Syrpa - 01.02.1947, Page 27
Nefndin vill leyfa sér að leggja þetta til:
1. Komið sé upp forsvaranlegu sjúkraskýli í sambandi við
lögreglustöðina, og þangað ráðinn sérstakur læknir og hjúkr-
unarlið. Bærinn reki einnig uppeldisheimili handa ungling-
um og ofdrykkjuhæli handa konum og körlum.
2. Eftirlit skerpt að miklum mun:
Lögreglunni sé skylt að sjá um, að áfengi sé ekki veitt á
skemmtunum né í veitingahúsum, sem ekki hafa vínveit-
ingaleyfi. Hún hafi einnig nákvæma gát á þvi, að gestum
haldist ekki uppi að hafa áfengi með sér inn í veitingahús
og neyta þess þar. Sé út af þessu brugðið, sæti bæði gest-
ur og gestgjafi sektum.
Á skemmtunum og í veitingahúsum, sem heimild hafa til
vínveitinga, sjái lögreglan um að fjarlægja hvern þann, er
truflun veldur vegna ölvunar.
3. Allir, sem á sér vekja athygli vegna áfengisnautnar,
úti eða á opinberum skemmtistöðum, séu umsvifalaust flutt-
ir í sjúkraskýli lögreglurmar og hafðir þar þangað til áfeng-
isáhrifin eru um garð gengin.
Ef um er að ræða unglinga innan átján ára aldurs, skal
læknirinn flytja þá heim að dvöl lokinni og gera vanda-
mönnum aðvart um ástæður. Ef unglingurinn endurtekur
brot sitt, er lækni heimilt að flytja hann í sjúkrahús.
Sé um að ræða karla eða konur eldri en átján ára, getur
læknir flutt þau úr sjúkraskýlinu í sjúkrahús, ef hann tel-
ur nauðsyn til bera.
Ef sjúkrahúsvist nægir ekki til lækningar, skal heimilt að
flytja unglinga á uppeldisheimili og fullorðna karla og kon-
ur á ofdrykkjuhæli. Ákvörðun um slikt getur læknir lög-
reglunnar þó ekki tekið á eigið eindæmi, heldur leggi hann
tillögu um það fyrir nefnd manna, er skipuð sé til að ráða
úrslitum þess háttar mála. 1 nefnd þessari sitji einn lækn-
ir, einn prestur og einn fulltrúi frá Stórstúku Islands.
4. Gerðar séu strangar kröfur til allra starfsmanna bæj-
arins um það, að þeir séu ekki undir áhrifum áfengis við
störf sín.
5. Áfengi sé ekki haft um hönd í veizlum, sem haldnar
eru á vegum bæjarfélagsins.
Til námsmeyja Kvennaskólans í Reykjavík.
Stofnfundur Áfengisvarnarnefndar kvenfélaga í Reykja-
vík og Hafnarfirði, haldinn 5. desember s.l., samþykkti ein-
róma að senda námsmeyjum Kvennaskólans í Reykjavík
svolátandi kveðju:
„Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir samþykkt náms-
meyja Kvennaskólans í Reykjavik um það, að dansa
ekki við drukkna menn. Telur fundurinn mjög mikils
um vert, að allar stúlkur, sem ekki neyta áfengis, taki
þessa reglu upp“.
Til kvenfélaga um land allt.
„Stofnfundur Áfengisvarnarnefndar kvenfélaga í Reykja-
vík og Hafnarfirði, haldinn 5. desember 1946, skorar ein-
dregið á öll kvenfélög landsins að taka upp baráttu gegn
áfengisneyzlu, hvert í sínu byggðarlagi.
Eins og sakir standa, telur nefndin að áherzlu beri að
leggja á þessi atriði:
1. að beita sér gegn þvi, að áfengi sé haft um hönd á sam-
komum, og
2. að uppörfa ungar stúlkur til að bindast samtökum um
að dansa ekki við drukkna menn“.
Konur! Drögum ekki til morguns það, sem við getum
gert í dag!
Reykjavík, 10. jan. 1947.
Fyrir hönd stjórnarinnar.
Kristín Sigurðardóttir (formaður).
Ástríður Eggertsdóttir (ritari).
(Heimilisfang nefndarinnar er: Hellusund 6A, Reykjavik.)
Undanfarin ár hefir það viljað brenna við, að
mörg þau þjóðþrifamál, sem íslenzkar konur hafa
látið sig mestu skipta, hafi kafnað í hinum illvígu
deilum stjórnmálaflokkanna. Tímaritið „Syrpa“ er
til þess stofnað, að leitast við að ráða einhverja bót
á þessu. Það vill verða vettvangur fyrir skynsam-
legar og öfgalausar umræður um kjarna þeirra
vandamála, sem blasa við hinu unga lýðveldi nú
á viðsjárverðum tímum. Þessi mál hljóta að vera
öllum góðum þegnum sameiginlegt áhugaefni,
hvort sem þeir eru konur eða karlar. Þessvegna
telur „Syrpa“ sig ekki einungis málgagn kvenna.
En hún væntir sér fyrst og fremst stuðnings
þeirra, vegna þess að frá þeim hafa heyrst marg-
ar raddir um þörfina á blaðkosti af þessu tagi.
Eins og að líkum lætur, þá er framtið ritsins
komin undir þeim viðtökum, er það hlýtur. Ann-
arsvegar er því nauðsynlegt að njóta samvinnu og
velvildar hæfustu manna á sviði þeirra mörgu
málefna, er það vill taka til umræðu. Hafa þegar
fengizt loforð um aðstoð margra ágætra rithotunda
og sérfræðinga, en vönduðum ritgerðum eða hvers-
konar hentugu efni öðru mun verða tekið með
þökkum, hvaðan sem það berst. Hinsvegar er lang-
lífi tímaritsins háð því, að kaupendur þess verði
sem flestir. „Syrpa“ leyfir sér því að fara fram á
það við alla þá, er álíta útkomu hennar einhvers
virði, að þeir gerist fastir kaupendur sem fyrst.
5 Y R p A
17