Strandapósturinn - 01.06.1972, Blaðsíða 61
er það ekki þannig með flest, að við náttúruna er fáu að jafna,
þegar hún skartar sínu fegursta og bezta, eða þá því gagnstæða.
Mér er þessi nótt ógleymanleg, og í vitund minni lifir hún trú-
lega til hinztu stundar, og af því að ég á enga listsköpun í myndum
né máli, þá á ég þessa nótt einn, fyrir mig einan. Það er líka
nokkuð, sem margir sækjast eftir, að eiga eitthvað, sem aðrir eiga
ekki, né geta eignazt. Og því skyldi ég vera þar nokkur undantekn-
ing.
En þessi nótt líður, sem allar aðrar nætur. Eftir klukkan þrjú
vaknar bjargbúinn og fer að fljúga um í fæðuleit. Hann er þó
ekki kominn til fullra starfa fyrr heldur en um klukkan fimm að
morgni. Þá fer líka að lifna yfir veiði hjá okkur, sá guli er að
vakna. Við fáum góðan afla og keppumst við að draga. Eftir
hádegið erum við út af Barðsvík, og þá er ákveðið að fara í aðgerð.
Skroppið er inn til Furufjarðar á meðan, því skipstjóri á erindi við
bóndann þar, sem þá var Arni Guðmundsson.
Furufjörður var eitt allra bezta landbúnaðarbýli á þessum slóð-
um á meðan fólk hafði búsetu þama norður frá. Ámi Guðmunds-
son og kona hans vom þekkt fyrir gestrisni og góða fyrirgreiðslu
þeirra, er ferðuðust á þessum slóðum. Hjá þeim fór saman mynd-
arskapur og hreinlæti jafnt úti sem inni. Ámi var líka þekktur í
Hnífsdal, því þar hafði hann verið á vertíðum á sínum yngri áram.
Ekki var það þó ætlun okkar nú að nota okkur gestrisni þeirra
hjóna, til þess gáfum við okkur ekki tíma. Við skutluðum skip-
stjóra okkar í land og sóttum hann, er hann hafði lokið erindi
sínu. Með honum fengum við senda mjólk, sem okkur var kær-
komin. Að aðgerð lokinni var ákveðið að halda í Reykjarfjarðarál.
Ég átti þá ekki dekkvakt og var því fljótur að gista kojuna. Ég
hafði þá heldur ekki lagt mig á annan sólarhring. Annars var ég á
þessum árum ákaflega svefnléttur og þá einkum á sjó. Ég var góður
ef ég fékk tveggja til þriggja tíma svefn.
Tveim dögum seinna emm við á heimleið vestur fyrir Horn. Nú
var skipt um veður. Kominn var norðaustan stormur og nokkur
sjór. Það snjóaði í fjöll og festi niður í miðjar hlíðar þama norður
frá.
Nú var kalt og blautt í Hombjargi. Fuglinn sat hnípinn og
59