Strandapósturinn - 01.06.1998, Blaðsíða 117
krydda upp á tilveruna með tilheyrandi vanlíðan, hljóðum og
ilmi. Hreinlætisaðstaða var í algjöru lágmarki og illt að koma
nokkru frá sér. Æðsta takmarkið var að æla sem minnst hver á
annan. Rut var illa löguð til gangs móti sjó og vindi, hún var svo
stutt og breið. Oft missti hún skrúfu á ölduhryggjunum, þá söng
og hvein í vélinni og báturinn nötraði stefnanna milli. Mönnum
varð því ekki svefnsamt við þessar aðstæður. Að lokum hafðist
þetta þó og Rut gamla skilaði okkur heilum inn á Smáhamravog-
inn um fótaferðatímann, eftir átta klukkustunda ferð. Það var
fár og fölleitur hópur sem Karl bóndi ferjaði í land þennan
mánudagsmorgunn. Hann bauð svo öllum mannskapnum í
morgunkaffið sem var vel þegið jafnvel þótt lystin væri í lág-
marki hjá sumum. Sjóveiki er fljót að læknast þegar á land er
komið. Við vorum líka fljótir að jafna okkur, reynslunni ríkari.
Með Saurbceingum á fótboltavelli og dansgólfi
Sumarið 1940 var farið suður í Saurbæ og keppt við Saurbæ-
inga á Skollhólnum. Saurbæingar endurguldu svo heimsóknina
árið eftir. Þessar heimsóknir voru svo endurteknar næstu tvö
árin. Þessum samskiptum okkar á knattspyrnuvellinum áttu þeir
mestan hlut að frændurnir, Kollafjarðarnesbræður og bræðurn-
ir á Fremri-Brekku, Torfi og Ástvaldur, ásamt Benedikt Bene-
diktssyni á Neðri-Brunná, en þeir voru allir systrasynir. Þessir
Saurbæingar ásamt Benedikt Gíslasyni í Litla-Holti og Ketilbirni
Magnússyni í Tjaldanesi voru skólabræður mínir í Reykjaskóla
veturinn áður, hafði ég því sérstaka ástæðu til að fagna þessu.
Af þessu tilefni ákvað ungmennafélagið að fara skemmtiferð í
Saurbæinn. Var sú ferð hugsuð bæði til að styrkja keppendur og
einnig til að skoða sig um sunnan heiða. Ekki spillti svo fyrir að
auglýstur var dansleikur á eftir.
Til ferðarinnar var fenginn Andrés Magnússon í Asgarði með
rútubfl sem hann notaði í vikulegar áætlunarferðir milli Reykja-
víkur og Hólmavíkur. Þetta mun hafa verið 28 manna rúta, sem
reyndist fulllítil. Þótt þröngt væri setið varð að setja síðasta far-
115