Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1967, Page 77

Strandapósturinn - 01.06.1967, Page 77
verður slysagjarnt. Jafnframt er hann hygginn og lærir furðu fljótt að átta sig á óförum. Mjög sjaldan kemur það fyrir, að eldri selir komi í net. Er það helzt, ef urta verður of nærgöngul við að forða barni sínu frá háskanum. Margoft synda þær fyrir kópana og berja þá frá netunum. Oft eiga þær í miklu stríði við óvitana. Þegar líður á vor eru kópamir orðnir slyngir að forðast netin. Er þá eins og þeir hafi gaman af að tefla á fremstu nes. Leika þeir ýmsar listir á sundinu. Stundum Hggja þeir mar- flatir rétt við yfirborð, spretta svo kannske upp allt í einu og stinga sér djúpkaf, koma svo beint upp spöl frá, teygja sig þá upp úr sjónum, svo það sér aftur fyrir framhreifa. Meðan hinir eldri selir héldu sig við skerin, höfðu þeir ekki í frammi þessi bamalæti. Kæmi fyrir að út af bæri því hversdagslega, var oftast alvara með í leiknum. Sýndist þá ekkert til sparað. Var beitt bæði kjafti og klóm. Enda hef ég aldrei séð dauðan fullorðinn sel, sem ekki hefur verið allur örum og kaunum settur. Ég hefi yfir 30 ár farið til selveiða í Þorkelssker á hverju vori, er það nú þessi seinustu ár orðið með öðmm hætti en hér hefur verið lýst. Nú er farið fram í Sker, lögð netin og haldið sem hraðast til lands aftur. Svo má heita, að allur selur hverfi nú orðið, þegar hann verður manna var. Kemur heldur að aftur, eftir að farið er frá. Er svo vitjað um netin eftir því sem þurfa þykir. En mjög verður að ráðast, hvernig um þau fer, gangi til hvassrar norðaustanáttar um langan tíma.. Breytilegt var um að Htast í skerjunum meðan sá siður hélzt að liggja frammi. Stundum gekk í hvassviðri með úrkomu, í sjó gekk, svo að setja varð bátinn upp á skerin. Þykkur þokukúfurinn mokaðist upp og byrgði aUa fjallasýn, nema þau er næst voru og þá aðeins hið neðra. En oft var öðru vísi um að litast. Ogleymanlegastar vom lágnættisstundirnar um vorsólstöður. Sólin kom fram undan norðurfjöllunum, aðeins nýstigin upp af haffletinum, sló hún roðaglóð inn yfir lognsléttan flóann. Ekkert rauf lágnættiskyrrðina, nema einstaka selur, sem með mestu varfærni teygði koUinn upp úr sjónum, seig hann með hægð niður aftur og skildi eftir gullhúfuna, sem hann hafði orðið að setja upp, þegar hann horfði móti sólu. Efeim var lágt til 75
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.