Arnaldur Indriðason deyr, ég er búin að lesa hana mjög oft. En ég var að lesa hana í síðasta sinn fullkláraða.“ Myrkrið milli stjarnanna – Hildur Knútsdóttir „Ég las hana bara á einu kvöldi, mann langar ekkert að leggja hana frá sér.“ Óskilamunir – Eva Rún Snorradóttir „Hún er svona óþægileg, það er alltaf eitthvað undirliggjandi. Eitthvað sem marrar undir,“ segir Bergþóra. „Þetta er fyrir mér eiginlega skáld­ saga, en þarna eru margar stuttar sögur. Sögumaðurinn er síðan allt­ af sá sami, þannig að þetta er eins og bræðingur af smásagnasafni og skáldsögu,“ segir hún. Herbergi í öðrum heimi – María Elísabet Bragadóttir „Sjitt, hvað hún er góð, ég varð eigin­ lega græn af öfund! Hún situr í og er svo vel skrifuð.“ ■ Las morðsögu kærastans oft Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöf- undur reynir reglulega að saxa á listann af ólesnum bókum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI ■ Hvað ertu að lesa? Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöfundur 76 Lífið 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 11. desember 2021 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.