Syrpa - 01.02.1947, Blaðsíða 28

Syrpa - 01.02.1947, Blaðsíða 28
SIGRÍÐUR HALLGRÍMSDÚTTIR : Frú Sigríður Hallgrimsdóttir ferðaðist í sumar um nokkur hinna hrjáðu stríðslanda með manni sín- um, Lúðvíg Guðmundssyni, skólastjóra. Eins og kunnugt er, þá féll honum í skaut hið góða, en vandasama og erfiða hlutskipti, að leita uppi hág- stadda Islendinga fyrir Rauða Kross Islands og koma þeim til hjálpar. Hann hefur einnig unnið ötullega að því að opna augu okkar landa sinna fyrir neyð fólksins í þessum löndum og þeim skyldum, er hún leggur okkur á herðar. „Syrpa" hað frú Sigríði um að segja lesendunum eitthvað um þessa ferð. I. Þegar ég hlusta á fréttir útvarpsins eða les frá- sagnir blaðanna um fannfergi og frosthörkur, sem nú eru á meginlandinu, rifjast upp fyrir mér fjöldi minninga og mynda frá ferðum mínum um ófrið- arlöndin. Við vorum 6 saman, 4 íslenzkir blaðamenn auk okkar hjónanna. Héldum við af stað frá Kaup- mannahöfn í lok júlí s.l. Höfðum við tvo bíla til umráða, nýjan og glæsilegan fólksbíl og gamlan og farinn jeppa (sem gafst upp á suðurleið, milli Liibeck og Hamborgar). Héldum við sem leið ligg- ur, um dönsku eyjarnar og Suður-Jótland, áleið- is til Þýzkalands. Fórum við þar víða um og á- fram til Tékkóslóvakíu og Austurríkis. Að liðnum röskum þremur vikum komum við aftur til Hafn- ar. Þegar ég þá leit um öxl til alls þess, sem bor- ið hafði fyrir augu mín og eyru á þessum þremur vikum, undraðist ég stórum. Fannst mér þetta þá hafa verið óralangur tími, sem aðeins voru fáar vikur. Áður hafði ég ferðast um Þýzkaland og þá ekkert fundið athugavert við tímatalið; en nú var eins og ófriðurinn hefði ekki einasta afskræmt ásjónu borganna og gert fólkið torkennilegt, heldur líka fært allan tímareikning úr skorðum. — Á leið okkar frá Suður-Jótlandi til Hamborg- ar komum við til Kiel. Fyrir stríð var þetta glæsi- leg athafnahoig. Þar var flotastöð mikil ásamt öllu, er slíku fylgir. Háskóli og f jöldi annarra menning- arstofnana. Frá Kiel liggur hinn mikli skipaskurð- ur, sem tengir Eystrasalt við Norðursjó. Vegna hernaðarlegs mikilvægis var Kiel því tíðsótt skot- mark Bandamanna. Sér þess líka ótvíræð merki, því að mestur hluti borgarinnar er nú rústir einar. Maðurinn minn þurfti í erindum Rauða Kross- ins að heimsækja fjölskyldu eina, sem þar átti heima. Á fyrri ferðum sínum hafði hann komið þangað og vissi, að fólk þetta var á lífi. En þrátt fyrir það að hann hafði heimilisfang þess, götu- nafn og húsnúmer, var ekki leikur að finna hús- ið aftur. Lítil hjálp var þá að korti yfir borgina, því að óvíða sá götunöfn, flest voru þau horfin með húsunum, sem þau höfðu verið fest á. Þá var ekki annað að gera en að reyna að spyrja sig áfram. Þrátt fyrir æfingu í því reyndist það líka æði taf- „.. .. mestur hluti borgarinnar er nú rústir einar“. samt. Nálega annar hver maður, sem við spurðum vegar, yppti öxlum til svars, kvaðst vera ókunnug- ur hér, vera aðkomumaður. Þetta var flóttafólk, flest frá austurhéruðum Þýzkalands. Þessa sömu sögu er að segja úr flestum öðrum borgum, sem við fórum um. — En hinir, sem við spurðum og áttu að heita heimamenn í Kiel, voru fæstir miklu hetri. Stundum þegar við spurðum til vegar, safnað- ist hópur í kringum okkur. Alhr vildu greiða götu okkar; ekki vantaði það. Ýmsir þeirra hafa ef til vill í anda séð sögulaunin — sígarettu úr ósviknu tóbaki! En hvað um það, sérhver þóttist vita bet- ur en allir hinir. Og stundum fór svo, að við treyst- um okkur ekki til að fylgja neinu ráði, þökkuðum fyrir veittan greiða og ókum áfram. En einhvern veginn tókst þetta samt, og við komumst á rétta götu. Þar, eins og víða annars staðar, var aðeins mjó braut rudd eftir miðri götunni, en á báðar 1G S V R P A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/1642

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.