Strandapósturinn - 01.06.1991, Blaðsíða 21
Grásleppuveiði var frekar léleg vorið 1991, en sala afurðanna
gekk mun betur en árið áður.
Grunnvíkingur ÍS var gerður út frá Hólmavík á hörpudisks-
veiðar fyrir Kaupfélag Steingrímsfjarðar fyrstu mánuði ársins.
Utgerðin gekk illa og bilanir voru tíðar. Heildarveiðin frá áramót-
um til aprílloka var aðeins um 23,5 tonn.
Á síðasta vetri var leyfð veiði á 2000 tonnum af rækju í Húna-
flóa, og sem fyrr kom helmingur þess magns í hlut Hólmvíkinga
og Drangsnesinga. Veiðarnar gengu þokkalega, en rækjan var
smá, uþb. 250-280 stk. í kílóinu. Nú í vetur var aftur leyfð veiði á
2000 tonnum, og hófust rækjuveiðar 26. október. Bestu rækju-
miðin voru í austanverðum flóanum. Rækjan er ívíð stærri en í
fyrravetur, og fara um 250 stk. í kílóið.
Sjö bátar stunduðu veiðar á úthafsrækju frá Hólmavík og
Drangsnesi sumarið 1991. Rækjuveiðin var þokkaleg og gæftir
sérdeilis góðar.
Mokafli var á línubátum frá Hólmavík og Drangsnesi fyrstu
vikur ársins. Fengu bátarnir allt að 250 kg af góðum þorski á hvert
bjóð, eða allt upp í 11 tonn í róðri. Þetta samsvarar því, að þorskur
bíti á um það bil ijórða hvern krók á línunni. Fara þarf allt aftur til
áranna eftir 1960 til að finna dænii um svo góðan afla, en á þeim
árum fengust um 375 kg. á bjóðið þegar best lét. Línuveiðar
gengu einnig mjög vel um haustið. Gæftir voru ágætar, og var
algengt að einstakir bátar kæmu með 3—8 tonn að landi eftir
daginn.
Handfæraveiðar gengu mjög vel sumarið 1991, og voru þess
dæmi að einn maður á trillu drægi 1,5 tonn af fiski yfir daginn. I
tilefni af þessu keyptu margir sér trillur með svokölluðu króka-
leyfi í stað aflakvóta. I árslok mátti sjá uþb. 10 trillur á hafnarsvæð-
inu á Hólmavík, en þar hefur lítið verið um trilluútgerð á síðustu
árum. Einnig var stunduð óvenju lffleg trilluútgerð í Árnes-
hreppi. Fjórar trillur lögðu upp hjá Kaupfélagi Strandamanna á
Norðurfirði, en þaðan var aðeins um klukkustundarsigling á mið-
in. Um 6 manns unnu við saltfiskverkun hjá kaupfélaginu yfir
sumarið, en engu að síður varð að senda hluta af fiskinum suður á
markað.
19