Strandapósturinn - 01.06.1998, Page 40

Strandapósturinn - 01.06.1998, Page 40
hvergi komið þar nærri. Kristján og Magnús urðu að sérstöku orðatiltæki á Hólmavík og það orðatiltæki lifði jafnvel eftir að ég var fluttur í burtu og Kiddi korninn í framhaldsskóla. Alltaf voru það Kristján og Magnús. Eg man að eitt sinn vorum við báðir í sveit þegar við vorum kærðir til sýslumannsins, Björgvins Bjarnasonar, fyrir einhvern skrattann sem ég man ekki lengur hvað var. 1 annað skipti voru Kristján og Magnús klagaðir fyrir að skera band úr sjúkrahús- hliðinu, svo að rollur fóru inn á túnið. Þá var Kristján í sveit á Svanshóli í Bjarnarfírði og ég á Hrófbergi hjá Svövu og Halldóri. Pabbi kom inn að Hrófbergi og spurði Svövu hvar ég hefði ver- ið tiltekinn dag þegar þetta var gert. Þá höfðum við verið í hey- skap. Við komumst að því löngu síðar hver hefði kennt okkur um að hafa skorið bandið úr hliðinu. Og sá drengur fékk held- ur betur að finna til tevatnsins. Við vissum að hann var óskaplega myrkfælinn og ákváðum að láta hann vita hvað það þýddi að kenna okkur um eitthvað sem við höfðum ekki gert. Við ákváðum því að „spinna á glugga“ hjá honum seint að kvöldi þegar komið var myrkur. Listin fólst í því að binda hörtvinna við teiknibólu sem við setturn í trélista við glugga og síðan var olíublautur tvistur notaður til að spinna á þráðinn. Þá ískraði heldur óþægilega í glugganum. Við fórum að spinna og spinna á glugganum hjá pilti og það kviknar ljós inni í herberginu og hann kemur út í gluggann til að athuga hvað væri um að vera. Við hættum að spinna og hann dregur aftur fýrir gluggann og slekkur. Það leið ekki á löngu þangað til við byijuðum aftur að spinna og það er kveikt og gluggatjöldun- um kippt frá. Það er þá pabbi stráksins. Hann kíkir út og sér ekki neitt. Síðan verðum við þess varir að karlinn er að koma út og þá kipptum við bólunni og spottanum í burtu og létum okk- ur hverfa. Karlinn fer hringinn í kringum húsið og verður einskis var, fer inn aftur og ljósið er slökkt í herbergi stráksins. Við bíðum í smátíma þangað til allt er kornið í ró og setjum þá bóluna á sama stað og byijum að spinna á ný. Nú kviknar ekki ljós í her- berginu og ekkert gerist. Hins vegar var lengi vel kveikt uppi í hjónaherberginu, en að lokum er slökkt. Við fengum þá „lánað- 38
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.