Strandapósturinn - 01.06.1998, Blaðsíða 101
!
ii ii ii ii ii ii li li ii
Reykjaskóli.
ur í orði heldur einnig á borði því hann var fæddur árið 1900.
A því leikur engin vafi að hugsjónin unr gott og heilbrigt mann-
líf var drifkrafturinn í starfi þeirra skólanranna sem byggðu upp
héraðsskólana. Fyrir strák úr sveit var þetta hentugur áfangi á
leiðinni til frekara náms. Eg á Guðmundi skólastjóra þökk að
gjalda fyrir þá uppörvun og hvatningu sem hann veitti mér.
Það er mér mikil gleði að Hlíf skuli vera hér með okkur í
kvöld með börnum sínum og tengdabörnum. Hafi þau öll þökk
fyrir þá hlýju sem ég naut hjá þeim, og áreiðanlega vilduð þið
öll taka undir þakkir mínar.
Fleiri koma við sögu, kennarar og starfsfólk. Séra Jón Guðna-
son og Guðlaug kona hans, Eiríkur sonur þeirra, Páll Friðriks-
son, Matthías Jónsson, Pálína Guðvarðsdóttir, Axel Jóhannesson,
Vilhjálmur Olafsson, Olöf Björnsdóttir, Hulda Egilsdóttir, Vigdís
Runólfsdóttir, Pétur Stefánsson, Bjarni Jónsson. Allt þetta fólk
var hluti af starfmu í skólanum. Og svo var Þorkell Zakkaríasson
þarna með bílinn sinn. Andlitin konra í hugann langt á undan
nöfnunum.
Þarna voru Strandamenn, Húnvetningar, nokkrir Skagfirðing-
ar og svo við öll hin, norðan úr Þingeyjarsýslum, að sunnan og
að vestan.
Hvað fórum við svo á brott nreð úr þessum skóla, skóla sem
99